Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.07.2021, Page 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.07.2021, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.7. 2021 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Í ágúst 2012 fór Brett Gallagher í göngu- túr með hundinn sinn í skógi í nágrenni heimilis hans við Myrtle Beach í Suður- Karólínu í Bandaríkjunum. Svartur labrador varð á vegi þeirra sem virtist týndur. Eftir leit á netinu gat Gallagher ekki séð að neinn hefði lýst eftir hundi á svæðinu og brá því á það ráð að fara með hundinn til dýra- læknis sem gat skoðað örmerkingu hans. Hundurinn reyndist vera Bucky, þriggja ára hundur Marks Wessells sem bjó einnig á svæðinu. Hængurinn var hins vegar sá að Wessells hafði skilið Bucky eftir hjá föður sín- um í Virginíu um 800 kílómetra frá Myrtle Beach í janúar sama ár þar sem hann mátti ekki hafa Bucky í íbúð sinni lengur. Bucky hafði strokið frá föður Wessells nokkrum vik- um áður og haldið í vegferð sína. Þegar Bucky komst loks heim til Wessells velti hann sér um alla íbúðina og reyndi að draga í sig eins mikið af lykt eiganda síns og hann mögulega gat. Þrautagangan var greinilega þess virði. Það var auðvitað engin leið fyrir Bucky að þekkja leiðina frá Virginíu, sem hann hafði aldrei komið til áður, til síns heima hundruð kílómetra í burtu. En einhvern veginn vissi hann hvert hann ætti að fara og kom sér á rétt- an stað. Til eru margar sögur af gæludýrum, oft köttum, sem ferðast langar vegalengdir til síns heima um leið sem þau gætu ekki á nokk- urn hátt hafa þekkt áður. Hvernig fara þau að þessu? Fleiri dýr virðast búa yfir ótrúlegri ratvísi. Fuglar koma líklega fyrst upp í hugann enda ferðast margar tegundir þeirra heimshorna á milli á hverju ári. Einstaklingar sumra þessara tegunda þurfa að finna leið til vetrarstöðva einir síns liðs enda ekki alltaf um hóp fugla sem fljúga saman að ræða eins og flestir sjá eflaust fyrir sér þegar um farfugla er að ræða. Fljúga þeir þá langar vegalengdir yfir sjó þar sem lítið er um kennileiti önnur en stjörnur og gang sólar. Sömuleiðis ber að nefna laxinn sem yfirgefur fæðingarstað sinn þegar hann hefur náð þroska til og dvelur í sjó þar til hann hyggst hrygna. Leitar laxinn þá upp í ferskvatn og ferðast hundruð kílómetra upp ár til að hrygna á sama stað og hann ólst upp. Þá kann- ast flestir við ratvísi bréf- dúfunnar sem hefur verið notuð til að flytja fréttir í árþúsundir. Það merkilega reynist þó vera að vísindamenn hafa ekki svör á reiðum höndum hvernig þessi dýr velja rétta stefnu þegar ferðast á langar vegalengdir. Það er ekki alls kostar ljóst hvernig Bucky komst til síns heima og af hverju honum tókst ætlunarverk sitt á meðan ótal gæludýra týnast á ári hverju, jafnvel í ná- grenni heimilis síns. Rata heim yfir Atlantshafið Talað er um sanna ratvísi (e. true navigation) þegar átt er við þann eiginleika að geta ratað nokkuð langa vegalengd til nákvæmrar stað- setningar án þess að þurfa að notast við kenni- Morgunblaðið/Ómar Hvernig fara dýrin að þessu? Margar dýrategundir sýna af sér hæfni til rötunar sem vísindamenn hafa einfaldlega ekki skýringu á. Ýmsar hugmyndir eru uppi um hvernig dýrin fara að þessu en segulsvið jarðar gegnir stóru hlutverki að sögn Guðmundar A. Guðmundssonar. Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is Tildra er ein þeirra tegunda íslenskra fugla sem Guð- mundur A. Guðmundsson dýravistfræðingur rannsak- aði ásamt kollegum sínum með tilliti til rötunar og noktunar á segulskynjun. ’ Í þoku að næturlagi virðast fuglarnir leita uppi ljós, þeir fljúga jafnvel á vita og dragast að skipum og olíuborpöllum á hafi úti. Guðmundur A. Guðmundsson DÝRARÍKIÐ 5

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.