Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.07.2021, Side 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.07.2021, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.7. 2021 leiti. Til að þess að geta ratað á þennan hátt þarf viðkomandi að búa yfir einhvers konar korti svo hann viti hvar hann er í samanburði við staðinn sem hann hyggst komast til. Í ofan- álag þarf viðkomandi einnig einhvers konar áttavita svo hann geti tekið rétta stefnu miðað við kortið og haldið henni. Sönn ratvísi er það sem Bucky þurfti til að rata aftur til síns heima og hún væri þín eina von ef þér yrði rænt, bundið fyrir augu þín og þér komið fyrir á miðju hálendi Íslands og sagt að rata heim, ef við gefum okkur að þú hafir ekki komið á hálendið áður. Í mörg ár hafa verið gerðar tilraunir ekki ósvipaðar þessu ímyndaða ráni á ýmsum fugla- tegundum. „Menn hafa til dæmis tekið skrofu af hreiðri sínu í Bretlandi og fært hana yfir Atl- antshafið til að sjá hvort hún rati heim,“ segir Guðmundur A. Guðmundsson, dýravistfræð- ingur hjá Nátturufræðistofnun Íslands. „Það hafa þær gert og komið sér til baka í holuna sína. Þetta sýnir að fuglarnir skynja hvar þeir eru og búa yfir alveg ótrúlegri nákvæmni til þess að leiðrétta villur.“ Ungfuglarnir rata ekki Tilraunir hafa einnig verið gerðar á stara og ýmsum öðrum spörfuglategundum, bæði full- orðnum og ungfuglum. Fuglarnir eru þá veidd- ir þegar þeir eru á leið sinni á milli vetrar- og sumarstöðva. „Þeir eru svo færðir einhverja 400 kílómetra innan Evrópu. Fullorðnu fugl- arnir geta leiðrétt stefnu sína og fundið réttu leiðina heim en ungfuglarnir taka einungis rétta stefnu miðað við árstíð en rata ekki inn á sína réttu slóð eftir að hafa verið færðir,“ segir Guðmundur. Stefnan sem ungfuglarnir taka er bundin árstíðum og hefur verið sýnt að hún er háð segulsviðinu í kringum fuglana. Sést það vel á því að fuglar taka sömu stefnu óháð því hvort þeir eru í náttúrunni eða í búri inni á tilrauna- stofu. Þessi stefna á að gera ungfuglunum kleift að finna vetrarstöðvar sínar frá þeim stað þar sem þeir klekjast úr eggi og breytist eftir því sem líður á fartíma þeirra. „Meginniðurstaða allra þessara tilrauna er sú að stefnutakan eða áttunin erfist en síðan er rötunin áunnin að einhverju leyti. Bæði bæta fuglarnir túlkun sína á áttavitanum og læra að yfirfæra þessar meðfæddu stefnur á önnur náttúrufyrirbæri svo sem sól og stjörnur.“ Þó ungfuglarnir eigi almennt erfiðara með að rata er það ekki svo að þeir fylgi ávallt þeim eldri á ferðum sínum. „Það eru margar teg- undir sem yfirgefa unga sína á fjarlægum varpstöðum og ungarnir koma síðan af eigin rammleik á vetrarstöðvarnar.“ Samspil ljós- og segulskynjunar En hvernig ætli ungfuglarnir viti hvert þeir eiga að fljúga og hvað læra þeir eldri af reynsl- unni? Það virðist ekki alls kostar ljóst en ýms- ar vísbendingar eru fyrir hendi. Rannsóknir hafa sýnt að fuglar nota segulsvið við áttun en einnig stjörnur, sólina og skautað ljós í himin- hvolfunum. Notkun á ljósi í himinhvolfunum er áunnin að sögn Guðmundar. „Segulskynjun er sennilega meðfædd. Því eru fuglarnir með einhverja grunnstefnu sem þeir geta fylgt með hjálp innbyggðs áttavita,“ segir Guðmundur. Hvar þessi áttaviti er geymdur er ekki vitað með vissu en vísinda- menn hafa fundið magnetít, sem er segulmagn- aður málmur, í höfði fugla. „Það er allavega einhver áttaviti þarna og fuglarnir geta skynj- að stefnur og endurtekið sig í því.“ Vísindamenn velta vöngum yfir því hvernig segulskynjunin beinir fuglunum og öðrum dýr- um sem hafa magnetít í líkama sínum á rétta braut og eru ýmsar kenningar uppi um það. „Það er vitað að ljós tengist þessu á einhvern hátt. Í þoku að næturlagi virðast fuglarnir leita uppi ljós, þeir fljúga jafnvel á vita og dragast að skipum og olíuborpöllum á hafi úti. Senni- lega af því að þeir nota ljósið til að lesa á átta- vitann sinn.“ Tilraunir þar sem beint var rauðu ljósi að fuglum sýndu að þeir urðu tímabundið átta- villtir eftir það. Ljós hefur auðvitað engin áhrif á virkni hefðbundinna áttavita svo um er að ræða samspil ljós- og segulskynjunar. Dæmi um mögulega notkun fuglanna á ljósi er að nota skautað ljós til að átta sig á staðsetn- ingu sólarinnar þegar skýjað er. „Þetta gerðu víkingarnir sennilega á sjóferðum sínum hér á öldum áður með silfurbergskristöllum og gátu þannig staðsett sólina,“ segir Guðmundur. Enn ein tegundin Guðmundur hefur sjálfur gert tilraunir á áttun dýra hér á Íslandi. Það gerði hann rétt fyrir aldamótin með kollega sínum frá Svíþjóð. „Við sýndum fram á það að sanderla sem vill fara í norðvestur á vorin úti í náttúrinni tekur aðra stefnu við aðstæður þar sem segulsviðinu hef- ur verið breytt. Við tilraunaaðstæður er hægt að snúa segulsviðinu 90 gráður og sanderlan svaraði því með því að taka aðra stefnu en samanburðarhópurinn,“ segir Guðmundur. „Þetta var gaman því það staðfesti að enn ein tegundin notar segulsvið jarðar til að rata.“ Annað sem Guðmundur hefur rannsakað með kollegum sínum er hvaða leið tegundir fugla sem yfirgefa Ísland fara á fartíma sínum og bera það saman við hvaða aðferð þær nota við áttun. „Við skoðuðum margæsir, rauð- brystinga, sanderlur og tildrur til dæmis,“ segir hann. „Okkar niðurstaða var að fuglarnir hagnýti sér fasta segulstefnu á langferðum frekar en að ferðast eftir stórbaug.“ Kunnum ekki að rata lengur Maðurinn, eins og önnur dýr, býr yfir ýmsum innbyggðum eiginleikum sem gera honum kleift að rata. Við getum nýtt okkur ýmis kennileiti bæði á jörðu og á himni og fundið hvaðan hljóð kemur og fært okkur nær því. Margar sögur eru til af því hvernig frum- byggjar hinna ýmsu heimsálfa hafa sýnt af sér gífurlega hæfni við rötun. Í bók Michaels Bonds, From Here to There: The Art and Science of Finding and Losing Out Way, er því lýst hvernig íbúar Pólýnesíu hófu siglingar á kanóum milli eyjanna sem finna má á svæðinu sem afmarkað er af Nýja-Sjálandi, Havaí og Páskaeyju í Kyrrahafi. Til að komast leiðar sinnar, sem oft var lengri en 400 kílómetrar, þurftu siglingamennirnir að nýta sér mynstur öldugangs, vindátt, útlit skýja, djúpsjávar- strauma, hegðun fugla, lykt og gang sólar og stjarna. En til að nýta sér þessa innbyggðu eigin- leika þarf að læra á þá og með tilkomu betri og betri hjálpartækja við rötun hvarf þörfin fyrir það. Vegna þessa og tilkomu annarra þátta eins og flutninga úr sveit í borg og samfélags- breytinga misstum við stóran hluta hæfileika okkar við rötun. Börn fá ekki að leika eins lausum hala og og áður; árið 1971 fengu 94% barna í Bretlandi að ferðast ein síns liðs annað en til og frá skóla en árið 2010 hafði hlutfallið farið niður í sjö prósent. Rannsóknir hafa sýnt að rýmisminni barna og fullorðinna er mun betra ef þau ferðast á milli staða sjálf og án tækni eins og GPS. Tvíeggjað sverð framfara En hvaða áhrif hefur maðurinn haft á ferðir annarra dýra? Skógareyðing, ljósmengun, þurrkun votlendis, landbúnaður og auðvitað loftslagsbreytingar hafa haft áhrif á fjölda dýrategunda. Í hópi margra þeirra hefur fækkað mikið. Guðmundur segir að ákveðnar fuglateg- undir hafi undanfarin ár breytt hreyfingu sinni að því er varðar för sína á milli vetrar- og sumarstöðva. „Það hafa bæði orðið breytingar í dreifingu og hvað varðar tímasetningu á komu fuglanna. Það er þá sérstaklega hvað varðar þá sem fara miðlungslangar leiðir. Þeir sem fara mjög langar leiðir geta ekki túlkað veðurfarsbreytingar á áfangastað en þeir sem fara styttri leiðir geta nýtt sér breytt tíðarfar. Við höfum séð að fuglar eru að koma fyrr og fyrr hingað til lands,“ segir hann en breyt- ingar af þessu tagi sjást um heim allan. En tækniframfarir mannsins hafa ekki að- eins neikvæðar afleiðingar í för með sér og hafa aðstæður til skrásetningar ferða dýra breyst til betri vegar síðustu árin. „Það hafa orðið miklar framfarir í því hvernig við fylgj- umst með ferðum alls kyns dýra. Þú getur nú kortlagt ferðir einstaklinga í hárri upplausn og séð hvernig þeir bregðast við veðri og villum, í stað þess að þurfa að áætla að einstaklingarnir hljóti að haga sér eins og stofninn allur. Það er hægt að fylgjast af mikilli nákvæmni með þessum einstaklingum og það sést að þeir eru að fara sömu leiðina ár eftir ár,“ segir Guð- mundur og bætir við: „Þessi tæki eru alltaf að minnka svo hægt er að fylgjast með smærri og smærri dýrum.“ Eins og Kathryn Schulz skrifar í grein í New Yorker frá því í apríl, sem var kveikjan að þessari grein, þá eru tækifæri til að nýta aukna vitneskju um ferðir dýra til að hjálpa þeim að komast af í þeim heimi sem maðurinn hefur skapað eftir sínu höfði. AFP Morgunblaðið/Hanna ’ Menn hafa til dæmis tekið skrofu af hreiðri sínu í Bret- landi og fært hana yfir Atlants- hafið til að sjá hvort hún rati heim. Það hafa þær gert og kom- ið sér til baka í holuna sína. Þetta sýnir að fuglarnir skynja hvar þeir eru og búa yfir alveg ótrúlegri nákvæmni til þess að leiðrétta villur. Þessi íslenski fjárhundur býr eins og önnur dýr yfir tals- vert meiri hæfileikum til rötunar en meðalmaðurinn. Lyktarskyn gæti leikið stórt hlutverk meðal hunda þó ekkert sé víst í þeim efnum. Upprisa borga og síðar koma snjallsímans hafa gert það að verkum að fólk getur nánast algjörlega reitt sig á tæknina í stað innbyggðra eiginleika til að rata. DÝRARÍKIÐ

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.