Morgunblaðið - 31.07.2021, Blaðsíða 12
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
A
ugu heimsins beinast nú
að Ólympíuleikunum í
Tókýó í Japan þar sem
þúsundir íþróttamanna
frá 206 þjóðum mættu til leiks. Yf-
irbragð leikanna er þó talsvert ann-
að nú en venjulega vegna sóttvarna,
grímuskyldu og annarra sóttvarna.
„Samt er þó margt svipað og
áður, svo sem andinn í Ólympíu-
þorpinu; blönduð menning, skreyt-
ingar á byggingum og sjálf íþrótta-
keppnin. Því er sorglegt að sjá
áhorfendastúkurnar í glæsilegum
íþróttamannvirkjum hér standa
auðar. Ég hef farið á Ólympíuleika
frá 2004, en þessir eru sérstakir
vegna þeirra reglna og takmarkana
sem gilda nú,“ segir Andri Stef-
ánsson, aðalfararstjóri íslenska
hópsins í Tókýó.
Óháð styrjöldum
Skilaboð Ólympíuleika gagn-
vart heiminum eru margvísleg.
Kjörorð Ólympíuhreyfingarinnar
hafa verið hraðar – hærra – sterkar
– og nú er búið að bæta við orðinu
saman. Upp á latínu eru þessi kjör-
orð Citius, Altius, Fortius – Comm-
uniter.
„Með orðinu saman sem viðbót
er fest í sessi að við getum náð
framförum, það er farið hraðar,
hærra eða orðið sterkari, með sam-
vinnu. Slíkt bindur aðra þætti sam-
an og gerir það ómögulega gerlegt,“
segir Andri. „Boðskapur Ólympíu-
leikanna er líka sá að hér eru allir
saman, óháð þeim styrjöldum sem
háðar eru víða um heim. Friðar-
boðskapur er líka nátengdur leik-
unum, því til forna gilti að meðan á
Ólypíuleikum í Grikklandi stóð
skyldi friður ríkja meðal þjóða. Ól-
ympíuleikarnir eiga áfram rétt á sér
og með aukinni tækni og þróun í
fjölmiðlum tel ég að fleiri muni
fylgjast með þeim í framtíðinni, þó
slíkt verði á annan hátt en verið hef-
ur.“
Þjóðir starfa saman
Íslendingarnir á Ólympíu-
leikunum hafa aðsetur í byggingu
þar sem Danir, Norðmenn, Suður-
Afríkumenn, Indverjar, Venesúela-
menn og hluti Íra eru einnig búsett-
ir. Fararstjórar Norðurlandanna
leita til hver annars um ráð og að-
stoð sé þess þörf, en þó er reynt að
halda samgangi og blöndun í lág-
marki.
„Ólympíuþorpið er einstakt
samfélag. Hér er allt til alls og
hugsað vel um þarfir þátttakenda.
Hér er gisti- og mataraðstaða, en
einnig þvottahús, hárgreiðslustofa,
snyrtistofa, verslun með nauðsynja-
vöru, fatahreinsun, skósmiður,
banki, pósthús, flutningamiðlun,
blómabúð og svo mætti áfram
telja,“ segir Andri og heldur áfram:
„Í Ólympíuþorpinu vinna minni
þjóðir oft með þeim stærri og sækja
þannig þjónustu og reynslu til sinna
nágranna. Ísland hefur aðgengi að
þjálfara í skotfimi sem er að vinna
fyrir Eista og að öðrum sem er á
vegum Finna. Þjálfari Antons
Sveins McKee sundmanns sinnir
einnig keppendum Singapúr og
fleiri þjóða. Fjölbreytni er einnig
áberandi þegar horft er til þeirra
íþróttagreina sem keppt er í. Hér
eru hávaxnir og lágvaxnir, litlir og
stórir, ungir og gamlir og allir geta
verið framarlega í sinni íþróttagrein
og jafnvel unnið til verðlauna. Þá
eru fylgdarmenn og -konur oft fyrr-
verandi ólympíufarar og jafnvel
verðlaunahafar. Þetta er ótrúlegt
umhverfi.“
Viðhorf Japana jákvæð
Viðhorf Japana gagnvart Ól-
ympíuleikunum segir Andri al-
mennt vera jákvæð. Þeir sem eru
sjálfboðaliðar á leikunum séu
hjálpsamir. Honum þykir áberandi
hve gestgjafarnir eru kurteisir, já-
kvæðir, velviljaðir og áfram um að
allir njóti viðburðarins.
„Við getum verið þakklát fyrir
að leikarnir eru haldnir í Tókýó.
Ég hygg að fáar þjóðir hefðu að
teknu tilliti til aðstæðna ráðið jafn
vel við verkefnið og Japanir gera,“
segir Andri sem kom austur til
Japans nokkru áður en Ólympíu-
leikarnir hófust og verður á svæð-
inu eitthvað fram yfir lok þeirra,
sem er á sunnudaginn í næstu
viku, 8. ágúst. Hluti af íslenska
hópnum er nú þegar farinn heim
og fleiri fara á næstu dögum. Mið-
að er við að íþróttafólk sé farið úr
þorpinu innan 48 stunda frá því að
keppni í þeirra grein lýkur, sbr.
reglur sem settar voru vegna
Covid-19.
Boðskapur samvinnu og friðar
AFP
Fimleikar Kanadíska stirnið Brooklyn Moors er fulltrúi þjóðar sinnar á ÓL og hefur þar sýnt mikla fimi.
Ólympíuþorpið er einstakt samfélag, segir Andri
Stefánsson sem er aðalfararstjóri Íslendinga á ÓL í
Tókýó. Framkvæmd leikanna, sem heimurinn allur
fylgist með, þykir hafa tekist vel hjá Japönum.
Fararstjóri Ólympíuleikar án áhorfenda og sorglegt að sjá áhorfendastúk-
urnar í glæsilegum íþróttamannvirkjum auðar, segir Andri Stefánsson.
Handbolti Íslendingar eru þjálf-
arar fjögurra liða á ÓL. Í efri röð
t.v. er Dagur Sigurðsson, sem þjálf-
ar karlalandslið Japans, til hægri
Þórir Hergeirsson, þjálfari kvenna-
lið Noregs. Í neðri röð er Alfreð
Gíslason, til vinstri, þjálfari karla-
liðs Þýskalands, og Aron Krist-
jánsson sem stýrir liði Bareins.
AFP
Tilþrif Snerpa og hraði í leik Spánverja og Argentínumanna í C-riðli í körfubolta. Leiknin er lyginni líkust.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2021
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Keppendur Íslands á Ólympíuleikunum í
Tókýó eru nú aðeins fjórir en áratugir eru
síðan þeir hafa verið jafn fáir. Margt kem-
ur þar til, segir Andri, sem telur mikla
einföldun að segja heimsfaraldur alfarið
orsökina. Halda beri til haga að lágmörk
og kröfur alþjóðasérsambanda hafi breyst
og nú sé miklu erfiðara en áður vinna sér
þátttökurétt á ÓL. Í dag séu ekki til B-
lágmörk í frjálsíþróttum eða sundi. Ísland
eigi því mun minni möguleika á sama
fjölda keppenda og áður var.
„Árangur Íslendinga mætti alveg vera
betri, enda viljum við alltaf að okkar
keppendur nái sem lengst,“ segir Andri.
„Íþróttaþingi ÍSÍ 2021 var að hluta til
frestað fram á haust en þar var afreks-
stefnan til umræðu og í mótun. Aðrar
þjóðir hafa verið að gefa í gagnvart af-
reksíþróttum og við Íslendingar þurfum
tvímælalaust að endurskoða okkar
áherslur þar.“
Viljum að okkar keppendur nái sem lengst
FJÓRIR ÍSLENDINGAR Á ÓL ÞAR SEM ER ERFIÐARA EN ÁÐUR AÐ VINNA SÉR KEPPNISRÉTT
Sund Einn íslensku keppendanna á Ólympíuleikunum að þessu sinni var
Anton McKee sem náði 24. sæti í keppni í 200 metra bringusundi.