Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.07.2021, Side 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.07.2021, Side 14
ég verði örugglega fimmtugur. Neyðist meira að segja ábyggilega til að halda veislu. En ég veit ekki hvort ég næ að verða sextugur.“ Langar ekkert í leyfi Hann hefur getað stundað sína vinnu og von- ast til að gera það áfram. „Horfði til verri veg- ar og ég fengi þau tíðindi að ég ætti bara eitt ár eftir þá myndi ég fara í veikindaleyfi. Ég nenni ekki að eyða síðasta árinu mínu í að ala upp annarra manna börn. En mig langar ekk- ert í leyfi, mér líður vel hérna á Laugum, mörgu hefur verið breytt til hins betra og skól- inn gengur vel.“ Fyrstu viðbrögð Sigurbjörns voru að skora meinið á hólm með því að hreyfa sig meira, borða hollar, drekka minna áfengi og stunda hugleiðslu. „Vandamálið er hins vegar að ég upplifi þetta ekki eins og að ég sé að berjast við eitthvað. Læknarnir segja að ég sé mjög veikur með langt gengið krabbamein en fyrir mér er það óraunverulegt. Mér líður ekki þannig og ég lít ekki þannig út. Pabbi var með fjórða stigs krabbamein í blöðruhálsi og hann leit þannig út. Eins og helsjúkur maður. Ég horfði upp á þá glímu í návígi.“ Hann kveðst vera vongóður um bata en um leið raunsær. „Ég er með fjórða stigs krabba- mein sem læknar meta ólæknandi. Vitað er um fólk sem hefur náð sér en í þeim tilvikum tala læknar um „engar vísbendingar um sjúkdóm- inn“ en ekki að fólk sé „læknað“. Líkurnar á því að lifa lengi eru ekki með mér, ég geri mér fulla grein fyrir því. Einn af hverjum sex eru lifandi eftir fimm ár. Það eru ekkert sérstakar líkur, svolítið eins og að vera á fyrstu braut í úrslitum í 100 metra hlaupi á Ólympíu- leikunum. Þú horfir á Usain Bolt á fimmtu brautinni og veist að 80% líkur eru á því að hann vinni. En góðu fréttirnar eru þær að þú átt líka möguleika – vegna þess að þú ert á rás- línunni og Bolt gæti alltaf þjófstartað eða tognað. Sjálfum líður mér heldur ekki eins og ég sé á fyrstu brautinni. Án þess að líkja mér við Usain Bolt upplifi ég mína möguleika meiri en Jóa á bolnum sem greinist með svona krabbamein vegna þess að ég hef farið vel með mig gegnum tíðina og bý að drjúgu keppnis- skapi.“ Var dapur fyrst eftir greininguna Andlega hliðin skiptir ekki minna máli og af- staðan, það er hvernig menn nálgast þessa rimmu upp á líf og dauða. „Ég viðurkenni al- veg að mér leið hreint ekki vel með þetta fyrstu dagana eftir greininguna. Ég var dapur. Bað mína nánustu um að gefa mér smá svig- rúm. Ég fékk greininguna á föstudegi og á þriðjudeginum eftir leið mér strax betur. Fannst ég vera tilbúinn að berjast – og það ætla ég mér að gera meðan enn er von. Þarna var fólk líka farið að senda mér góðar kveðjur og biðja fyrir mér. Ég er þakklátur fyrir það; maður þiggur alla mögulega hjálp í svona bar- áttu.“ Hann vitnar í samtal sem hann átti nýverið við þrettán ára gamlan dreng sem sótti hann heim ásamt foreldrum sínum. „„Jæja, hvað ætlar þú að verða?“ spurði ég unga manninn. Og ekki stóð á svari: „Eldri!“ Það er stórkost- legt svar og akkúrat markmiðið hjá mér sjálf- um. Ég ætla að verða eldri!“ Æskuvinur Sigurbjörns úr Mývatnssveit- inni, Þórir Sigmundur Þórisson, lést árið 2015 eftir níu ára baráttu við heilakrabbamein. „Hverjar eru líkurnar á því að tveir úr þessum fámenna bekk greinist með alvarlegt krabba- mein? Maður spyr sig. Veikindin kenndu hon- um að njóta lífsins og fresta engu sem mögu- lega var hægt að gera í dag. Sjálfur er ég þannig innréttaður að ég býst alltaf við hinu versta, þannig eru líkurnar á því að enda í plús bestar. Í þessu tilviki get ég það hins vegar ekki vegna þess að versta útkoman er sú að ég deyi. Ég get ekki reiknað með því.“ Í lopapeysu og fjárhúsastígvélum? Hann segir alls konar hugsanir hafa leitað á hugann undanfarna mánuði. „Ein er sú að ég deyi og konan mín kynnist öðrum manni. Það er ofboðslega skrýtin tilhugsun sem ég er alls ekki sáttur við enda þótt slíkar vangaveltur séu engan veginn tímabærar. Maður veltir líka fyrir sér í hverju maður eigi að vera í kistunni; íslenska þjóðbúningnum eða bara gömlu góðu lopapeysunni og fjárhúsastígvélunum? Og hvað á að spila í jarðarförinni?“ Eitt af því sem óhjákvæmilega fylgir alvar- legum veikindum eru áhyggjur annarra. Þegar Sigurbjörn var nýverið að fá sér í glas á sam- komu gaf kona nokkur sig á tal við hann og spurði hvort hann ætti að vera að drekka. „Ég svaraði því til að ég hefði spurt lækninn minn og hann sagt það óhætt ef ég ætti ekki í vand- ræðum með áfengi. „Ertu með nógu góðan lækni?“ spurði þá konan. „Tja,“ svaraði ég, „pabbi var hjá honum og hann er dáinn.“ Það kom á aumingja konuna enda hafa ekki allir húmor fyrir svona spaugi. En svona er ég bara; ég hugsa um leið og ég tala. Það finnst ekki öllum það þægilegt. Ég er ekkert feiminn við að gera grín að veikindum mínum og veit alveg að ég fer stundum yfir strikið. En maður lærir smám saman af reynslunni.“ Varð lýsandi fyrir tilviljun Sú hlið á Sigurbirni sem oftast snýr að þjóð- inni er íþróttalýsandinn í sjónvarpinu en und- anfarin átján ár hefur hann lýst því sem fyrir augu ber á hverju stórmótinu af öðru í frjáls- um íþróttum. Iðulega með miklum tilþrifum. „Það var algjör tilviljun að ég byrjaði á þessu. Ég hafði lokið námi í Bandaríkjunum ár- ið 2001 og sumarið 2002 var fyrsta sumarleyfi okkar hjóna saman. Hún vildi fara að eiga börn, ég að leika mér. Liður í því, það er að leika sér en ekki að eiga börn, var að fara á stórmót í frjálsum íþróttum en EM fór fram í München það sumar. Ingólfur Hannesson átti að lýsa frá mótinu ásamt Samúel Erni Erlingssyni en var skömmu áður ráðinn til EBU. Í stað þess að lýsa einn hafði Sammi samband við Frjáls- íþróttasamband Íslands til að kanna hvort það vissi af einhverjum þarna úti og Vésteinn Haf- steinsson landsliðsþjálfari benti á mig en ég hafði athugað hvort Frjálsíþróttasambandið hefði einhverja miða á mótið handa okkur. Frá- bært, hugsaði ég bara, ég er alveg til í þetta enda þekki ég sportið mjög vel,“ segir Sig- urbjörn sem sjálfur var liðtækur millivega- lengdahlaupari á sinni tíð. „Konunni minni fannst þetta ekki alveg eins frábært enda varð sumarfríið ömurlegt hjá henni. Ég vann allan tímann en undirbúningur fyrir svona útsend- ingar tekur marga klukkutíma.“ Sjötti á heimsmeistaramóti unglinga innanhúss árið 2013 Það var ekki bara þekkingin sem skein af Sig- urbirni, heldur ekki síður innlifunin. Maður hefur ósjaldan á tilfinningunni að hann sé sveittari eftir keppni en þátttakendurnir sjálf- ir. Hann hefur lýst frá öllum stórmótum síðan, fyrir utan HM innanhúss 2003. „Ég fann strax að þetta átti við mig og mér finnst þetta mjög skemmtilegt. Auðvitað er þetta mikil vinna enda vill maður vera undirbúinn.“ Hver kannast ekki við að sjá bláókunnugan mann á skjánum og heyra Sigurbjörn hlaða í Skólameistarinn á skrif- stofu sinni í Framhalds- skólanum á Laugum. Morgunblaðið/Orri Páll Sigurbjörn í essinu sínu að lýsa flunkunýju heimsmeti í 10.000 metra hlaupi kvenna á Ólympíuleikunum í Ríó sumarið 2016. Ljósmynd/Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Laugar í Reykjadal njóta sín vel úr lofti. Sigurbjörn var liðtækur millivegalengdahlaupari. Hér er hann fyrstur í mark eftir mikinn endasprett í 800 m. hlaupi á Meistaramóti Íslands 2008. Morgunblaðið/hag VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.7. 2021

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.