Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.07.2021, Qupperneq 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.07.2021, Qupperneq 2
Segðu mér frá tónleikunum sem þú heldur í Hörpu um helgina. Ég ætla að spila einleikssvíturnar sex eftir Bach. Þetta eru í raun fræg- ustu verkin sem eru til fyrir selló. Ég spilaði svíturnar um allt land á tón- leikaferðalagi sem ég hef skipulagt lengi. Ég vildi svo ljúka tónleika- ferðalaginu með því að spila allar sex svíturnar í Hörpu, þrjár á laugardag og þrjár á sunnudag. Ég útskrifaðist úr námi fyrir ári síðan og þá hafði Covid nýskollið á og ég hugsaði með mér hvað ég ætti að gera. Mér fannst það vera gott tækifæri til að læra allar þessar svítur. Ég hafði lært einhverjar þeirra áður en ekki allar og hafði átt þann draum að spila þær hér heima. Ég var ekkert að spila með öðrum á þessum tíma og gat því helgað mig því að undirbúa þetta. Er einhver sérstök ástæða fyrir því að þú heillast af svítum Bachs? Á táningsárunum þegar ég var að kynnast klassískri tónlist var Bach uppáhaldstónskáldið mitt. Þetta er undirstöðuverk sellóleikara. Svíturnar eru fjölbreyttar, hver svíta hefur sína tóntegund og mjög sterkan karakter sem er ólíkur öllum hin- um, og krefjandi á alhliða hátt, bæði þarf að æfa sig mikið og þær reyna á andlega, því verkið er svo langt og mikið. Það var því áskorun að flytja þær allar. Hvernig hefur tónleikaferðalagið gengið? Það hefur gengið mjög vel. Auðvitað var þetta erfitt og mikil vinna að kynna tónlistina, spila hana og keyra á milli staða. Þetta var skemmtilegt og ég fékk að kynnast stöðum sem ég hafði ekki kynnst áður. Þá var þetta fyrsta tónleikaferðalagið sem ég fer í ein, sem var mjög lærdómsríkt. Hvert er framhaldið hjá þér? Ég útskrifaðist með meistaragráðu í fyrravor og nú er ég að byrja í framhaldsnámi í London í Konunglega tónlistarskólanum þar. Það verður mikil æfing í að koma fram reglulega. Svo verð ég hluti af strengjakvartett sem hefur aðallega aðsetur í New York þar sem ég var í námi. Svo reyni ég að koma heim og spila mikið hér. Morgunblaðið/Eggert GEIRÞRÚÐUR ANNA SITUR FYRIR SVÖRUM Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.7. 2021 Verið velkomin í sjónmælingu Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið virka daga 9.30–18 COSTA DEL SOL 16. - 27. JÚLÍ FLUG OG GISTING VERÐ FRÁ: 88.500 KR. *Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN. INNIFALIÐ Í VERÐI FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR INNIFALIÐ Í VERÐI FLUGSÆTI BÁÐAR LEIÐIR FLUG OG HANDFARANGUR FLUG VERÐ FRÁ: 49.900 KR.* WWW.UU.IS | HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓP. | 585 40000 | INFO@UU.IS M eð því skemmtilegra sem ég geri er að sitja einhvers staðar, t.d. á kaffihúsi, og fylgjast með fólki ganga fram hjá vitandi að það er heldur ólíklegt að það muni koma auga á forvitni mína. Það er svolít- ið svipað og að horfa á bíómynd, nema miklu áhugaverðara því um er að ræða alvöru fólk sem hvert hefur sína sögu og bagga að bera. Það er manni alls ekki eðlislægt að setja sig í spor alls þess fólks sem maður sér því þá neyðist maður til að íhuga hversu litlu máli maður skiptir í stóra samhenginu. Það eru allir að lifa sínu lífi alveg eins og ég og flestir þeirra vita ekki hver ég er, hvað þá að þeir séu að pæla í mér og mínum sigrum og töpum. En þetta getur líka verið manni góð áminning um að taka sjálfan sig ekki of alvarlega, um að það sé í raun enginn að hugsa út í hvað ég sagði asnalegt í gær eða hverju ég klúðraði í síðustu viku. Hver og einn er nafli síns eigin alheims þó manni hætti til að halda að maður sé nafli allra annarra líka. Í gegnum tíðina hef ég glímt mikið við áhyggjur af því hvað öðrum finnst um mig og hef ég þess vegna reynt að stjórna áliti annarra á mér. Það endar oftast í niðurrifi og jafnvel sjálfshatri. Á handboltavellinum hef ég fundið fyrir því hvernig skömmin hellist yfir mig þegar ég geri mistök og hugsanirnar sem fylgja snúast oftast um hvað öllum finnst ég örugglega ömurlegur og þar fram eftir götunum. Það verður til einhver rödd innra með manni sem reynir að giska á hvernig aðrir muni hugsa til manns. Og vá hvað röddin er harður gagn- rýnandi. En hún hefur auðvitað rangt fyrir sér. Það er nánast enginn að pæla í þér og hverjum er ekki sama þó þeir séu að því? Það er frelsandi tilhugsun. Það er enginn að pæla í þér Pistill Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is ’ Hver og einn er nafli síns eigin alheims þó manni hætti til að halda að maður sé nafli allra annarra líka. Hörður Kristinsson Að grilla með strákunum. SPURNING DAGSINS Hvað er það besta við íslenska sumarið? Sylvía Blöndal Að fara eitthvað í góðu veðri um helgi. Andri Liljar Árnason Að fara og stökkva í Eyvindarána á Egilsstöðum. Hafdís Þórisdóttir Lognið og björt sumarkvöld. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Árni Sæberg Geirþrúður Anna Guðmundssdóttir sellóleikari flytur allar sex sellósvítur Johanns Sebastians Bach á tvennum tónleikum í Hörpu um helgina. Hún flytur þrjár hvorn dag, laugardag og sunnudag, kl. 16. Miðar fást á harpa.is. Endar í Hörpu

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.