Morgunblaðið - 31.07.2021, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 31.07.2021, Qupperneq 24
Kveðja frá eig- inkonu, börnum, barnabarni og tengdadætrum Vagga, vagga, víða, fagra, undurbreiða haf, ástarblíðum blævi strokið af, vagga, vagga, allar sorgir svæf og niður þagga. Húmið hnígur hægt og blítt um endalausan geim. Stormur felldist fyrir eyktum tveim. Húmið hnígur. Hægt í öldudali skipið sígur. Aldnar vakna endurminningar, en sofna um leið; hugann dregur aldan blökk og breið. Draumar vakna; duldir þræðir upp í sálu rakna. Bernsku draumar, blíðir eins og ljúfrar móður hönd andann leiða inn í blómskrýdd lönd. Ljúfir draumar líða’ um sálu eins og heitir straumar. (Hannes Hafstein) Ágústa. Vinur minn og starfsfélagi til margra ára, Eyþór Björgvinsson, er horfinn eftir hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm. Á kveðju- stund er margs að minnast. Eyþór hafði snemma áhuga á röntgen. Síðustu árin sem lækna- stúdent vann hann á sumrin á röntgendeild Borgarspítalans. Við vissum hvor af öðrum, en okkar kynni byrjuðu ekki fyrr en í apríl 1981. Þá braut ég á mér ökklann og Kristján samstarfslæknir minn var nýkominn úr stórri aðgerð. Röntgendeildin á Landakoti var því í hálfgerðum lamasessi. Eyþór var aðstoðarlæknir á skurðdeild- inni en kom til að hjálpa okkur á röntgen og var allt sumarið. Síðan þá hefur vinátta okkar verið órjúf- anleg. Eyþór fór til Washington D.C. í sérnám. Ég fékk að njóta gest- risni hans og Ágústu þar í einni af Eyþór Björgvinsson ✝ Eyþór Björg- vinsson fæddist 31. mars 1953. Hann lést 22. júlí 2021. Eyþór var jarð- sunginn 29. júlí 2021. námsferðum mínum. Hann kom til baka júlí 1986, sem sér- fræðingur í röntgen með ísótóparann- sóknir sem undir- grein, og hóf störf á Landakoti. Það var auðvelt að vinna með Eyþóri. Sjúklingur- inn var alltaf númer eitt hjá honum. Við gengum í verk hvor annars þegar þannig stóð á. Sagt hefur verið að röntgenlæknar séu læknar lækna, því til þeirra leiti aðrir læknar með vandamál og til að ræða um rannsóknaraðferðir. Eyþór var alltaf boðinn og búinn til viðræðna, enda víðlesinn í sinni fræðigrein. Þegar stjórnendur Landakots gáfust upp á rekstrinum 1992 stofnuðu röntgenlæknar Landa- kots, sem þá voru orðnir fimm talsins, Röntgen Domus Medica. Undirbúningurinn tók eitt ár. Oft var mætt á fund fyrir klukkan sjö á morgnana til skrafs og ráða- gerða, áður en starfið á deildinni hófst. Eyþór hafði skýra sýn á því hvaða tæki væri best að hafa. Í hans huga var enginn efi um að kaupa skyldi spíral-tölvusneið- myndartæki, sem þá var ný tæknibylting í þessum rannsókn- um. Eyþór var mikill laxveiðimað- ur, og naut ég góðs af því. Árlega fékk ég miða fyrir stórum laxi, sem hann hafði sett í reykingu. Þegar ég fór utan vissi hann að ég notaði ekki tollinn, og bað mig stundum að kaupa ákveðna teg- und af koníaki í fríhöfninni, sem var sjálfsagt. Enski fótboltinn var sameiginlegt áhugamál og voru farnar nokkrar ferðir á knatt- spyrnuleiki til Englands. Eyþór studdi Everton en ég Manchester United og leiddi þetta oft til skemmtilegra samræðna. Um leið og ég þakka Eyþóri fyrir vináttu og samstarf liðinna ára, sem aldrei bar skugga á, flytj- um við hjónin Ágústu konu hans, börnum, tengdabörnum og barna- barni og öðrum ættingjum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Þorkell Bjarnason. Eftir hetjulega baráttu við ill- vígan sjúkdóm hefur kær vinur okkar nú kvatt þetta líf. Líf sem var gott líf í öllum skilningi, bæði hvað varðar fjölskyldu en einnig atorku, lífsferil og lífsgæði al- mennt. Það er sannarlega ekki gefið að geta á skilnaðarstund glaðst með sínum nánustu yfir öllu sem hefur verið áorkað á lífs- ævinni eins og Eyþór gat, ævi sem varð þó styttri en flest okkar reikna með. Eyþór var ljúfur maður og góð- ur, glaðlyndur, traustur, fé- lagslyndur og vinsæll meðal vina sinna. Hann og Ágústa hafa hald- ist í hendur svo til alla þeirra ævi en þau bundust böndum ung að árum og áttu rúm 50 ár saman. Þau eignuðust þrjú yndisleg börn og eitt barnabarn, bjuggu sér fal- leg heimili á nokkrum stöðum hér á landi sem erlendis, komu sér upp fallegum athvörfum frá amstri dagsins og ferðuðust víða, innanlands sem utan. Eyþór og Ágústa voru samstíga í lífinu og svo samrýnd að eftir var tekið. Við, ásamt Jóni Hrafnkelssyni og Margréti Björnsdóttur, sem lést langt fyrir aldur fram fyrir tveimur árum, vorum svo lánsöm að tengjast Eyþóri vinaböndum fyrir alllöngu. Þótt samveran yfir svona langt tímabil hafi verið mis- mikil á hverjum tíma, eins og gengur og gerist, voru þetta alltaf gæðastundir sem við áttum sam- an. Vinahópurinn hittist gjarnan í matarboðum eða fór saman í ferð- ir innanlands, sum okkar deildum veiðiferðum saman, önnur sum- arbústaðaferðum eða sólarlanda- ferðum og fleira mætti telja til. Stórt skarð hefur því verið höggv- ið í vinahópinn enn á ný. Eyþór var laxveiðimaður af lífi og sál og snerust sumrin hjá þeim hjónum oftast nær um þá iðju. Ágústa var að sjálfsögðu með í því sporti enda lunkinn veiðimaður sjálf. Börnin þeirra voru sömu- leiðis aldrei langt undan og hafa öll fengið veiðibakteríuna í einni eða annarri mynd. Það var ynd- islegt að sjá fjölskylduna samein- ast um laxveiði og þau áttu marg- ar og góðar stundir saman við þá iðkun; minningar um sporðaköst og annan atgang á árbökkum fal- legrar íslenskrar náttúru munu ylja um alla tíð. Okkur vinunum þótti skemmtilegt að vera með Eyþóri í veiði. Það var unun að horfa á hann kasta stönginni, köstin voru löng og falleg. Hann var einn af þeim sem „lesa árnar“, vissi alltaf hvar fiskarnir lágu og setti nánast alltaf í fisk þegar aðrir fóru fisklausir heim. Hann var óspar á leiðsögn til sér óreyndari veiðimanna, var óeigingjarn veiði- maður í holli, alltaf léttur í lund og jákvæður. Eðalmaður í alla staði. Það er erfitt að kveðja góðan vin en enn erfiðara er það fyrir fjölskylduna. Eyþór og Ágústa hafa nú farið saman í gegnum þessi erfiðu veikindi hans síðast- liðin tvö og hálft ár, hönd í hönd sem fyrr, og gefið hvort öðru styrk og kraft á þeirri leið. Á kveðjustund ríkti sátt og þakklæti fyrir þá ævi sem þau og börnin þeirra og barnabarn áttu saman. Við kveðjum góðan vin með þökk fyrir allt. Helga Hrefna Bjarnadóttir, Ásta Möller, Haukur Þór Hauksson. Fallinn frá er kær vinur og fóst- bróðir eftir hetjulega baráttu við illvíg veikindi. Kynni okkar Eyþórs hófust í 11 ára bekk í Vogaskóla. Ég hafði ekkert þekkt hann fyrir þann tíma en hafði spilað fótbolta á móti hon- um á Ljósheimavelli ásamt félaga Ólafi heitnum Angantýssyni. Strax og ég kom í bekkinn mynd- aðist með okkur Eyþóri og Óla traust vinátta. Þó þannig að tengsl okkar Eyþórs og samskipti urðu miklu meiri. Við fylgdumst að upp í menntaskóla, fórum saman á fót- bolta- og handboltaleiki, útihátíðir í Saltvík og Húsafelli og sveitaböll. Á menntaskólaárum vorum við í tíðum sendiferðum á jeppanum Mána fyrir Björgvin föður Eyþórs en hann rak útgerðarfyrirtækið Gletting í Þorlákshöfn. Þetta voru skemmtilegir tímar og gekk á ýmsu hjá okkur félögunum hvað varðar færð og veður en alltaf skil- uðum við okkur á áfangastað. Eftir menntaskóla fór hvor sína leið. Eyþór var kominn með lífs- förunaut sinn hana Ágústu og fluttu þau utan í nokkur ár til að stunda nám. Eftir heimkomu þeirra tókum við upp þráðinn sem hefur ekki slitnað síðan. Áhugamál Eyþórs fyrir utan fjölskylduna voru stangveiði og fótbolti. Um fótbolta var hann manna fróðastur og eftir að hann veiktist varð það hans helsta af- þreying að horfa fótbolta. Sameig- inlegt áhugamál okkar var veiði. Eyþór fylgdist grannt með veiði, sérstaklega í Eystri- og Ytri- Rangám, en árnar þekkti hann eins og fingur sína. Eyþór var veiðimaður af guðs náð og dellu- karl í þeim efnum. Hann las vatnið mjög vel og var með afbrigðum þolinmóður og fiskinn. Í einni ferð okkar í Eystri-Rangá ákváðum við félagarnir að vaða yfir ána hjá Stóra-Hofi og reyna vesturbakk- ann. Gerði á okkur úrhellisrign- ingu og óx mjög í ánni. Bjargaði Eyþór þá sennilega lífi mínu þeg- ar ég flaut upp á bakaleiðinni. Reif hann í öxlina á mér og dró þar til ég náði aftur botni. Hæst stendur þó í minningunni síðasti veiðitúr- inn fyrir þremur árum þegar Ey- þór bauð mér og Kristínu dóttur minni í veiði í Brynjudalsá. Þar var hann í essinu sínu og lagði sig allan fram um að Kristín myndi fá fisk. Eyþór var vinur vina sinna, traustur og lét sér annt um velferð þeirra. Hann hafði skap og festu og var baráttumaður, fylginn sér í þeim málum sem hann tók sér fyr- ir hendur. Gott var að leita til hans og mér þótti vænt um þegar hann leitaði til mín og nýtti mína þekk- ingu. Í byrjun febrúar 2019 fékk ég frá honum sms: „Sæll gamli vinur, nú gefur á bátinn, ég er kominn á gjörgæslu með bráðahvítblæði.“ Eftir þetta náði ég að heimsækja hann nokkrum sinnum en síðan kom covid og heimsóknirnar breyttust í símtöl. Vikulega hringdi ég í hann og ræddum við þá um heima og geima. Við María fengum að heim- sækja Eyþór 25. júlí sl. Ræddum við félagarnir saman stutta stund um farinn veg og góðar stundir. Þetta var notaleg stund sem við erum þakklát fyrir. Æðrulaus sagði hann mér að orrustan væri töpuð og kvöddumst við í bili. Minningar um góðan vin lifa áfram. Við María, Kristín og Halldóra Inga vottum Ágústu og fjölskyld- unni okkar innilegustu samúð. Ingileifur Einarsson. Í dag kveðjum við Eyþór Björgvinsson sem lést í liðinni viku eftir erfiða baráttu við illvíg veikindi. Leiðir okkar lágu saman þegar kynni tókust með Eyþóri Inga og Ingu dóttur okkar. Fyrir átta árum eignuðust þau Gróu Laufeyju sem varð strax auga- steinn afa síns. Eyi afi og Gróa afastelpa áttu gott samband, sem hún mun búa að alla sína ævi, missir hennar er mikill. Við hjónin munum minnast góðra stunda hjá Eyþóri og Ágústu í Brekkugerði þar sem eftir máltíðir var spjallað fram eftir kvöldi, farið yfir veiði- sögur og mögulegar samveru- stundir við straumvötn. Aðaláhugamál Eyþórs var stangveiði, sem þau Ágústa stund- uðu saman. En nú hefur Eyþór kvatt þegar veiðitímabil straum- vatna er í hámarki og líklega taka aðrar veiðislóðir á móti honum. Við þökkum fyrir samveruna og minnumst þess að hann var alltaf til staðar ef aðstoðar var þörf. Minningar um gæsku og ljúft við- mót munu fylgja okkur og einnig afastelpunni. Við sendum samúð- arkveðjur til Ágústu og allra í fjöl- skyldum þeirra hjóna. Guðrún og Rúnar. Kær vinur, granni og félagi, Eyþór Björgvinsson, er fallinn frá eftir erfið veikindi. Fyrir fjölmörgum árum stofn- uðum við grannaklúbb, fern hjón í Brekkugerðinu. Klúbburinn fékk nafnið Brekkusniglar og var nefndur í höfuðið á götunni okkar. Fyrstu árin fórum við í nokkurra daga veiðiferð í Langá á Mýrum. Í þessum ferðum voru þau hjón Eyþór, ásamt sinni ástkæru Ágústu, yfirleitt fengsælust. Flottari veiðmann var vart hægt að finna. Smám saman breyttust Brekkusniglarnir í ferðaklúbb og var þá farið í nokkurra daga skipulagða ferð á áhugaverða staði innanlands. Næsta ferð átti að vera ferð um Austurland, en hún frestaðist vegna veikinda Ey- þórs og verður núna aldrei farin. Á veturna var skipst á að halda matarboð með góðum guðaveig- um. Brekkusniglar kveðja nú yndislegan félaga og vin, hæv- erskan og hvers manns hugljúfa. Við munum ætíð sakna hans og mun hópurinn ekki vera samur eftir brottför hans. Við biðjum guð um styrk Ágústu til handa svo og börnun- um og litlu Gróu ásamt fjölskyld- unni allri sem nú horfir á eftir yndislegum syni, maka, pabba, afa og tengdaföður. Með þökk fyrir allar frábæru samverustundirnar. Eiríkur og Þórhildur, Hreinn og Guðrún, Björn og Helga Lára. Í dag kveð ég minn góða vin, Eyþór. Við kynntumst gegnum eiginkonur okkar um það leyti sem læknanáminu var að ljúka. Margt var á döfinni á þessum ár- um. Við að stofna fjölskyldu og stefndum á sérnám. Þá skildi leið- ir um hríð. Hann fór með fjöl- skyldu sinni vestur til Bandaríkj- anna en ég fór til Svíþjóðar með minni. Þrátt fyrir það hélst sam- bandið. Á þeim tíma voru skrifuð sendibréf til að segja frá því helsta, fjölskyldu og námi en ferð- ir til Íslands voru fátíðar. Eftir að heim var komið varð sambandið aftur nánara. Eyþór varð röntgenlæknir og starfaði lengst af í Röntgen Dom- us Medica. Hann var góður lækn- ir og ávallt boðinn og búinn að leysa úr vandamálum ef á þurfti að halda. Hann var alltaf jákvæð- ur, glaðlegur og hjálpsamur. Gegnum árin fórum við saman í ferðir með fjölskyldunum og vin- um bæði innanlands og erlendis. Eyþór var alla tíð mikill veiðimað- ur, hafði alist upp við veiðar frá blautu barnsbeini. Við fórum saman í ótal veiðiferðir og oft voru eiginkonur okkar með í för. Áhug- inn var mikill og það var ekki hægt annað en að smitast af þeim áhuga. Að standa á árbakkanum á sumardegi í íslenskri náttúru og renna fyrir lax, það voru hans sælustundir. Önnur áhugamál voru fótboltinn og bóklestur og þá aðallega lestur spennusagna og skiptumst við oft á bókum. Í byrjun árs 2019 veiktist Ey- þór af alvarlegum sjúkdómi sem hefur nú lagt hann að velli. Þetta hefur verið erfiður tími fyrir hann og fjölskylduna. Í veikindum sín- um sýndi Eyþór einstakt æðru- leysi. Hann var líka lánsamur að eiga góða fjölskyldu sem studdi hann á allan hátt. Í byrjun júlí átt- um við Eyþór góða stund saman þegar við horfðum á leik í Evr- ópukeppninni í fótbolta og Ágústa eldaði fyrir okkur dýrindiskvöld- mat. Stundin var góð en í svona aðstæðum getur enginn verið al- veg sáttur. Hann átti gott líf, sagði mér það sjálfur þegar við kvöddumst. Vildum báðir að það hefði orðið lengra. Minningar um góðan vin lifa. Ágústu, börnunum og fjölskyldum þeirra votta ég innilega samúð. Jón Hrafnkelsson. HINSTA KVEÐJA Vinur okkar og félagi, Eyþór Björgvinsson, er lát- inn langt fyrir aldur fram. Í áratugi var hann félagi í hinum víðkunna lækna- bolta klukkan átta á laug- ardagsmorgnum í Ásgarði, Garðabæ. Það var alltaf gott að vera með Eyþóri í liði, þar sem hann var keppnismaður. Við félagar hans og koll- egar kveðjum hann með söknuði, hans skarð er vandfyllt. Okkar innileg- ustu kveðjur sendum við fyrir hönd félaga okkar í klúbbnum, til Ágústu, Ólínu, móður hans og barna. Uggi Agnarsson og Björgvin Bjarnason. 24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2021 Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Okkar ástkæri ÁGÚST ÞÓRARINSSON húsasmíðameistari, Rauðalæk 73 í Reykjavík, lést á Grund föstudaginn 9. júlí. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 3. ágúst klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á bit.ly/ath80. Hjartans þakkir fá starfsmenn Fríðuhúss og Vegamóta á Grund fyrir ást og umhyggju. Þeim sem vilja minnast Gústa er bent á minningarkort Alzheimersamtakanna og Grundar. Sigríður Hanna Jóhannesdóttir Ebba G. Guðmundsdóttir Hafþór Hafliðason Jóhannes Þór Ágústarson Ragnhildur Lilja Ásgeirsdóttir Hanna Hulda, Hafliði, Embla María og Hrafnhildur Freyja Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, KRISTINS KRISTINSSONAR húsasmíðameistara, Álfhólsvegi 104. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Grensásdeildar og á hjúkrunarheimilinu Mörk fyrir hlýhug og góða umönnun. Ásdís Þórarinsdóttir Sigrún Kristinsdóttir Hinrik Már Ásgeirsson Kristinn Gunnar Kristinsson Margrét Jóna Gestsdóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.