Morgunblaðið - 31.07.2021, Síða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 2021
Rúna er farin,
með brosið sitt
blíða og blikið í
augunum. Hún var
kær frænka og mik-
ill húmoristi sem
bar með sér að vera frá ætt-
aróðalinu Holti í Þistilfirði þótt
hún væri sannarlega Reykvík-
ingur og heimskona. Móðir
hennar og amma mín voru syst-
ur. Við frænkur áttum skemmti-
legt samband síðustu ár í gegn-
um Busku, íslenska hundinn
hennar, sem er einstakur; fal-
legur og góður eins og eigand-
inn. Ég fékk að passa hana
nokkrum sinnum og ávallt var
launað með heimsókn og höfð-
inglegum gjöfum sem Rúna valdi
af rómaðri smekkvísi. Silfur-
hring á ég sem Rúna smíðaði og
færði mér fyrir pössun eitt sinn
og hann ber ég með stolti og
gleði. Brynjar minn vann farsæl-
lega með Rúnu að grafískri út-
færslu á Njáluverkefni og alltaf
var fagmennska og fegurð í fyr-
irrúmi í öllum hennar verkefn-
um. Þá var hún pabba mínum
ómetanleg stoð og stytta í hönn-
un og umbroti Þorna og þistla,
kvæðakvers hans sem út kom
þegar hann var sjötugur árið
2010. Rúna var orðvör og fátöluð
um sjálfa sig en vildi alltaf allt
fyrir alla gera. Synir hennar eru
elskaðir og dáðir enda bæði fal-
legir og góðir eins og móðirin.
Það var gaman að eiga þátt í
leynimakki þeirra bræðra þegar
Rúna varð sextug fyrir tveimur
árum. Þá fór hún til Palla í
Seattle en vissi ekki að Nonni
kom Busku í orlof til mín svo
hann gæti farið líka og komið
mömmu sinni á óvart. Það tókst
svo sannarlega og gleðin var við
völd! Mikill er missir þeirra og
fjölskyldunnar allrar. Engin orð
geta lýst þeim harmi, engin orð
geta huggað núna. En við sem
þekktum Rúnu minnumst henn-
ar með kærleika og djúpu þakk-
læti og við það eitt að hugsa um
hana verður heimurinn betri um
stund.
Steinunn Inga Óttarsdóttir.
Árin sem við áttum daglega
saman að sælda, Rúna og ég, eru
hulin mósku fjarlægðar, en svo
kvikna augnablikin, sem ná allt
aftur til þess er við lékum okkur
í garðinum við steininn sem kall-
aður var hesturinn, þar sem
hægt var að finna fjögurra laufa
smára. Siggi, bróðir hennar, var
náttúrlega með líka, við vorum
Guðrún
Þórisdóttir
✝
Guðrún Þór-
isdóttir fæddist
10. júlí 1959. Hún
lést 13. júlí 2021.
Útför Rúnu fór
fram 22. júlí 2021.
með „drossíuna“,
sem var lítið tré-
bretti með fjórum
hjólum. Þá vorum
við lítil, kannski á
fjórða ári, en síðan
breyttust garðarnir
í margvíslega
heima, neðansjávar
eða út í geim, hvert
sem hugurinn bar
okkur. Við sungum
„sí lovs jú je je je“ á
tréstiganum og nokkrum árum
síðar var barist sumarlangt,
stúdentar gegn lögreglu. Svo
leið að stofnun fræðafélagsins;
settar voru upp skólastofur í
görðum og jafnaldrar jafnt sem
kímileitir fullorðnir fengu upp-
fræðslu í náttúrufræðum og öðr-
um raunvísindum, að hætti
ungra beturvita. Rúna var þó oft
inni þegar við hin vorum úti í
„hasar“. Það var kannski eitt af
því sem einkenndi hana, nostur
og alúð; hún vann vel, var metn-
aðargjörn í góðri merkingu orðs-
ins, fékk háar einkunnir, list-
feng, handverk og teikning lá
fyrir henni, sem leiddi hana á
braut auglýsingateikningar og
hönnunar. Áhuginn, sem hún
sýndi smíðaborði móður minnar,
varð til þess að mamma bauð
henni tilsögn, sem varð að ein-
hverjum skiptum. Á þetta minnt-
ist Rúna löngu síðar, þegar hún
fór einnig að vinna í silfur. Rúna
var fagurkeri. Þegar ég heim-
sótti hana sárþjáða við sjúkra-
beðinn sá ég að hún hvessti sjón-
ir í gegnum lyfjaþokuna og tók
inn símunstrið á mussunni
minni, ættað frá Masaí-þjóðinni í
Afríku. Mér hlýnaði um hjartað
og hugsaði um hvað hugurinn er
sterkur, skapandi og listrænn.
Svona geta mennirnir verið, og
svona var hún Rúna mín, leik-
systir mín.
Ásdís Thoroddsen.
Heimur barna einskorðast
gjarnan við þeirra næsta ná-
grenni. En þegar ég fór í tíu ára
bekk í Laugarnesskóla urðu
straumhvörf og veröldin stækk-
aði alla leið upp á Vesturbrún.
Aðdráttaraflið voru nýju vinirnir
í bekknum, tvíburarnir Rúna og
Siggi Þórisbörn, Auður Möller
og Ásdís Thoroddsen. Vinir fyrir
lífstíð, þráðurinn á milli okkar
spunninn úr tærleika og hispurs-
leysi æskuvináttunnar. Tíminn
leið áfram í endalausu spjalli á
leiðinni úr og í skólann, nýjum
uppgötvunum og sniðugum
uppátækjum; við stödd á þeim
tíma þegar taktur lífsgöngunnar
er sleginn.
Rúna var alin upp í skapandi
umhverfi þar sem handverk var í
hávegum haft, dóttir kennar-
anna okkar í Laugarnesskóla,
Herborgar Kristjánsdóttur
handavinnukennara, og Þóris
Sigurðssonar teiknikennara.
Fallega heimilið þeirra á Vest-
urbrún 6 stóð alltaf opið og eldri
systur þeirra Sigga furðanlega
umburðarlyndar við okkur
krakkana. Rúna ávaxtaði listavel
þá hæfileika sem hún fékk í
vöggugjöf, augljóst að hún
myndi velja sér skapandi vett-
vang í lífinu, hugmyndarík, upp-
finningasöm og vandvirk. Allt
lék í höndum hennar.
Rúnu fylgdi alltaf léttleiki og
gleði, enda var hún með ríka
kímnigáfu og auga fyrir því
skemmtilega í tilverunni. Fáguð
og tilgerðarlaus, hlý og bar
raunverulega umhyggju fyrir
öðru fólki. Það fékk ég oft að
reyna. Hún sagði skemmtilega
frá, en hafði meiri áhuga á að
hlusta á aðra en að segja frá
sjálfri sér. Meiri áhuga á að gefa
en þiggja.
Líf Rúnu hverfðist í kringum
synina tvo, Nonna og Palla, sem
veittu henni svo mikla ást og
gleði. Þeir umföðmuðu mömmu
sína – rétt eins og hún þá. Þeir
hafa erft hennar miklu mann-
kosti. Hugur minn er hjá þeim
tveimur og systkinum hennar –
þegar klippt er svo harkalega á
lífsþráð einstakrar vinkonu.
Guðrún Nordal.
Manni verður eiginlega orða
vant við að reyna að meðtaka þá
ósanngjörnu og illskiljanlegu
staðreynd að hún Rúna skuli
vera fallin frá, langt fyrir aldur
fram. Það er svo andstætt öllu
sem eðlilegt getur talist. Ég
minnist Rúnu með mikilli eft-
irsjá og hlýju. Við kynntumst ár-
ið 1979 þegar við hófum saman
nám við Myndlista- og handíða-
skóla Íslands. Að loknu undir-
búningsári fórum við bæði í aug-
lýsingadeild, þar sem við
lærðum grafíska hönnun, en það
ágæta heiti hafði ekki fest sig í
sessi á þessum árum. Hópurinn
sem hóf nám í auglýsingadeild-
inni árið 1980 var óvenju stór
miðað við það sem verið hafði ár-
in á undan. Þetta var samheldinn
hópur skemmtilegra og ólíkra
einstaklinga sem gekk undir
nafninu Hin fjórtán fræknu.
Rúna sýndi strax frá byrjun að
hún bjó yfir miklum hæfileikum
á sínu sviði. Henni var listrænt
auga í blóð borið. Næmi hennar
fyrir litum og formi var óvenju-
legt og sérstakt. Hlátur hennar
var bráðsmitandi og alltaf gott
og gaman að vera þar sem hún
var nærri. Hún fór ekki um með
miklum látum, heldur einkenndi
látleysi, mýkt og húmor fas
hennar, öðru fremur. Ekki man
ég nákvæmlega hvað varð til
þess að til varð fjögurra manna
grúppa innan nemendahópsins
sem kallaði sig MORR-hópinn.
Heiti hans voru upphafsstafir
okkur fjögurra sem í honum
voru; Magnúsar, Oddnýjar,
Ragnars og Rúnu. Við brölluðum
margt skemmtilegt saman í
þessum hópi og héldum
skemmtileg partí á ýmsum stöð-
um. Eitt af því sem við tókum að
okkur var gerð sjónvarpsauglýs-
ingar fyrir tískuvöruverslun. Það
var mikið ævintýri og sýndi
Rúna í þeirri vinnu að hún hefði
getað orðið góður leikstjóri eða
listrænn stjórnandi. Hún var bú-
in að sjá þetta allt fyrir og var
ekki lengi að hóa saman góðum
hópi fólks til að taka þátt í þessu
með okkur. Það eru þakkarverð
forréttindi og lán að hafa fengið
að kynnast manneskju eins og
Rúnu og missirinn mikill. Ég
votta fjölskyldu hennar og öllum
aðstandendum mína innilegustu
samúð.
Magnús Valur Pálsson.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Sigurður Bjarni Jónsson útfararstjóriMagnús Sævar Magnússon útfararstjóri
Guðmundur Baldvinsson útfararstjóriJón G. Bjarnason útfararstjóri
Sálm. 6.3
biblian.is
Líkna mér, Drottinn,
því að ég er
magnþrota,
lækna mig, Drottinn,
því að bein mín
tærast af ótta.
GUNNAR JÓNAS JÓNSSON
lést sunnudaginn 30. maí á hjúkrunarheimilinu Eir.
Útför hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Vandamenn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
BJÖRGVIN SIGURÐUR SVEINSSON,
Brekkubæ, Ólafsvík,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði laugardaginn
24. júlí. Útförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju þriðudaginn 3. ágúst klukkan 13.
Vigfús Jón Björgvinsson Kristín Ósk Kristinsdóttir
Eðvarð Björgvinsson Ásta Lunddal Friðriksdóttir
Guðný Björgvinsdóttir
Ingibjörg E. Björgvinsdóttir
Björgvin Hólm Björgvinsson Ágústa Hauksdóttir
Ásbjörg Björgvinsdóttir Jón Þórðarson
barnabörn og barnabarnabörn og fjölskyldur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
JÓHANNA AÐALBJÖRG
ÞORKELSDÓTTIR,
Austurbyggð 17, Akureyri,
lést mánudaginn 26. júlí.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 3. ágúst
klukkan 13. Vegna aðstæðna í samfélaginu verða einungis
nánustu ættingjar viðstaddir, en athöfninni verður streymt á
facebooksíðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju – beinar
útsendingar.
Jón Ingvar Pálsson Þórdís Þorvaldsdóttir
Þorkell Jóhann Pálsson
Stefán Kristján Pálsson María Guðbjörg Hensley
Páll Pálsson Margrét Jónína Kristjánsdóttir
Haraldur Pálsson Jóhanna Sólrún Norðfjörð
Birgir Pálsson Sigrún Birna Óladóttir
Margrét Pálsdóttir Bjarni Bjarnason
ömmu- og langömmubörn
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir
og afi,
HJÖRTUR GUÐJÓNSSON
frá Hlíðarenda í Fljótshlíð,
til heimils á Nestúni 7,
lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Lundi á
Hellu miðvikudaginn 28. júlí.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sólveig Stolzenwald
Elín Hjartardóttir Stolz Ragnhildur Erla Hjartardóttir
Viðar Rúnar Guðnason Svanur Sævar Lárusson
Írena Sólveig Sverrisd. Stolz Margrét Rós Svansdóttir
Rebekka Rut Sverrisd. Stolz
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
STEFÁN MÁR INGÓLFSSON
kennari,
lést aðfaranótt fimmtudagsins 29. júlí á
hjúkrunarheimilinu Eir.
Maríanna Elísa Franzdóttir
Helga María Stefánsdóttir Edda Stefanía Levy
Stefán Már Levy Helguson
Ástvaldur Þór Levy Helguson
Elsku eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir,
tengdafaðir, bróðir, afi og langafi,
GÍSLI JAKOB ALFREÐSSON,
leikari og fyrrv. þjóðleikhússtjóri,
lést miðvikudaginn 28. júlí á
Landspítalanum við Hringbraut. Útförin fer
fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 12. ágúst klukkan 15.
Vegna samkomutakmarkana verður nánari útfærsla á útförinni
auglýst síðar.
Guðný Árdal
Alfreð Gíslason Eva Gunnarsdóttir
Anna Vigdís Gísladóttir
Elfa Gísladóttir Thomas J. Richardson
Helga Elísabet Þórðardóttir Páll Kr. Pálsson
Úlfar Ingi Þórðarson
Einar Sveinn Þórðarson Ragnhildur Fjeldsted
Þórður Jón Þórðarson Sawai Wongphoothorn
Anna Jóhanna Alfreðsdóttir Finnur Björgvinsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GERÐUR ÞÓRKATLA JÓNASDÓTTIR,
áður Auðkúlu við Hellu,
lést fimmtudaginn 22. júlí á
hjúkrunarheimilinu Dyngju, Egilsstöðum.
Útförin fer fram frá Oddakirkju föstudaginn 6. ágúst klukkan 14.
Sævar Jónsson
Þorgils Torfi Jónsson Þórhalla Sigmundsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa, langafa og langalangafa,
SIGURÐAR ÁSGEIRSSONAR,
Kópavogstúni 5, Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sunnuhlíðar.
Svanlaug María Ólafsdóttir
Ólafur Sigurðsson Sigrún Þorsteinsdóttir
Jónína Sigurðardóttir Jón Ágúst Benediktsson
Sigurður Sigurðsson Ásta Guðmunda Hjálmtýsd.
Kolbrún G. Sigurðardóttir Sigmar Torfi Ásgrímsson
og fjölskyldur