Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.07.2021, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.7. 2021
A
ðalsteinn Ásgeirsson er fastur
undir mælaborði á gömlum og
tignarlegum Lincoln fyrir utan
verkstæði sitt, Svissinn í Kópa-
vogi, þegar okkur Árna Sæberg
ber að garði. Vel fer á því enda kann kappinn
hvergi betur við sig en á bólakafi í fornbílum.
„Bíðið aðeins,“ segir hann og vippar sér fim-
lega á fætur og heilsar gestunum. Ekki að sjá
að þar fari 75 ára gamall maður. Aðalsteinn,
eða Steini eins og hann er alltaf kallaður, er
greinilega í fínu formi miðað við aldur og fyrri
störf.
Inni á verkstæðinu bíður okkar þessi líka
glæsilegi Pacer, árgerð 1978, sem Steini hefur
nýlokið við að gera upp. „Fimm ára ánægju-
stundir, eða eru þær sex ára?“ segir hann og
ljómar allur við minninguna. „Ég hef ekkert
tímaskyn núorðið.“
Hann glottir.
Einkanúmerið á bílnum segir í reynd allt
sem segja þarf: Fun car eða skemmtibíll.
Bandaríski bílaframleiðandinn American
Motors Corporation framleiddi Pacer á ár-
unum 1975 til 1979, eða AMC Pacer, eins og
tegundin heitir fullu nafni. Um er að ræða eina
Pacerinn á landinu sem fluttur var inn af um-
boði, Bílaumboði Egils Vilhjálmssonar. Steini
veit um þrjá eða fjóra aðra en þeir komu á göt-
una gegnum Sölunefnd varnarliðseigna og eru
allir horfnir nú. „Þessi var næstum því horfinn
líka; var til þess að gera ónýtur þegar Egill
Matthíasson, barnabarn Egils sem flutti bílinn
inn, kom með hann til mín. Hann hringdi í mig
og bauð mér hann fyrir svona tíu árum,“ upp-
lýsir Steini.
„Það er lengra síðan,“ skýtur Óskar Gunn-
arsson, samstarfsmaður Steina í Svissinum,
inn í. „Ég fékk hann lánaðan hjá þér árið
2008.“
„Þarna sérðu,“ segir Steini. „Ekkert tíma-
skyn.“
Hann er ánægður með Óskar. „Hann sér um
rútínuna hérna. Ég er mest að leika mér.“
Hann brosir.
„Lék“ í kvikmynd
Fleiri hafa fengið Pacerinn lánaðan en hann
„lék“ stórt hlutverk í kvikmyndinni A Little
Trip to Heaven eftir Baltasar Kormák árið
2005. Hollywoodstjarnan Forest Whitaker
flengdist um á honum um allar koppagrundir.
Það þýðir að Steini hefur átt hann í að minnsta
kosti sextán ár.
Þetta er annar Pacerinn sem Steini hefur
átt um dagana en um eða upp úr 1980 eignaðist
hann þann fyrri. „Viltu að ég fái nákvæmari
upplýsingar? Ég get hringt í Tótu.“
Já, já.
Steini tekur upp símann og hringir í eig-
inkonu sína, Þórunni Pálmadóttur. „Alltaf
bjartsýnn? Já, þú veist það. Já, er það ekki?
1981 eða 1982.“
Þá höfum við það.
„Krakkarnir mínir þrír elskuðu hann og það
var gott að ferðast með þau í honum; þau
steinþögðu bara í aftursætinu.“
– Af hverju?
„Nú rúðurnar eru svo stórar og útsýnið
rosalegt. Pacer er frábær barnapía.“
Þrátt fyrir að vera aðeins tvennra dyra
hentar Pacer fjölskyldufólki vel en hurðin far-
þegamegin er fjórum og hálfri tommu stærri
en bílstjórahurðin, eins og Steini sýnir okkur.
„Þetta voru framúrstefnubílar. Og eru. Það
var sex sílindra vél sett í hann, af þeim sömu
og smíðuðu vélina í Willys,“ segir hann en þess
má geta að nýja vélin er stærri, átta sílindra.
Raunar er fátt annað upprunalegt en grillið.
Bíllinn er til dæmis búinn afturljósum úr Kadi-
lakk og forláta skyggni úr Chevrolet sem
Steini er búinn að eiga í þrjátíu ár. „Ég beið
Fín lína milli fegurðar
og fáránleika
Aðalsteinn Ásgeirsson, Steini í Svissinum, er goðsögn í íslenskum bílheimum. Segja má að hann sé fæddur með
bíladellu og nú hefur hann lokið við að gera upp enn einn bílinn, Pacer, árgerð 1978, sem kom við sögu í kvikmyndinni
A Little Trip to Heaven. Steini er orðinn 75 ára en hvergi af baki dottinn. „Meðan ég ennþá skríð um verð ég hér.“
Myndir: Árni Sæberg saeberg@mbl.is
Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Aðalsteinn Ásgeirsson,
Steini í Svissinum, ein-
beittur við störf á verk-
stæði sínu í Kópavogi.
Pacerinn tekur sig vel út í
kórallit og skuggagráum.
VIÐTAL
5