Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.07.2021, Page 15
11.7. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Töfrar eldhússins byrja með Eirvík
Eldhúsið er ekki bara herbergi,
heldur upplifun
Hvort sem þú leitar að klassískum retro kæliskáp á heimilið, rómantískri eldavél í sumar-
bústaðinn, litríkum matvinnslutækjum í eldhúsið eða nýrri fallegri innréttingu erum við með
frábæra valkosti fyrir þig. Vöruúrval Eirvíkur er afar fjölbreytt og ættu allir að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi. Af hverju að vera eins og allir hinir - þegar maður getur verið
einstakur!
Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is.
Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15
og gaman var að keyra. Það er eins og maður
fljóti áfram á götunni. Það er ekki eins mikil
upplifun að sitja í bíl í dag og svo er þetta allt
orðið eins. Maður hefur ekki hugmynd um
hvað er á ferðinni nema að sjá merkið. Hér áð-
ur var nóg að sjá glitta í bíl, þá vissi maður
hvaða tegund það var. Það er ekki einu sinni
litur á þessu lengur og ekkert teiknað, allt gert
í tölvu.“
Árni Sæberg hefur orð á því að bílar frá
þessum tíma minni um margt á flugvélar. „Það
er ósköp eðlilegt,“ segir Steini. „Árið 1960
voru allir klárir á því að um aldamótin myndu
bílar fljúga. Undirbúningur var hafinn.“
– Fljúgandi bílar hafa látið bíða eftir sér.
„Já, eins gott, segi ég. Maður vill hafa veg-
inn undir sér.“
Eins bíll og JFK var skotinn í
Steini viðurkennir að hann sé alltaf með augun
hjá sér – enda leynist gersemarnar víða. Þann-
ig var búið að henda Lincolninum á sínum tíma
en Steini náði að bjarga honum á elleftu
stundu. Fékk meira að segja allt með honum.
„Þetta er samskonar bíll og Kennedy var skot-
inn í 1963. Að vísu ’67 módel en þeir breyttust
lítið á þessum árum; 1965 kom inn smá rönd en
það er allt og sumt.“
– En er eitthvað eftir? Einhver bíll sem þig
hefur alltaf dreymt um að gera upp?
„Það er alltaf eitthvað eftir,“ svarar hann
glottandi. „Ég er nýbyrjaður á einum góðum,
skal ég segja þér, Triumph. Hann var illa ónýt-
ur, ekkert gólf og þar fram eftir götunum. Ég
byrjaði á nýju gólfi og nýjum sílsum og fer svo
í boddíið og tek af grind. Þetta ætti að taka
svona tvö til þrjú ár.“
– Eru margir að gera upp gamla bíla á Ís-
landi?
„Já, það eru ótrúlega margir í skúrum að
vesenast. Einhverjir tugir manna, trúi ég. Hið
minnsta. Bílar eru mest stundaða hobbí í heimi
enda fá menn alveg ótrúlega ánægju út úr
þessu. Það er alveg sama í hvaða krummaskuð
maður kemur, alltaf er einhver að gera upp
bíla.“
Steini hefur farið víða til að skoða bíla og
kynna sér verklag; til dæmis fór hann í tíu ár í
röð á sýninguna frægu í Daytona í Bandaríkj-
unum.
Þeir vita ekkert um bíla
Hann fór líka í frægt ferðalag um Bandaríkin
með rithöfundunum Einari Kárasyni og Ólafi
Gunnarssyni og Jóhanni Páli Valdimarssyni
bókaútgefanda fyrir nokkrum árum. Á göml-
um eldspúandi Kadilakk. „Ég hef gert upp bíla
fyrir Óla og Einar kemur stundum hingað á
verkstæðið líka. Svo er ég að fara að gera við
gamlan húsbíl fyrir kvikmyndatökumanninn
sem var með okkur, Svein M. Sveinsson. Hann
er hérna úti.“
– Af hverju fórstu með í þessa ferð?
„Af því að þeir vita ekkert um bíla.“
Nú skellihlæjum við allir.
„Það var fínt að ferðast með þeim. Þetta eru
góðir karlar. Við vorum þarna í rúman mánuð
og eins gott að ég kom með enda var Kadilakk-
inn sem við vorum á nánast ónýtur – búinn að
standa í fjórtán ár á undan. Raunar gerði það
ferðina vegna þess að við stoppuðum fyrir vik-
ið á stöðum sem við hefðum aldrei stoppað á
ella og hittum allskonar skemmtilegt fólk. Í
sumum skuggahverfunum voru karlarnir svo
hræddir að þeir þorðu varla út að pissa.“
Hann glottir sem aldrei fyrr.
Ekki var síðra að geta verið með verkfærin
á lofti nær allan tímann.
Meðan ég ennþá skríð um
Bandaríkin eru Steina greinilega að skapi en á
veggjum má sjá myndir af goðum gullaldar
dægurmenningarinnar, Elvis og Marilyn, að
ekki sé talað um óteljandi ljósmyndir af eðal-
vögnum og drossíum. Þá er ófá bílnúmer að
finna á veggjunum. „Ég hef keypt mest af
þessu í Bandaríkjunum, auk þess sem systir
mín heitin, sem bjó vestra, gaf mér eftirlík-
ingar af númerum úr öllum ríkjum Bandaríkj-
anna sem hún keypti úr einhverju safni.“
Allt hans líf hefur snúist um bíla en Steini í
Svissinum sér ekki eftir einni einustu sekúndu.
„Ég er búinn að hafa ofsalega gaman af þessu
– og hef enn. Ég segi alltaf: Nú ætla ég að
hætta þessu helvíti en það verður ekkert úr
því. Meðan ég ennþá skríð um verð ég hér.“
’
Raunar er fátt annað
upprunalegt en grillið.
Bíllinn er til dæmis búinn
afturljósum úr Kadilakk
og forláta skyggni úr
Chevrolet sem Steini er
búinn að eiga í þrjátíu ár.