Morgunblaðið - 31.07.2021, Side 33

Morgunblaðið - 31.07.2021, Side 33
Margir gleðjast nú yfir árangri Breiðabliks eftir að lið- ið sló út félag með mikla hefð, Austria Wien. Skiljanlega. Næsti andstæðingur er Aber- deen sem eitt sinn varð Evr- ópumeistari bikarhafa undir stjórn sir Alex Fergusons. Á þeim árum dróst Aberdeen tví- vegis á móti ÍA og kemur nú aftur til Íslands. Ég legg til að forystufólk í KSÍ beiti sér fyrir því á vettvangi UEFA að notast verði við gamla fyrirkomulagið í Evrópukeppn- um á nýjan leik. Landsmeist- arar fari í Evrópukeppni meist- araliða og bikarmeistarar í Evrópukeppni bikarhafa. Eina undantekningin væri að sigur- vegarar í keppnunum gætu tek- ið aftur þátt í þeim. Liðin sem lenda ofarlega í deildakeppnum fara í Evrópukeppni félagsliða. Útsláttarfyrirkomulag í ætt við bikarkeppni. KSÍ hefur svo sem farnast ágætlega án þess að ég sé að stjórnast í því en ég held að minni þjóðir ættu að kasta þessu fram. Með þessu myndi aftur opnast tækifæri fyrir smáþjóðir eins og okkur að fá sigursælustu lið Evrópu í heim- sókn. Barcelona, Real Madríd, Juventus, Benfica og Liverpool mættu íslenskum liðum á árum áður í Evrópukeppnum. Einnig lið eins og Dynamo Kiev, Köln, Gladbach, Sporting Lissabon, Mónakó og Aston Villa sem þá voru með þeim bestu í Evrópu. Nýlega var því mótmælt mjög að til yrði ný keppni þar sem drifkrafturinn var von um auk- inn hagnað og fleiri leiki. Fyrst mönnum misbýður það þá mætti alveg eins breyta Meist- aradeildinni þar sem drifkraft- urinn var svipaðs eðlis þótt þessar keppnir séu ekki sam- bærilegar. Mér hefur aldrei fundist eðlilegt að lið geti orðið Evrópumeistari meistaraliða án þess að verða meistari í heima- landinu. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is ÍÞRÓTTIR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2021 Í ÁRBÆNUM Kristján Jónsson kris@mbl.is Þegar júlí er að renna sitt skeið er Valur með fjögurra stiga forskot í efsta sæti Pepsí Max-deildar kvenna í knattspyrnu. Munurinn á Val og Breiðabliki jókst í vikunni eftir að Þór/KA og Breiðablik gerðu jafntefli og í gær vann Valur stórsigur á Fylki í Árbænum 5:1. Barátta Vals og Breiðabliks um Íslandsmeistaratitilinn gæti orðið bráðskemmtileg. Þau eiga eftir að mætast í Smáranum og kapp- hlaupið er því ansi opið. Ekki er langt í þá viðureign en hún er fyr- irhuguð hinn 13. ágúst. Fram undan er mikil barátta hjá Fylki um að halda sætinu í deild- inni. Í gegnum árin hefur liðið nokkrum sinnum sveiflast á milli efstu og næstefstu deildar og hjá félaginu vill fólk væntanlega sjá meiri stöðugleika. Liðið er með jafn mörg stig og Keflavík og tveimur á eftir Tindastóli. Stiga- söfnunin hjá liðunum er ekki slæm í sögulegu samhengi og verður áhugavert að sjá hversu mörg stig mun þurfa til að halda sætinu í deildinni. _ Mist Edvardsdóttir skoraði fyrstu tvö mörk Vals í leiknum þótt hún hafi leikið sem miðvörður. Þegar liðin mættust á sama velli í fyrra skoraði Mist fjögur mörk. Hefur þar af leiðandi skorað sex mörk í síðustu tveimur leikjum gegn Fylki á útivelli. _ Katrín Vala Zinovieva kom inn á hjá Fylki í gær og lék sinn fyrsta leik í deildinni í sumar en Katrín fæddist árið 2004. Hún lék einn leik í deildinni í fyrra. Morgunblaðið/Unnur Karen Í Lautinni Ásdís Karen Halldórsdóttir skoraði fjórða mark Vals. Forskotið á toppnum jókst - Mist raðar inn mörkum í Árbænum FYLKIR – VALUR 1:5 1:0 Bryndís Arna Níelsdóttir 5. 1:1 Mist Edvardsdóttir 13. 1:2 Mist Edvardsdóttir 15. 1:3 Cyera Hintzen 17. 1:4 Ásdís Karen Halldórsdóttir 77. 1:5 Elín Metta Jensen 90. MM Mist Edvardsdóttir (Val) Dóra María Lárusdóttir (Val) M María Eva Eyjólfsdóttir (Fylki) Helena Ósk Hálfdánardóttir (Fylki) Mary Vignola (Val) Lára Kristín Pedersen (Val) Ásdís Karen Halldórsdóttir (Val) Dómari: Aðalbjörn H. Þorsteinsson – 7. Áhorfendur: 79. FRJÁLSAR Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Guðmundur Karlsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari og Íslandsmethafi í sleggjukasti, fylgdist grannt með þegar Guðni Valur Guðnason keppti í kringlukasti á Ólympíuleikunum í Tókýó aðfaranótt föstudags. Guðni Valur fékk þrjú köst en öll voru þau ógild og hann því úr leik. „Þetta er auðvitað mjög viðkvæmt þegar maður er með þrjú köst. Kalt metið fannst mér þetta vera svona „allt eða ekkert“ hjá honum við að reyna að ná inn í úrslitin. Hann lét svolítið vaða á þetta. Séð utan frá var spennustigið kannski aðeins of hátt og þá detta svona tæknileg smáatriði aðeins út, en þetta var bara hárfínt framhjá. Ég held að ef hann hefði komið fyrsta kasti sínu inn í geira þá hefði það verið með nokkru afli í og þá nokkurn veginn nógu langt til þess að eiga séns á því að komast inn. Svo þegar það eru 16 keppendur og þú bíður eftir öðrum 15 að kasta kasti númer tvö, þú hefur bara þrjú köst, þá minnkar spennustigið ekkert á milli og menn hafa kannski ekki náð að höndla það,“ sagði Guðmundur við Morgunblaðið en hann starfar nú sem framkvæmdastjóri Frjáls- íþróttasambands Íslands. Guðni Valur var eini frjáls- íþróttamaður Íslands á leikunum og sagði Guðmundur að því hefði vit- anlega fylgt aukin pressa. „Þetta er náttúrlega svolítið áberandi þegar við erum bara með einn keppanda, þegar það gengur ekki upp hjá hon- um. Það er voða erfitt að setja eitt- hvað beint út á þetta. Þetta er svolít- ið svona „stöngin inn, stöngin út“. Hann setti allt í þetta og það gekk bara ekki í þetta sinn. Það þarf ein- faldlega að vinna aðeins með það og greina hvað fór úrskeiðis og hvað má betur fara í framhaldinu.“ Erum langt á eftir Keppendur fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikum hafa ekki verið jafn fáir síðan á leikunum árið 1964, sem fóru einmitt einnig fram í Tókýó. Þá, líkt og í ár, voru keppendur aðeins fjórir. Hvað þarf að laga til þess að fjölga íslenskum keppendum á Ól- ympíuleikum og öðrum stórmótum? „Það er ansi margt. Í rauninni er þetta samspil afreksstefnu, stefnu stjórnvalda, samþykki samfélagsins fyrir því að setja aukinn kraft í íþróttirnar, mannvirkja og aðstöðu sem þarf að verða miklu betri til þess við getum átt einhvern séns. Þegar maður hefur kynnt sér hvað er í gangi í löndunum í kringum okk- ur sést að við erum langt á eftir. Við þurfum einhvers staðar að fara að stíga niður fæti og taka næstu skref í þessu jákvæða upphafi sem við höfum t.d. gert með afreks- sjóði ÍSÍ, í sameiningu með ÍSÍ og stjórnvöldum,“ sagði Guðmundur. Aðstaðan til skammar Hann sagði þó morgunljóst hvert helsta vandamálið væri. „Grunn- urinn að þessu öllu, svo ég tali út frá frjálsum íþróttum, er að mann- virkjamálin og aðstaða okkar á höf- uðborgarsvæðinu er til skammar. Hún er raunverulega engin í frjálsum í dag. Laugardalshöllin er allt of mikið bókuð í alls konar við- burði og aðgengið þar er ekki eins og við myndum vilja hafa það,“ sagði Guðmundur og tók dæmi um að ekki væri hægt æfa né keppa á Laugar- dalsvelli og að Mjóddin væri ekki enn tilbúin. Sagði hann að eigi upp- bygging að geta átt sér stað í hvaða íþrótt sem er þyrfti almennileg að- staða einfaldlega að vera til staðar, og að hluti af því væri að geta haft yfir að ráðafagteymum ýmiss konar sem íþróttafólk gæti gengið að sem vísum og leitað til. „Mér finnst að það þurfi að móta þessa framtíðarsýn og setja okkur einhvers konar stefnumörkun þar sem kemur fram hvenær við ætlum að gera ákveðna hluti. Menn hafa rætt svissneska módelið og norska módelið. Í raun þurfum við að fara í þessa átt og það er það sem við vilj- um gera,“ sagði hann og bætti að lokum við að nú þyrfti einfaldlega að halda áfram og reyna að fjölga í hópi afreksíþróttafólks. „Við horfum alveg björtum augum til framtíðar hvað það varðar en þeir aðilar okkar sem eiga kannski mestu möguleikana þurfa því miður að vera töluvert í útlöndum til þess að æfa,“ sagði Guðmundur Karlsson. Allt eða ekkert hjá Guðna - Þörf á skýrri afreksstefnu - Aðstaða frjálsíþróttafólks í ólestri AFP Tókýó Guðni Valur Guðnason kastar á Ólympíuleikvanginum. Tvö fyrri köstin voru ógild og það þriðja það stutt að hann gerði það ógilt sjálfur. Alfreð Gíslason og þýska karla- landsliðið í handknattleik stigu stórt skref í átt að átta liða úrslit- unum á Ólympíuleikunum í Tókýó í dag með því að vinna sannfærandi sigur á Norðmönnum, 28:23. Þar með eru bæði Noregur og Þýska- land með fjögur stig fyrir loka- umferðina en Brasilía er með tvö. Aron Kristjánsson hafði betur í uppgjörinu við Dag Sigurðsson þegar íslensku þjálfararnir mætt- ust. Barein vann Japan 32:30 og er með 2 stig, jafnmörg og Portúgal, en Japan er án stiga. sport@mbl.is Mikilvægur sigur fyrir Alfreð AFP Spenntur Alfreð fylgist með á hlið- arlínunni á Ólympíuleikunum. Selemon Barega, 21 árs gamall Eþí- ópíumaður, fékk fyrstu gull- verðlaun frjálsíþróttakeppninnar á Ólympíuleikunum í Tókýó í gær þegar hann sigraði í 10.000 metra hlaupi á 27;43,22 mínútum. Úg- andamennirnir Joshua Cheptegei og Jacob Kiplimo voru báðir um hálfri sekúndu á eftir honum. Barega er aðeins 21 árs en hefur verið í fremstu röð og fengið gull- verðlaun á heimsmeistaramótum unglinga, bæði í flokkum U18 og U20 ára, og þá fékk hann silfur á HM fullorðinna í Katar 2019. Ungur Eþíópíu- maður sá fyrsti AFP Vann Selemon Barega hleypur með eþíópíska fánann eftir sigurinn. Suðurafríska sundkonan Tatj- ana Schoenmaker setti í gær nýtt heimsmet í 200 metra bringu- sundi þegar hún varð ólympíu- meistari í grein- inni í Tókýó. Schoenmaker sló ólympíumetið í undanúrslitunum þegar hún synti á 2:19,16 mínútum. Í úrslitasundinu gerði hún enn betur og sló heims- metið með frábærum endaspretti og synti á 2:18,95 mínútum. Hún er fyrsta suðurafríska konan sem fær ólympíugull í sundi á þessari öld en Schoenmaker var áður búin að fá silfur í 100 metra bringusundinu. Emma McKeon frá Ástralíu sigr- aði í 100 metra skriðsundi á ólympíu- meti, 51,96 sekúndum. Sjötta gull Ástrala í sundinu á þessum leikum. Heimsmeistararinn Evgeni Rilov frá Rússlandi fékk sitt annað gull á leikunum þegar hann sigraði í 200 metra baksundi en hann hafði áður unnið 100 metra baksundið. Rilov setti ólympíumet og synti á 1:53,27 mínútum. sport@mbl.is Heimsmet féll í sundinu í Tókýó Tatjana Schoenmaker

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.