Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.07.2021, Page 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.07.2021, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.7. 2021 alltaf eftir tækifærinu til að nota það og það kom núna.“ Áklæðið úr íslensku laxaroði Fleira bíður síns tíma á verkstæðinu, svo sem tvöfaldur afturgluggi úr Chevrolet, árgerð 1932. „Ég veit ekki hvort ég næ nokkurn tíma að nota hann,“ segir Steini. Basl var að finna olíu- og hitamæla en Steini hafði á endanum uppi á þeim hjá framleiðanda í Ástralíu. „Þeir sögðust geta smíðað þá fyrir mig og það tæki þrjá mánuði og ég yrði að borga fyrirfram. Það gekk allt saman eftir.“ Fleira er óhefðbundið. Þannig er áklæðið úr íslensku laxaroði frá Sauðárkróki sem Sig- urjón Kristensen bólstraði. Steini segir suma hafa furðað sig á því að hann hafi ráðist í að gera upp Pacer. Til séu merkilegri bílar. „Menn hafa sagt við mig að þeir myndu aldrei setja tíma og pening í að gera upp svona bíl en þar er ég þeim innilega ósammála. Ég gæti tekið Mustang í staðinn en þeir eru allir eins. Sumir vilja bara þetta og alls ekki hitt en ég er ekki vandlátur þegar kemur að bílum; vil allar sortir, svo lengi sem stykkið er fallegt.“ Sagan af því hvernig Steini eignaðist gamla Pacerinn sinn er kostuleg. „Ég sá bílinn bara í akstri og elti hann heim og keypti á staðnum. Mér fannst þetta einstakt stykki og hann bara greip mig.“ – Og hvernig varð eigandanum við? „Það var mesta furða hvað hann tók þessu vel. Ég þurfti ekki mikið að ganga á eftir hon- um. „Nú, líst þér svona vel á hann?“ sagði hann bara og við gengum til samninga.“ Hann brosir. Steini átti bílinn í nokkur ár en á endanum var ekið á hann með þeim afleiðingum að hann eyðilagðist. „Tóta var á honum, ég var úti á sjó. Við sáum bæði mikið eftir honum.“ Ólst upp í bílum – Ertu fæddur með bíladellu, Steini? „Já, það má eiginlega segja það. Pabbi var vegavinnuverkstjóri vestur í Grundarfirði og ég ólst upp í bílum. Ég var alltaf með körl- unum. Ég er rafvirki lærður og vann við það í þónokkuð mörg ár, meðal annars á Lagarfossi gamla. Þegar ég hætti á sjónum fór ég að leita mér að einhverju að gera og lenti í bílaraf- magni í Reykjavík. Eftir það varð ekki aftur snúið. Ég opnaði verkstæði. Fyrst uppi á Höfða en síðustu þrjátíu árin tæp hef ég verið hérna í Kópavogi.“ Fyrsti bíllinn sem hann gerði upp var Kadi- lakk Eldorado, árgerð 1968. „Hann var ónýtur þegar ég eignaðist hann; eins og allir mínir bílar. Ég fann hann á geymslustæði í Hafn- arfirði; komst að því hver átti hann og sá var svo almennilegur að gefa mér bílinn. Ég hef ekki tölu á þeim bílum sem ég hef gert upp síð- an fyrir sjálfan mig og aðra. Það er aldrei frið- ur, alltaf einhver að biðja mig að gera þetta og gera hitt. Ég er þakklátur fyrir það allt, smátt sem stórt, enda hef ég ofboðslega gaman af þessu. Sumt er bara smá lagfæringar og annað alveg frá grind.“ – Þær hljóta að vera ófáar klukkustundirnar sem þú hefur varið í þetta áhugamál? „Uss, minnstu ekki á það. Ég hef enga tölu á þeim. Lengst af var ég hérna öll kvöld eftir vinnu og allar helgar. Það er aðeins minna núna eftir að ég fór að reskjast. Ég hef ekki sama úthaldið lengur. En maður er alltaf ein- hvern djöfulinn að pota.“ – Hvað segir frúin við þessu? „O, hún veit hvað ég hef gaman af þessu.“ Hann brosir. Að breyta ónýtu í nýtt – Hvað er skemmtilegast við þetta? „Að smíða og breyta ónýtu í nýtt. Þegar maður ýtir bílunum loksins út þá brosir mað- ur.“ – Kemur fyrir að þú færð til þín bíl og hugs- ar: Þetta er ekki hægt? „Nei, aldrei. Það er allt hægt.“ Viðskiptavinirnir treysta Steina líka upp til hópa. „Það koma yfirleitt ekki séróskir frá eig- endunum; þeir treysta mér bara fyrir þessu. Margir hafa áhuga á sem upprunalegustu útliti og það er í raun auðveldast fyrir mig og minnsta vinnan. Maður sér það allt á myndum og teikningum. Þegar þarf að breyta þarf hins vegar að smíða og hugsa. Þá verður maður líka að vanda sig; það er auðvelt að klúðra slíkri vinnu á þann veg að bíllinn verði kjánalegur. Það getur verið fín lína milli fegurðar og fárán- leika.“ Steini hefur yndi af tilbrigðum við stefið og líkja má honum við músíkant sem ekki les nót- ur en spilar eins og engill eftir eyranu. „Ég fer eftir minni tilfinningu og smekk og það tekur yfirleitt lengstan tíma að sitja fyrir framan bíl- inn og sjá hvað ég vil gera. Þetta er spuni. Ég teikna ekki sjálfur og verð fyrir vikið að sjá þetta fyrir mér áður en ég byrja að smíða. Þegar ég hef ákveðið mig þarf ég eiginlega aldrei að breyta.“ Horfir alltaf framan í einhvern Sjálfur á hann sjö fornbíla. Þrjá Kadilakka, eina Korvettu, einn Lincoln, eina Límósínu, sem ekki er uppgerð, og svo Pacerinn. Hann gaf Þórunni einn Kadilakk. „Ég geng ekki svo langt að segja að hún sé með dellu en hún hef- ur gaman af bílum og notar Kadilakkinn mis- kunnarlaust, þó meira spari en hversdags. Um daginn hringdu nokkrir krakkar sem við þekkjum og báðu hana um að skutla sér niður í bæ – sem Tóta gerði með glöðu geði.“ – Er mikið horft á ykkur þegar þið eruð á rúntinum á þessum bílum? „Ég er löngu hættur að horfa í kringum mig; maður horfir alltaf framan í einhvern.“ Árni Sæberg fór í bíltúr með Steina á Pa- cernum á dögunum og segir mikið hafa verið horft, ekki síst konur. „Það er liturinn,“ útskýrir Steini en hann heitir kóral. Á móti honum er svo skuggagrár. „Ég sá bíl í þessum kórallit árið 1956 og fannst hann svo flottur að engu munaði að ég pissaði í mig. Á því augnabliki ákvað ég að ég myndi einhvern tíma eignast bíl í þessum lit. Samt er ekkert varið í venjulegan bíl í þessum lit, hann verður að vera sérstakur. Eins og Pacerinn.“ Ekkert ljótara en skítugur fornbíll Börnin hafa ekki erft bíladelluna, að sögn Steina. „Þeim finnst gaman að skoða bílana þegar ég er búinn að gera þá upp og keyra þá en áhuginn nær ekki lengra en það. Ég lánaði syni mínum Corvettuna um helgina, hann var að gifta sig. Það fást ekki betri brúðkaups- bílar. Eins Kadilakkarnir; Tóta keyrir brúð- hjón mikið í sínum.“ Lykilatriðið er viðhald og hreinlæti. „Ég held bílunum mínum alltaf 100% hreinum. Ljótasta sem ég sé er skítugur fornbíll. Maður verður að sýna þessu virðingu eftir alla þessa fyrirhöfn og vinnu.“ Spurður um uppáhaldstímabil sitt í bílasög- unni er Steini fljótur til svars: „Skemmtileg- asti tíminn var um og upp úr 1960. Þá eru þetta almennilegar drossíur sem æðislega gott Steini heldur hér á ljósmynd af Pacer í upprunalegri útgáfu. Hreinlæti og snyrti- mennska skiptir Steina öllu máli, hvort sem er að innan eða utan, en ekkert ljótara en skítugur fornbíll. Hvert smáatriði er úthugsað og sérsmíðað, yfirleitt af Steina sjálfum. Mælarnir voru sérsmíðaðir í Ástralíu. VIÐTAL

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.