Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.07.2021, Side 6
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.7. 2021
Fæst í apótekum, heilsuhúsum og heilsuhillum stórverslanna.
E
f ég ætti að velja mér eina uppáhalds-
týpu þá væri það sennilega sérfræðing-
urinn. Maðurinn sem er alltaf viss um
allt, veit allt betur en flestir aðrir og er óþreyt-
andi að deila því með okkur hinum sem sitjum
bara og hlustum og tökum við viskunni.
Það er yfirleitt hægt að þekkja hann á mikl-
um yfirlýsingum og alhæfingum. Í samræðum
leggur hann yfirleitt til að minnsta kosti 90 orð
af hverjum hundrað og virkar mjög sannfær-
andi. Hann er mikið að vinna með alltaf og
aldrei og er óþreytandi við að útskýra af
hverju heimurinn er eins og hann er. Yfirleitt
er skýringin að það sé vegna þess að annað
fólk er svo vitlaust.
Sérfræðingurinn er ekki alltaf sá skemmti-
legasti og þess vegna nennum við sjaldnast að
vekja máls á því þegar kemur í ljós að hann
hefur haft stórkostlega rangt fyrir sér. Það
hendir ósjaldan týpuna sem er orðin sérfræð-
ingur í menningu þjóðar áður en hún hefur náð
að sækja töskurnar af bandinu á flugvellinum.
Það hefur kannski farið minna fyrir slíkum
sérfræðingum síðustu ár. Mögulega vegna
þess að heimurinn hefur minnkað og við eigum
auðveldara með að afla okkur upplýsinga um
gang heimsmála. Við heyrðum samt aðeins í
þeim í símatímum á útvarpsstöðvum og sumir
létu sig hafa það að skrifa greinar í blöðin til að
útskýra ýmis mál fyrir okkur. En svo kom
veislan: Covid-19.
Allt í einu voru þeir mættir aftur. Tilbúnir
að segja okkur hvernig þetta væri allt saman
og hvað við ættum að gera til að koma í veg
fyrir heimsfaraldur. Og ótrúlegt en satt: Við
vorum bara að gera allt meira eða minna vit-
laust. Ýmsar aðrar þjóðir voru að spila þetta
svo miklu betur og það lá bara fyrir að hér
myndi allt fara lóðbeint til helvítis.
Ekki einungis hefðum við algjörlega klúðrað
öllum bólusetningarmálum heldur værum við
líka að gera allt rangt með skipulagi innan-
lands. Það var nánast sama hvað var gert,
lausnin var alltaf eitthvað annað. Um tíma var
það meira að segja þannig að sérfræðingarnir
sem vildu loka landinu náðu að sameinast þeim
sem vildu galopna allt. Þessir tveir hópar náðu
saman á einhvern furðulegan hátt.
Einna háværastar voru raddirnar um að við
ættum að haga okkur eins og Nýja-Sjáland og
Ástralía. Þar væri sko almennilega tekið á
málunum. Landinu bara lokað og innan
skamms yrði allt komið í lag en við sætum í
súpunni.
Í vikunni
komu svo fréttir
frá þessari álfu.
Sjö af stærstu
borgum Ástralíu
hafa lokað öllu.
Þar er útöngu-
bann, grímuskylda, fjöldatakmarkanir og þær
systur allar. Ástandið er svipað í Nýja-
Sjálandi og ekki útlit fyrir að það breytist í
bráð. Vissulega hefur þessum ríkjum tekist
halda fjölda smita og dauðsfalla í lágmarki, en
það hefur okkur líka tekist, með allt annarri
nálgun.
Það sem verra er, er að um 15% Nýsjálend-
inga hafa fengið fyrri skammt bólusetningar
og um 25% Ástrala. Á Íslandi hafa yfir 70%
prósent fengið þá fyrri og 60% eru fullbólusett
– og þá erum við að tala um hlutfall af öllum
íbúum.
Þessar fréttir fáum við á sama tíma og við,
vitleysingarnir sem ekkert kunnum, afnemum
allar takmarkanir.
Ég segi bara: Takk fyrir alla raunverulegu
sérfræðingana!
’
Þessar fréttir fáum við á
sama tíma og við, vitleysing-
arnir sem ekkert kunnum, af-
nemum allar takmarkanir.
Á meðan ég man
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Sérfræðingarnir
E
kki fer úr huga mér frétt sem
ég las nýlega í blaði um að
Mannréttindadómstóllinn í
Strassborg hefði beitt þeirri niður-
stöðu sem hann á dögunum komst að
í frægu (að endemum) máli gegn ís-
lenskum stjórnvöldum um skipan í
embætti dómara við Landsrétt sem
fordæmi gagnvart stjórnvöldum í
öðru landi, að þessu sinni Póllandi.
Íslenska málið var mörgum illskilj-
anlegt en svo átti að heita að tilteknir
dómarar hefðu ekki verið skipaðir
lögum samkvæmt og að ráðherra
hefði þar ráðið of miklu. Látum vera
ef aðfinnslan hefði verið gerð fyrir
hálfum öðrum áratug þegar dóms-
málaráðherra skipaði dómara – einn
síns liðs. Allt var það þó lögum sam-
kvæmt.
En síðan var lögunum breytt og
ákveðið að þrír aðilar kæmu að ráðn-
ingu dómara, matsnefnd, ráðherra
og Alþingi sem hefði síðasta orðið.
Þetta þótti mér og
þykir enn hinn
besti kokteill,
reynt að koma í
veg fyrir klíkuveldi
þeirra sem gjarn-
an raðast saman í
matsnefndir og svo
einnig spornað
gegn geðþóttavaldi ráðherra en
þverpólitískt Alþingi væri síðan var-
naglinn. Til þess að kokteillinn hrifi
yrðu allir málsaðilar að sjálfsögu að
standa sig en deila má um framgöngu
þeirra allra. Gagnrýnin sem fram
kom var til góðs og slípar án efa þetta
fyrirkomulag til framtíðar. En óháð
því hvað hverjum og einum þótti um
ágæti niðurstöðunnar þá var málið til
lykta leitt í hinu lögbundna ferli og
um það fyrirkomulag hafa engar at-
hugasemdir komið fram.
Í Strassborg þótti ástæða til að
leggjast yfir þetta mál með stækkun-
argleri.
Mannréttindadómstóllinn, sem
þar hefur heimilisfesti, hefur því mið-
ur reynst illa sjáandi í sumum þeim
ríkjum sem að honum standa. Hann
gerðist hins vegar mjög smásmugu-
legur gagnvart skipan í hinn nýstofn-
aða íslenska Landsrétt og fann það
út að skort hefði á að forms hefði ver-
ið gætt sem skyldi við ráðningu dóm-
ara og þegar íslenskum lögmanni
hugkvæmdist að spyrja dómstólinn
álits á því hvort mannréttindi skjól-
stæðings hans, sem ekið hafði undir
áhrifum eiturlyfja, verið fundinn sek-
ur á öllum dómstigum og auk þess
játað brot sitt, hefðu ekki fengið að
njóta sín til fulls því dómari sem
dæmt hefði í máli hans á einu dóm-
stigi hefði ekki hlotið blessun í
Strassborg. Sérstök yfirnefnd hemp-
uklæddra dómara lagðist nú yfir mál-
ið um nokkurt skeið, með tilheyrandi
kostnaði enda allir innandyra vel
haldnir á þeim bænum. Niðurstaðan
varð sú að mannréttindi hins dópaða
ökumanns hefðu ekki verið virt, ef þá
ekki beinlínis fótum troðin.
Var nú farið að huga að því hvernig
handhafar réttlætis þar syðra gætu í
samráði við góða félaga á Fróni reist
mannréttindin við.
Í þessu skyni hefur nú tvennt
gerst. Fjöldi einstaklinga sem hlotið
hafa dóm á Íslandi – ekki síst fyrir
svokallaða hvítflibbaglæpi – hafa
fengið þann úrskurð í Strassborg að
þeir hafi verið ranglega dæmdir, ekki
vegna þess að þeir séu saklausir af
lögbrotum sem borin voru upp á þá
og þeir dæmdir sekir fyrir, heldur
vegna fyrrnefndra eða ámóta form-
galla við meðferð mála þeirra. Í kjöl-
farið höfum við – íslenskir skatt-
greiðendur – verið krafin um
skaðabætur – og Bjarni fjármála-
ráðherra hefur borgað þær sem eins
konar miskabætur fyrir „mannrétt-
indabrotin“.
Erum við þá komin að síðara atrið-
inu sem rekja má til málatilbúnaðar
Evrópudómstólsins gagnvart Ís-
landi. Í Póllandi hefur ríkisstjórn
sem vill að dómstól-
arnir dansi eftir
sinni flautu, gripið
til ráðstafana til að
bola dómurum úr
embætti og koma
sínum mönnum að,
reynt að hafa áhrif
á úrskurði þvert á
landslög og þar fram eftir götunum.
Það var gegn þessu framferði sem
landsréttarmálið íslenska var vakið
upp sem fordæmismál og það nú lagt
að jöfnu við fasísk vinnubrögð
pólskra stjórnvalda þegar Mannrétt-
indadómstóllinn tók fyrir fruntalegar
breytingar pólskra stjórnvalda á
réttarkerfinu.
En viti menn. Misnotkun á mann-
orði Íslands með þessum hætti þótti
ekki meira mál en svo að formaður
Dómarafélags Íslands sá ástæðu til
að fagna í viðtali sem Fréttblaðið átti
við hann í kjölfar dómsins gegn
pólskum yfirvöldum: „Niðurstaðan í
pólska málinu staðfestir enn frekar
að með dómi sínum í landsréttarmál-
inu hefur Mannréttindadómstóllinn
sett fordæmi sem mun orka sem
prófsteinn á það hvort skipan dóm-
stóls uppfylli það skilyrði að vera
ákveðin með lögum.“
Hvert er þessi röksemdafærsla öll
að fara? Mál ógæfusama ökumanns-
ins sem ók undir áhrifum er nýtt við
alls óskyldan þvott á hvítflibbum í
Strassborg og huglaus dómstóll þar
tekur sér til handargagns íslenskt
álitamál þegar andæfa þarf alls
óskyldum fasískum vinnubrögðum
austur í Póllandi.
Þess vegna er spurt í fyrirsögn
hvort þetta sé virkilega gagnlegt. Ég
hallast að því að svo sé ekki, nær því
að vera galið eða ga ga eins og sagt
var á mínum unglingsárum.
AFP
Gagnlegt eða … ?
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
’
Var nú farið að
huga að því hvernig
handhafar réttlætis þar
syðra gætu í samráði
við góða félaga á Fróni
reist mannréttindin við.