Morgunblaðið - 31.07.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2021
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Komdu í BÍLÓ!
Þessir síungu strákar eru klárir
í að selja bílinn þinn
Kíktu við, hringdu eða sendu okkur skilaboð!
Hlökkum til!
Indriði Jónsson og Árni Sveinsson
Hjá okkur er alltaf gott úrval af nýlegum glæsilegum tengiltvinn bílum (plug in hybrid)
Audi – BMW– Skoda – VW–M.Benz
Ari Páll Karlsson
ari@mbl.is
Fornleifafræðingar Háskóla Íslands
hefjast handa við uppgröft Þing-
eyraklausturs að nýju eftir helgi.
Þetta er í þriðja skipti sem þau fara
norður á Þingeyrar að grafa upp en
talið er að klaustrið sem þar stóð
hafi verið eitt helsta klaustur lands-
ins og vellauðugt.
„Okkur gengur mjög vel að ald-
ursgreina,“ segir dr. Steinunn Krist-
jánsdóttir fornleifafræðingur, en
þau hafa undanfarið rannsakað frjó-
korn úr jarðveginum sem sýna fram
á að alls konar ræktun hafi farið þar
fram.
Þar að auki vinna þau náið með Ís-
lenskri erfðagreiningu við DNA-
rannsóknir á mannabeinum úr
klaustrinu. „Þannig að tímabilin eru
mjög skýr,“ segir Steinunn.
Eldgos og faraldur
„Þessi byrjunarrannsókn sem við
erum að gera með frjókorn sýnir að
það eru mjög skýrar breytingar.
Bæði þegar klaustrið er stofnað og
byrjað að reka það, þegar það endar
og síðan þarna í kringum svarta-
dauða,“ segir Steinunn. Þá hafi verið
eldgos um svipað leyti og klaustrið
var stofnað. „Það er gos í Heklu
þarna 1104 sem hjálpar okkur,“ seg-
ir Steinunn en talið er að klaustrið
hafi tekið til starfa árið 1112 og verið
formlega sett 1133.
Faraldur svartadauða setti svip
sinn á klaustrið og þar af leiðandi
umhverfið í kring þegar hann geis-
aði hér á landi í tvígang á 15. öld.
„Ábótinn, yfirmaðurinn, deyr 1402
og margir munkanna deyja bæði
þegar faraldurinn kemur þá og þeg-
ar hann kemur aftur 1492.“
Þrátt fyrir mikið mannfall hagn-
aðist þó klaustrið mikið á faraldr-
inum í bæði skiptin. „Fólk var að
heita á klaustrið til þess að kveða
þetta niður. Það fór aldrei illa efna-
hagslega þrátt fyrir þetta mikla
mannfall,“ segir Steinunn. „Af því að
fólk vissi ekki hvað þetta var og
trúði því bara að ef það héti á
klaustrið myndi þetta kannski
hverfa.“
Það hafi þó verið eitt af því sem
leiddi til siðaskiptanna 1550 en
klaustrinu var lokað 1551.
„Það var upphafið að þessu falli.
Fólk hætti að trúa á þetta.“
Þetta er þriðja sumarið sem
Steinunn og samstarfsfólk hennar
vinna við gröft á svæðinu, öll sumur
síðan 2018 að sumrinu 2019 und-
anskildu. „Við þurftum að taka hlé
þá, sem voru mikil vonbrigði,“ segir
hún en það sumar var ekki veitt fjár-
magn til uppgraftar í Þingeyra-
klaustri.
Eldgos og far-
aldur við Þing-
eyraklaustur
- Uppgröftur hefst að nýju eftir helgi
- Þriðja sumarið á Þingeyrum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þingeyrar Steinunn Kristjánsdóttir
fornleifafræðingur að störfum.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Borgarráð hefur samþykkt deili-
skipulag fyrir Brekknaás og Vindás í
Seláshverfi. Um er að ræða sex
óbyggðar lóðir, skammt fyrir ofan
hesthúsabyggðina í Víðidal. Þarna
verða byggð fimm tveggja hæða hús
með 12 íbúðum í hverju húsi, alls 60
íbúðir. Einnig verður byggður bú-
setukjarni fyrir fatlaða með alls sjö
íbúðum.
Svæðið sem um ræðir afmarkast
af Selásbraut, Brekknaási og Vind-
ási, og liggur sunnan við fjölbýlishús
við Vindás. Stærð þess er 1,8 hekt-
arar. Svæðið er að mestu óraskað í
dag, gróið holt með lúpínu og trjá-
gróðri. Stutt er í skóla og frístundir í
Seláshverfi og svæði hestamanna-
félagsins Fáks í Víðidal. Í næsta ná-
grenni er leikskólinn Blásalir. Sam-
kvæmt Aðalskipulagi Reykjavíkur
2010-2030 er svæðið skilgreint sem
íbúðasvæði.
Umhverfisáhrif eru talin verða
óveruleg. „Um er að ræða óbyggðan
reit í þegar byggðu hverfi, þétting-
arreitur. Sett er einnar hæðar hús
næst byggðinni við Vindás til þess að
lágmarka áhrif nýrrar byggðar á
hverfið. Skipulagið gerir ráð fyrir
blágrænum ofanvatnslausnum,“ seg-
ir m.a. í deiliskipulagstillögunni.
Tillagan var auglýst frá 2. mars
2021 til 13. apríl. Nokkrar athuga-
semdir bárust, flestar frá íbúum í ná-
grenninu. Þeir höfðu m.a. áhyggjur
af skuggavarpi, skertu útsýni og sól-
artíma á veröndum. Einnig af há-
vaða og ljósum frá bílum á bílastæði.
Íbúi í Vindási 3 telur að þessar fram-
kvæmdir muni lækka verðgildi íbúð-
anna þar sem þeirra helsti kostur sé
sólskinið og ósnortin náttúra á bak
við húsið.
Í umsögn verkefnisstjóra skipu-
lagsfulltrúa kemur fram að nýjar
byggingar muni ekki skerða sólskin
á suðurhlið Vindáss 1-3. Þá hafi verið
bætt inn í deiliskipulagið kvöð um
gróður á milli bílastæða við nýju hús-
in og Vindás til að draga úr hávaða
og ljósmengun. Leggur hann til að
deiliskipulagið verði samþykkt með
áorðnum breytingum.
Tölvumynd/Landmótun
Nýja byggðin Þarna munu rísa fimm hús með 12 íbúðum og búsetukjarni, sem sést efst til hægri á myndinni.
Nýbyggingar munu
rísa í Seláshverfinu
- Alls 67 íbúðir skammt fyrir ofan hesthúsabyggð í Víðidal
Það má segja að hljómsveitin Skíta-
mórall ræsi allar vélar þetta sum-
arið, eftir um það bil 13 mánaða
dvala. Í kvöld hitar sveitin upp fyrir
tónleika Helga Björns sem streymt
verður í beinni útsendingu frá Hót-
el Borg. Um er að ræða upptöku af
30 ára afmælistónleikum Skíta-
mórals sem haldnir voru í Hörpu í
fyrra.
„Þeir höfðu náttúrlega ekkert
spilað og eiginlega ekkert hist í 13
mánuði þegar þeir stigu á svið
þarna á Selfossi,“ segir Einar Bárð-
arson, umboðsmaður sveitarinnar,
um Kótelettuna fyrr í mánuðinum.
Gamaldags Skímó-rokk
Skítamórall sendi á dögunum frá
sér nýtt lag þar sem Einar reimar á
sig Skímó-skóna eftir langa pásu.
„Ég hef ekki samið lag fyrir
Skítamóral í um 15 ár þannig að
það verður gaman að sjá hvernig
mannskapurinn tekur í það. Lagið
heitir Innan í mér og þar er farið
aftur í þetta „old-style“-Skímó-rokk
og ról,“ segir Einar. ari@mbl.is
Skímó hitar upp fyrir
Helga Björns í kvöld
Ljósmynd/MummiLú
Aftur á svið Skítamórall á Kótelettunni á Selfossi 2021.