Morgunblaðið - 31.07.2021, Side 21

Morgunblaðið - 31.07.2021, Side 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2021 LKINUGEFÐU DAGAMUN Suðurlandsbraut 30 | 577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is G eta tvö tölvuforrit af sömu tegund orðið „ósammála“ um niðurstöður í útreikn- ingum sínum? Greinarhöf- undur var að fylgjast með seinni kappskák sjöttu umferðar heimsbik- armótsins í Sotsjí á fimmtudaginn og spennandi staða kom upp í þess- ari stöðu: Heimsbikarmót FIDE 2021; 5. umferð: Duda (Pólland) – Vidit (Indland) Vidit hafði gefið riddara fyrir þrjú peð en var kominn í vandræði vegna frelsingjans á a-línunni. Hvítur átti tvo kosti, annars vegar að leika 38. cxb4 cxb4 39. Rc7 og síðan 40. a6, eða að leika strax 38. Rxb4 cxb4 39. a6. Stockfish á Chess24 taldi það greinlega besta kostinn en Stockfish á Chessbomb var á annarri „skoðun“ og taldi stöðu hvíts lakari eftir þann leik. Hún leiðrétti sig raunar síðar. Pólverjinn valdi kröfuharðari leikinn og virtist byggja ákvörðun sína á þeirri vissu að „þungu fallstykkin“ – drottningin og hrókurinn – hlytu að sjá um sitt: 38. Rxb4 cxb4 39. a6 bxc3 40. a7 c2 41. a8(D) Hb1+ 42. Kg2 c1(D) Nú er báðir komnir með drottn- ingu og svartur á þrjú peð en þau veita ekkert skjól. 43. Ha7+ Kf6 44. Df8+ Ke5 45. He7+ Kd5 46. Df3+ Kc5 47. Hc7+ Kb4 48. Db7+ Ka5 49. Da7+ Kb5 50. Db8+ – mátið blasir við og svartur gafst upp. Með þessum sigri komst Pólverj- inn áfram og teflir við heimsmeist- arann í fjögurra manna úrslitum. Í sömu umferð vann Magnús Carl- sen báðar kappskákirnar gegn Frakkanum Etienne Bacrot. Bar- átta Magnúsar við hinn 19 ára gamla Rússa Esipenko var æsi- spennandi og eftir að kappskák- unum báðum lauk með jafntefli tók um fimm klukkustundir fá fram úr- slit í tveimur atskákum og tveimur hraðskákum. Í augnablikinu standa miklar líkur til þess að í ein- víginu um 3. sætið verði einnig teflt um sæti í áskorendakeppninni. Rússinn Vladimir Fedoseev og Íraninn Tamin Tatatabaei tefldu í gær um sætið í undanúrslitum og það gerðu einnig Sam Shankland og Sergei Tiviakov. Shankland, sem hefur alið allan sinn aldur í Bandaríkjunum, vann fyrstu skák- ina á miðvikudaginn en tapaði á fimmtudaginn. Hann hefur léttan og skemmtilegan skákstíl og náði að slá úr keppni áttfaldan Rúss- landsmeistara: Heimsbikarmót FIDE 2021; 5. umferð: Sam Shankland – Peter Svidler Kóngsindversk vörn 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. h4!? Smá sprell í byrjun tafls en Shankland vildi tefla á móti uppá- haldsbyrjun Svidlers, Grünfelds- vörninni, sem kemur upp eftir 3. Rc3 d5. 3. … Bg7 4. Rc3 d6 5. e4 Rc6 6. Rge2 0-0 7. f3 e5 8. d5 Rd4 9. Be3 Nú er skyndilega komið upp Samisch-afbrigði kóngsindversku varnarinnar. 9. … c5 10. dxc6 bxc6 11. Rxd4 exd4 12. Bxd4 Hb8 13. Dc2 c5 14. Bf2 Be6 15. 0-0-0 Rd7 16. Hxd6 Da5 17. Be1 Re5 18. f4?! Gengur beint til verks en betra var að tryggja varnirnar með 18. b3. 18 … Rxc4 19. Bxc4 Bxc4 20. e5! Hugmyndin var að loka á „kóngsindverska“ biskupinn. 20. … Hfd8 21. Hxd8 Hxd8 22. h5 Bxa2 23. hxg6 hxg6 24. Re4 Hin krítíska staða. Svidler getur haldið jafnvægi með 24. … Db5 því að drottningin valdar d7-reitinn. 24. … Db6?? 25. Bh4 Hd4 26. Rf6+ Kf8 27. Bf2! Í þessu liggur munurinn. Svart- ur er varnarlaus. 27. … Bxf6 28. exf6 Dxf6 29. Dxc5+ Hd6 30. Dc8+! – og Svidler gafst upp. Eftir 30. … Hd8 er einfaldast að leika 31. Dxd8+ Dxd8 32. Hh8+ Ke7 33. Bh4+ f6 34. Bxf6+ o.s.frv. Þungu fallstykkin sjá um sitt Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Heimasíða FIDE. Hörkubarátta Shankland t.v. og Tiviakov við taflið sl. fimmtudag. Þrátt fyrir von- brigði, baráttu og ósigra má upplifa sig- ur í nánast flestum kringumstæðum. Það er nefnilega svo ótrúlega merki- legt og þakkarvert, þrátt fyrir allt, hvað hægt er að upplifa já- kvæða hluti og öðlast djúpa og dýrmæta reynslu, jafnvel bara í sárustu aðstæðum og neyð. Í gegnum allt að því óviðunandi tíð- indi og atvik, þjáningu og stað- reyndir. Þegar þú finnur þig örvinglaðan, gersamlega máttlausan, algjörlega yfirbugaðan, rændan allri virðingu og reisn, vittu þá að þar er Guð sem elskar þig út af lífinu og mun reisa þig upp úr stundlegum van- mætti til eilífs sigurs. Allt mun verða nýtt Inni í blámanum úti við ysta haf tekur við annar heimur þar sem þér hefur verið búinn staður utan tíma, efn- is og rúms. Þar ríkir fegurð og friður, fyrirgefning og réttlæti, sumar og sátt, líf í fullri gnægð. Þú gengur á skýjum himins inn í endurnýj- un lífdaga. Þar sem allt verður nýtt og kærleikurinn, fegurðin og friðurinn vara að ei- lífu. Auðmýkt Að biðja Guð um náð og mis- kunn er ekki merki um vanmátt eða veikleika heldur styrkleika. Auðmýkt sem gott er að gangast og gagnast okkur best í lífinu. Takk Guð fyrir táknmál táranna sem glóa svo fallega í minning- unni. Tárin eru dýrðleg gjöf sem minna á miskunn Guðs á erfiðum tímum sem og á gleðistundum. Gleymum því ekki. Verið ávallt góðum Guði falin. Honum sem er höfundur og full- komnari lífsins. Með kærleiks- og friðarkveðju. – Lifi lífið! Þar er Guð Eftir Sigurbjörn Þorkelsson » Takk fyrir táknmál táranna sem glóa svo fallega í minning- unni. Tárin eru dýrðleg gjöf sem minna á mis- kunn Guðs á erfiðum tímum sem og á gleði- stundum. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Júlíana Silfá Jónsdóttir fæddist 1. ágúst 1865 á Eyrarnesi í Snæ- fellssýslu. Eftir fermingu vann hún sem vinnukona í Barðastrand- arsýslu og í Stykkishólmi, en flutt- ist síðan til Elliðaeyjar þar sem hún giftist Magnúsi Einarssyni hafnsögumanni árið 1892 og átti með honum dótturina Silvu Bryn- hildi. Hún varð ekkja tveimur ár- um síðar og fluttist þá til Reykja- víkur og lenti um vorið 1912 í slagtogi með Jóni Jónssyni sem, skv. Morgunblaðinu 17.11. 1913, þótti „fremur ófús til vinnu“ og bjuggu þau síðast á Brekkustíg 14. Skötuhjúin þóttu gefin fyrir sop- ann og var Júlíana þekkt fyrir mik- ið skap. Bróðir Júlíönu var Eyjólf- ur Jónsson, oft kallaður Eyjólfur sterki. Hann flutti til Reykjavíkur 1912 og bjó fyrst hjá systur sinni, en flutti síðan á Dúksstíg. Hann var fjáður á þess tíma mælikvarða, þótt ekki bæri hann það með sér. það kastast í kekki milli systk- inanna og sló Eyjólfur til hennar svo á henni sá. 1. nóvember 1913 finnur Eyjólf- ur miklar magakvalir og kennir um skyri sem hann hafði fengið hjá Júlíönu. Hann fer til vinnu, en það dregur af honum næstu daga og 13. nóvember deyr hann á Land- spítalanum. Böndin bárust fljótt að Júlíönu og hún gekkst við glæpn- um, en sagðist hafa keypt rottueit- ur að áeggjan Jóns. Ekki þótti full- sannað að Jón hefði lagt á ráðin um morðið á Eyjólfi. 24. apríl 1914 var Júlíana dæmd til dauða og greiðslu málskostnaðar. Dómnum var síðar breytt í ævilangt fangelsi og var Júlíana vistuð á Landakots- spítala fram að andláti hennar 15. júní 1931. Dómurinn yfir Júlíönu fyrir bróðurmorðið var síðasti dauða- dómur sem kveðinn var upp á Ís- landi. Júlíana hafði geymt fyrir hann kistil nokkurn, þar sem hann geymdi sparisjóðsbók og eitthvert lausafé. Þegar hann sækir kistilinn sér hann að bókin er horfin og eitt- hvað af peningunum. Þegar Eyj- ólfur ætlar að innheimta skuldina skilar Júlíana honum bókinni en Merkir Íslendingar Júlíana Silfá Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.