Morgunblaðið - 30.07.2021, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2021
Lengjudeild karla
Selfoss – Þróttur R................................... 0:3
Vestri – Grótta.......................................... 4:3
Staðan:
Fram 13 11 2 0 36:10 35
ÍBV 13 8 2 3 25:13 26
Fjölnir 14 7 2 5 19:16 23
Kórdrengir 12 6 4 2 19:14 22
Vestri 14 7 1 6 23:27 22
Grindavík 14 5 5 4 26:28 20
Þór 14 5 4 5 29:24 19
Grótta 14 5 2 7 28:28 17
Afturelding 12 4 4 4 27:24 16
Selfoss 14 3 3 8 21:32 12
Þróttur R. 14 3 1 10 25:33 10
Víkingur Ó. 12 0 2 10 15:44 2
3. deild karla
KFS – KFG............................................... 2:1
Einherji – Höttur/Huginn ....................... 1:2
Víðir – ÍH .................................................. 2:1
Tindastóll – Elliði ..................................... 0:1
Staða efstu liða:
Höttur/Huginn 15 11 2 2 26:15 35
KFG 14 7 4 3 24:18 25
Elliði 14 8 0 6 30:21 24
Ægir 13 6 5 2 22:13 23
Augnablik 13 6 3 4 28:20 21
Sindri 14 6 3 5 26:21 21
2. deild kvenna
Völsungur – Hamrarnir........................... 3:0
Staða efstu liða:
FHL 10 9 0 1 46:12 27
Völsungur 10 8 1 1 25:10 25
KH 9 7 0 2 30:8 21
Fram 9 7 0 2 26:11 21
Fjölnir 9 6 1 2 36:12 19
Sambandsdeild karla
2. umferð, seinni leikir:
Bodö/Glimt – Valur................................. 3:0
- Alfons Sampsted lék allan leikinn með
Bodö/Glimt.
_ Bodö/Glimt áfram, 6:0 samanlagt.
Rosenborg – FH....................................... 4:1
- Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn
með Rosenborg.
_ Rosenborg áfram, 6:1 samanlagt.
Häcken – Aberdeen................................. 2:0
- Oskar Tór Sverrisson kom inn á hjá Häc-
ken á 76. mínútu en Valgeir Lunddal Frið-
riksson var á bekknum allan tímann.
_ Aberdeen áfram, 5:3 samanlagt.
AGF – Larne............................................. 1:1
- Jón Dagur Þorsteinsson lék allan leikinn
með AGF.
_ Larne áfram, 3:2 samanlagt.
BATE Borisov – Dinamo Batumi .......... 1:4
- Willum Þór Willumsson lék ekki með
BATE vegna meiðsla.
_ Batumi áfram, 4:2 samanlagt.
Milsami Orhei – Elfsborg ....................... 0:5
- Hákon Rafn Valdimarsson var vara-
markvörður Elfsborg í leiknum.
_ Elfsborg áfram, 9:0 samanlagt.
Vålerenga – Gent..................................... 2:0
- Viðar Örn Kjartansson lék ekki með
Vålerenga vegna meiðsla.
_ Gent áfram, 4:2 samanlagt.
Torpedo Zhodino – Köbenhavn............. 0:5
- Hákon Arnar Haraldsson kom inn á hjá
Köbenhavn á 76. mínútu.
_ Köbenhavn áfram, 9:1 samanlagt.
Shkëndija – Riga...................................... 0:1
- Axel Óskar Andrésson lék ekki með
Riga vegna meiðsla.
_ Riga áfram, 3:0 samanlagt.
Servette – Molde...................................... 2:0
- Björn Bergmann Sigurðarson kom inn á
hjá Molde á 58. mínútu.
_ Molde áfram, 3:2 samanlagt.
Maribor – Hammarby ............................. 0:1
- Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn með
Hammarby.
_ Hammarby áfram, 4:1 samanlagt.
Shakhter Karagandy – FCSB.. 2:1 (2:2/5:7)
Liepaja – CSKA Sofia ............... 0:0 (0:0/1:3)
Tobol Kostanay – Hajduk Split ...... 4:1 (4:3)
Birkirkara – Olimp.Ljubljana .. 1:0 (1:1/5:6)
Dinamo Brest – Viktoria Plzen....... 1:2 (2:4)
Vaduz – Újpest................................. 1:3 (2:5)
Honka – Domzale............................. 0:1 (1:2)
Keshla – Sotsjí ................................. 2:4 (2:7)
Sumqayit – Cukaricki Belgrad....... 0:2 (0:2)
Vorskla Poltava – KuPS Kuopio .... 2:3 (4:5)
Santa Coloma – Hibernian.............. 1:2 (1:5)
Levadia Tallinn – Dundalk ............. 1:2 (3:4)
Sepsi – Spartak Trnava............. 1:1 (1:1/4:5)
Zilina – Apollon Limassol ............... 2:2 (5:3)
Ashdod – Qarabag ........................... 0:1 (0:1)
Hap.Beer Sheva – Arda Kardzhali 4:0 (6:0)
Maccabi Haifa – Dinamo Tbilisi ..... 5:1 (7:2)
Raków Czestochówa – Suduva . 0:0 (0:0/4:3)
Sivasspor – Petrocub....................... 1:0 (2:0)
Slovácko – Lokomotiv Plodiv ... 1:0 (1:1/3:4)
The New Saints – Kauno Zalgiris 5:1 (10:1)
Fola Esch – Shakhtyor Soligorsk .. 1:0 (3:1)
Maccabi Tel Aviv – Sutjeska........... 3:1 (3:1)
AEK Aþena – Velez Mostar ..... 1:0 (2:2/4:5)
Borac Banja Luka – Linfield .......... 0:0 (0:4)
Connah’s Quay – Prishtina ............. 4:2 (5:6)
Feyenoord – Drita ........................... 3:2 (3:2)
Partizani Tirana – Basel ................. 0:2 (0:5)
Puskás Academica – RFS Riga...... 0:2 (0:5)
Rijeka – Gzira United...................... 1:0 (3:0)
Slask Wroclaw – Ararat Jerevan ... 3:3 (7:5)
Vojvodina Novi Sad – Panevezys ... 1:0 (2:0)
Aris Saloniki – Astana ..................... 2:1 (2:3)
Universitatea Craiova – Laci.......... 0:0 (0:1)
Bohemians – Dudelange ................. 3:0 (4:0)
Dun.Streda – Partizan Belgrad...... 0:2 (0:3)
Osijek – Pogon Szczecin.................. 1:0 (1:0)
Vllaznia – AEL Limassol ................ 0:1 (0:2)
Santa Clara – Shkupi....................... 2:0 (5:0)
4.$--3795.$
EVRÓPUKEPPNI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Nú er skammt stórra högga á milli
hjá Breiðabliki. Í gær sló liðið út
Austria Wien frá Austurríki, félag
sem lék til úrslita í Evrópukeppni
bikarhafa á sínum tíma. Næsta
fimmtudag leikur Kópavogsliðið aft-
ur á heimavelli og nú gegn Aber-
deen, félagi sem varð Evrópumeist-
ari bikarhafa árið 1983, undir stjórn
Alex Fergusons sem margir kannast
eflaust við.
Aberdeen er ekki alveg sama
nafnið í Evrópufótboltanum í dag og
það var árið 1983 en það er ljóst að
Blikar hafa unnið sér inn tvo áhuga-
verða leiki gegn Skotunum sem end-
uðu í fjórða sæti úrvalsdeildarinnar
þar í landi síðasta vetur.
Og þetta hafa Blikar unnið sér inn
með tveimur hreint frábærum leikj-
um gegn Austria Wien. Þeir voru
betri aðilinn á útivelli í Vínarborg
þar sem liðin skildu jöfn, 1:1, og þeir
voru aftur betri aðilinn lengi vel í
seinni leiknum á Kópavogsvelli í
gærkvöld þar sem þeir stóðu af sér
nokkra pressu Austurríkismann-
anna á lokakaflanum og sigruðu 2:1.
Þeir Kristinn Steindórsson og
Árni Vilhjálmsson skoruðu mörk
Blika eftir tvær afar vel útfærðar
sóknir og komu þeim í 2:0 á fyrstu 24
mínútum leiksins. Höskuldur Gunn-
laugsson lagði upp fyrra markið fyr-
ir Kristin, sem svo lagði það seinna
upp fyrir Árna.
Það var eins og austurríska liðið
ætti engin svör við leikaðferð Blik-
anna, þrátt fyrir að hafa glímt við þá
í 90 mínútur í Vínarborg. Rétt eins
og þá héldu Blikar boltanum vel í
öftustu línu, spiluðu sig út úr pressu
og náðu góðum sóknum út frá því,
ásamt því að búa sér til möguleika
með því að pressa mótherjana af
krafti á þeirra vallarhelmingi. Óskar
Hrafn Þorvaldsson þjálfari hefur
náð að útfæra þetta virkilega vel í
Morgunblaðið/Unnur Karen
Sigurgleði Markaskorararnir Kristinn Steindórsson og Árni Vilhjálmsson fagna sigrinum á Austria Wien í leikslok ásamt samherjum sínum.
fjórum Evrópuleikjum liðsins í þess-
um mánuði.
Í raun voru það Blikarnir sem
gáfu Austria von um að geta jafnað
metin. Annan leikinn í röð varð mis-
heppnuð sending í öftustu línu til
þess að mótherjarnir skoruðu.
Austria átti því von á lokakaflanum
og hefði knúið fram framlengingu
með því að jafna metin.
En þar sýndu Blikarnir að þeir
geta líka varist með kjafti og klóm
og hreinsað frá marki sínu þegar á
þarf að halda. Austria fékk í raun
aldrei færi til að jafna þrátt fyrir
þunga sókn á lokakafla leiksins þar
sem ekkert hefði mátt út af bregða.
_ Eftir þennan sigur er Breiða-
blik eina íslenska félagið sem hefur
ekki tapað fleiri Evrópuleikjum en
það hefur unnið. Blikar hafa nú unn-
ið sjö og tapað sjö af nítján Evrópu-
leikjum sínum frá upphafi.
_ Breiðablik hefur nú tvisvar
slegið út austurrísk lið. Hitt er
Sturm Graz sem Blikar unnu 1:0
samanlagt árið 2013.
Aldrei möguleikar í Noregi
FH og Valur féllu bæði út í Noregi
í gærkvöld enda var ljóst að bæði lið
ættu erfiða útileiki fyrir höndum eft-
ir ósigrana í Kaplakrika og á Hlíðar-
enda í síðustu viku.
Valsmenn áttu aldrei möguleika
gegn Bodö/Glimt og töpuðu aftur
3:0. FH-ingar stóðu aðeins betur í
Rosenborg og eygðu von um að tapa
ekki þegar Guðmann Þórisson
minnkaði muninn í 2:1 á 74. mínútu.
Rosenborg bætti hinsvegar við
tveimur mörkum og vann 4:1.
_ Íslensku landsliðsmennirnir
Alfons Sampsted og Hólmar Örn
Eyjólfsson léku báðir allan tímann
með Bodö/Glimt og Rosenborg í
þessum leikjum við Val og FH í gær-
kvöld.
_ Eftir ósigra FH og Vals í kvöld
hafa íslensk lið nú tapað 20 af 25
Evrópuleikjum sínum gegn norsk-
um liðum og aldrei slegið þau út í
þrettán tilraunum.
Næst er það Aberdeen
- Breiðablik lagði gamla stórveldið Austria Wien á Kópavogsvelli og er komið í
3. umferð Evrópukeppninnar - Mætir Skotunum næstu tvo fimmtudaga
Þróttarar galopnuðu fallbaráttuna
í 1. deild karla í fótbolta í gærkvöld
þegar þeir sóttu Selfyssinga heim
og sigruðu þá 3:0. Fyrir leikinn
skildu fimm stig liðin að í 10. og 11.
sæti og því ljóst að Þróttarar væru
með tapi komnir með annan fótinn
niður í 2. deild.
Kairo Edwards-John skoraði
fyrsta markið á 21. mínútu og var
það eina markið í fyrri hálfleik.
Hinrik Harðarson bætti við marki á
55. mínútu og Róbert Hauksson
innsiglaði sigur Þróttara með
marki á 90. mínútu.
Þróttarar eru
á lífi á ný
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Selfoss Gunnlaugur H. Birgisson
og Danijel Majkic í leiknum í gær.
Björn Bergmann Sigurðarson
landsliðsmaður í knattspyrnu lék á
ný með norska liðinu Molde eftir
tæplega þriggja mánaða fjarveru
þegar það sló Servette frá Sviss út í
annarri umferð undankeppni Sam-
bandsdeildar Evrópu í gærkvöld.
Björn gekkst undir uppskurð á
baki í maí og hafði þá aðeins komið
við sögu í fyrsta leik tímabilsins
með Molde en misst af þeim 13
leikjum sem liðið hefur síðan leikið
í deildinni. Molde tapaði 2:0 í Sviss
en vann fyrri leikinn 3:0 og einvígið
því 3:2.
Björn inn á
völlinn á ný
Morgunblaðið/Eggert
Endurkoma Björn Bergmann Sig-
urðarson lék í Sviss í gærkvöld.
BREIÐABLIK – AUSTRIA 2:1
1:0 Kristinn Steindórsson 6.
2:0 Árni Vilhjálmsson 24.
2:1 Dominik Fitz 68.
Dómari: Paul McLaughlin, Írlandi.
Áhorfendur: 700 – uppselt.
_ Breiðablik vann 3:2 samanlagt og
mætir Aberdeen.
BODÖ/GLIMT – VALUR 3:0
1:0 Ulrik Saltnes 26.
2:0 Brede Moe 61.
3:0 Elias Kristofferssen Hagen 90.
Dómari: Paolo Valeri, Ítalíu.
Áhorfendur: 2.500 – uppselt.
_ Bodö/Glimt vann 6:0 samanlagt og
mætir Prishtina frá Kósóvó.
ROSENBORG – FH 4:1
1:0 Dino Islamovic 49.
2:0 Stefano Vecchia 54.
2:1 Guðmann Þórisson 74.
3:1 Emil Konradsen Ceide 76.
4:1 Emil Konradsen Ceide 87.
Dómari: Ferenc Karakó, Ungverja-
landi.
Áhorfendur: 7.000.
_ Rosenborg vann 6:1 samanlagt og
mætir Domzale frá Slóveníu.