Morgunblaðið - 30.07.2021, Page 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2021
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Þetta leikrit er svona Covid-barn
og það er mjög fyndið að vera aftur
að reyna að setja það upp í nýrri
bylgju,“ segir Anna María Tómas-
dóttir um Halastjörnu, leikrit eftir
Kieran Knowles, sem verður frum-
sýnt í Hlöðunni, Litla-Garði á Akur-
eyri, í kvöld, föstudaginn 30. júlí, kl.
20. Önnur og
þriðja sýning
verða síðan um
næstu helgi,
föstudaginn 6.
ágúst og laugar-
daginn 7. ágúst.
Hópurinn sem
stendur að sýn-
ingunni er að
stórum hluta að
norðan og tengist
á ýmsa vegu.
Leikararnir Anna Gunndís Guð-
mundsdóttir og Einar Aðalsteinsson
eru hjón sem kynntust á Akureyri
fyrir tíu árum þegar þau störfuðu
hjá Leikfélagi Akureyrar. Einar
lærði leiklist í London og með hon-
um bjó handritshöfundurinn Kieran
Knowles. „Ég er svo vinkona Önnu
Gunndísar og við bjuggum öll saman
í New York, þegar ég var í námi
þar,“ segir leikstjórinn. „Við Þór-
oddur og Hrönn erum líka vinir og
höfum unnið saman í tveimur öðrum
verkum. Svo þetta eru í raun vinir að
búa til leikrit saman og það er mjög
skemmtilegt.“
Nú eða aldrei
Aðdragandinn að uppsetningunni
hefur verið langur. „Anna Gunndís
og Einar eru búin að hafa augastað á
þessu leikriti og langað að setja það
upp mjög lengi,“ segir Anna María.
Uppsetningunni var frestað um
rúmt ár vegna heimsfaraldursins en
nú er loks komið að frumsýningu.
Það er heldur óvenjulegt að setja
upp leiksýningar að sumri til, enda
hefst leikárið yfirleitt ekki fyrr en að
hausti. En Anna María segir að þau
hafi orðið að klára verkefnið núna.
Verkið er styrkt af mennta- og
menningarmálaráðuneytinu og
launasjóði listamanna og voru það
sérstakir styrkir sem var úthlutað
vegna faraldursins. Svo er Einar,
annar leikaranna, að fara í nám í
söngleikjatónsmíðum í New York og
Anna María að fara að vinna í Þjóð-
leikhúsinu. „Svo það er núna eða
aldrei, og helst áður en það koma
meiri samkomutakmarkanir.“
Anna María segir verkið fjalla um
félagslega einangrun og því sé það
sérstaklega viðeigandi á þessum
tímum. „Það fjallar um hvað sam-
skipti á netinu geta verið einangr-
andi þótt það séu samskipti.“ Í
tæknisamfélagi nútímans verða
bergmálshellar netsins til þess að
maður heyrir ekki aðrar skoðanir en
sínar eigin. „Maður getur misst
sjónar á raunveruleikanum þegar
maður verður svona einangraður og
sér bara eina hlið á málinu,“ segir
hún. „En þetta er líka ástarsaga, það
er smá Rómeó og Júlía í þessu.“
Hrátt og kalt í hlýlegri Hlöðu
Sýningin verður í Hlöðunni, Litla-
Garði nálægt flugvellinum á Akur-
eyri. „Þetta er gömul hlaða sem er
ótrúlega krúttleg. Það komast
kannski 50-60 manns fyrir í salnum
en við verðum með 30 sæti út af fjar-
lægðarreglum. Þetta er braggahlaða
með steypugólf og bárujárn. Þetta
er ótrúlega hrátt, gróft og lífrænt,
kóngulóarvefir og eitthvað gaman.“
Hún segir leikmyndina, búningana
og ljósin skapa andstæðu við hlöð-
una. Tæknistjóri og ljósahönnuður
sé Þóroddur Ingvarsson og Hrönn
Blöndal Birgisdóttir hanni leikmynd
og búninga og í þeirra sköpunar-
verki sé plast og gler áberandi, allt
sé hvítt og hreint. „Lýsingin er
geggjuð og þetta er mjög mikið
„show“. Þetta er svona formhreint,
stílhreint og kalt inni í hlýleika hlöð-
unnar, sem er falleg og mjúk. Næst-
um því smá fútúristískt.“ Hún segir
að verkið minni kannski örlítið á
þættina Black Mirror. Þetta er
svona dæmisaga. Verkið eigi ekki
endilega að gerast í samtímanum en
þetta sé ekki veruleiki sem sé sér-
lega fjarlægur okkur. „Við þurfum
að passa okkur, því við gætum endað
þarna.“
Algjör hæfileikasprengja
Birna Eyfjörð Þorsteinsdóttir,
sem semur tónlistina, er einungis 21
árs og er frá Grenivík. „Hún er bara
algjör hæfileikasprengja fyrir utan
hvað hún er skemmtileg. Hún er að
fara í Berklee í tónsmíðanám og er
búin að vera að vinna með frábærum
tónskáldum. Hún verður svo mikil
stjarna,“ segir Anna María.
Leikstýran sjálf hefur haft í nógu
að snúast þrátt fyrir kófið. Hún leik-
stýrði meðal annars sýningunni The
last kvöldmáltíð, sem hlaut fjórar til-
nefningar á Grímunni, og verki út-
skriftarnema af leikarabraut
Listaháskóla Íslands, Krufningu á
sjálfsmorði, ásamt Mörtu Nordal.
Hún vann einnig að kvikmyndinni
Dýrinu sem hlaut frumleikaverðlaun
á Cannes-hátíðinni nú fyrir skömmu.
„Það er bara ótrúlega gaman að
gera leikhús þegar vindar blása á
móti. Það er alltaf gaman að gera list
sem skiptir máli,“ segir hún um
verkefnið sem loksins fær að líta
dagsins ljós þrátt fyrir áskoranir.
Nánari upplýsingar og miða á
Halastjörnu er að finna á tix.is.
Halastjarna „Þetta er svona formhreint, stílhreint og kalt inni í hlýleika
hlöðunnar, sem er falleg og mjúk,“ segir leikstjórinn Anna María.
Af einangrun og ást í
tækniveröld samtímans
- Leiksýningin Halastjarna frumsýnd í Hlöðunni á Akureyri í kvöld
Anna María
Tómasdóttir
Dusty Hill, hinn síðskeggjaði bassa-
leikari bandarísku blúsrokksveit-
arinnar ZZ Top, er látinn, 72 ára að
aldri. Hljómsveitin, sem var allt til
andláts Hill einnig skipuð gítarleik-
aranum og söngvaranum Billy
Gibbons og trommaranum Frank
Beard, var með vinsælustu hljóm-
sveitum Bandaríkjanna á níunda
áratug liðinnar aldar og hefur notið
mikillar hylli allar götur síðan.
Plötur hennar hafa selst í yfir 50
milljónum eintaka en meðal vinsæl-
ustu laganna má nefna „La
Grange“, „Give Me All Your
Lovin’“, „Legs“ og „Sharp Dressed
Man“. Gamansöm en þó kröftug
sviðsframkoma tríósins var rómuð,
með síðskeggjuðu vinina Hill og
Gibbons í framlínunni.
Tríóið ZZ Top var stofnað í Tex-
as árið 1969. Hill lærði sem dreng-
ur á selló en skipti 13 ára yfir á
bassann. Hann náði fljótt góðum
tökum á hljóðfærinu og lék með
blúsaranum Lightnin’ Hopkins þeg-
ar trommarinn Beard, sem var
fyrrverandi skólabróðir, hvatti
hann til að ganga til liðs við tríóið
ZZ Top sem Gibbons hafði stofnað.
Fyrstu tónleikana hélt ZZ Top
árið 1970 og sló sveitin fljótlega í
gegn og kom fjölda laga á vinsælda-
lista.
Hill þótti alla tíð fámáll og kaus
að láta bassann tala – og Gibbons
um að tala fyrir sveitina. Hann
komst þó í fréttir árið 1984 þegar
skot hljóp úr skammbyssu, sem
hann geymdi í stígvélinu, og hæfði
hann í kviðinn.
AFP
Skeggprúður Dusty Hill þótti fámáll en lék
af krafti á bassann með ZZ Top í hálfa öld.
Hill bassaleikari
ZZ Top látinn
Í Gallerí Úthverfu á Ísafirði stend-
ur nú yfir sýningin Ungur temur
gamall nemur – um rætur mynd-
listar á Ísafirði. Sýningarstjóri er
Guðmundur Oddur Magnússon
(Goddur), rannsóknarprófessor í
grafískri hönnun, og tengist sýn-
ingin rannsóknarverkefni hans sem
fjallar um myndmál í prentsögu Ís-
lands 1844-1944.
Sýningin er sex vikna verkefni í
sýningarrými og listaverka-
bókabúð Úthverfu þar sem fjallað
er um uppruna myndlistar á Ísa-
firði og sagan rakin með myndum,
texta, spjalli, viðtölum, málþingum
og kynningum. Fjallað er sérstak-
lega um feril Kristjáns H. Magn-
ússonar (1903-1937) listmálara, sem
lærði „hagnýta grafíklist“ í Am-
eríku, og fyrsta teiknikennarann
hans, Guðmund Jónsson frá Mosdal
(1886-1956).
Í tilkynningu segir að sýningunni
sé ætlað að vera lifandi sýningar-
vettvangur sem gefi innsýn í sögu
myndlistar á Ísafirði eins og hún
birtist hjá listamönnunum tveimur
og jafnframt spyrja spurninga og
leita svara. Lögð verður áhersla á
samtal sýningargesta og þátttak-
enda. Þá verða kynntir til sögunnar
sjö ungir hönnuðir með tengingu
við staðinn og verk þeirra sýnd.
Þátttakendurnir eru þau Einar Við-
ar Guðmundsson Thoroddsen, El-
ísabet Sóldís Þorsteinsdóttir, Fann-
ar Már Skarphéðinsson, Jónbjörn
Finnbogason, Margrét Lóa Stef-
ánsdóttir, Marsibil Sól Þórarins-
dóttir Blöndal og Una María Magn-
úsdóttir.
Leitað er dæma úr myndlistar-
sögu svæðisins og kastljósinu varp-
að á mikilvægi þess að börn og ung-
lingar fái tækifæri til að tjá sig
myndrænt með leiðsögn hæfra
kennara.
Sýning um rætur
myndlistar á Ísafirði
- Goddur sýningarstjóri í Úthverfu
Upprunasaga Á sýningunni í Út-
hverfu við Aðalstræti á Ísafirði.
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Komdu í BÍLÓ!
Þessir síungu strákar eru klárir
í að selja bílinn þinn
Kíktu við, hringdu eða sendu okkur skilaboð!
Hlökkum til!
Indriði Jónsson og Árni Sveinsson
Hjá okkur er alltaf gott úrval af nýlegum glæsilegum tengiltvinn bílum (plug in hybrid)
Audi – BMW– Skoda – VW–M.Benz