Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.07.2021, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.7. 2021
ÚRSLIT Í NBA
F
yrir rúmlega tveimur ár-
um, vorið 2019, endaði
Phoenix Suns með lang-
lélegasta árangur Vestur-
deildar NBA, vann aðeins
19 leiki af 82. Eina baráttan sem liðið
stóð í þetta tímabilið var um fyrsta
valrétt í nýliðavalinu en hann fór til
New Orleans Pelicans. Árið áður
hafði Suns verið lélegasta liðið í
NBA-deildinni eins og hún leggur sig
þó það hafi unnið tveimur fleiri leiki.
Afhroð Suns tímabilið 2018-19 kom
engum á óvart enda náði liðið ekki of-
ar en níunda sæti í Vesturdeildinni á
tíu tímabilum frá árinu 2010, þegar
liðið fór í úrslit Vesturdeildar, til árs-
ins 2020 og komst aldrei í úr-
slitakeppnina. Í ár er liðið hins vegar
komið í lokaúrslit NBA-deildarinnar
og hefur unnið tvo fyrstu leikina í úr-
slitunum.
Vilja ekki sýna tölurnar
Tímabil NBA-deildarinnar sem senn
fer að ljúka hefur verið ólíkt flestum
öðrum. Þar sem tímabilið á undan
kláraðist ekki fyrr en í október í fyrra
hófst það næsta ekki fyrr en seint í
desember. Ákveðið var þó að leika 72
leiki á tímabilinu svo leikjaálagið,
sem var ansi mikið fyrir, varð enn
meira. Lebron James, leikmaður Los
Angeles Lakers, hefur gagnrýnt
þessa ákvörðun og bent á að fjöldi
stjörnuleikmanna sem meiðst hafa á
tímabilinu, þá sérstaklega í úrslita-
keppninni, hefur sjaldan verið meiri.
Gárungar vestanhafs hafa tekið
undir með kappanum og bent á háa
tíðni mjúkvefjameiðsla sem einmitt
eiga það til að aukast í miklu álagi.
Forráðamenn deildarinnar hins veg-
ar neita því alfarið að meiðslatíðnin
sé hærri nú en áður og vitna í sína
eigin tölfræði í því skyni. Raunar vilja
þeir ekki láta þessa tölfræði af hendi
og menn verða því að taka þá á orð-
inu.
Komu inn sama árið
Hvaða áhrif þetta aukna álag hefur
haft á úrslitakeppnina er ekki auðvelt
að meta enda meiðsli alltaf stór
áhrifavaldur í henni. Golden State
Warriors unnu til að mynda meiðsla-
hrjáð lið Cleveland Cavaliers í úrslit-
um 2015 og fjórum árum seinna kom
það í hlut Warriors að tapa fyrir
Toronto Raptors eftir að tveir af
þremur bestu mönnum liðsins höfðu
helst úr lestinni.
Liðin í úrslitum eru áðurnefnt lið
Suns og lið Milwaukee Bucks. Sam-
anlagt hafa þessi lið unnið einn NBA-
titil og komist í úrslit í heil fjögur
skipti þar til í ár. Liðin komu bæði inn
í deildina árið 1968 en gullaldar-
tímabil Bucks hófst strax árið 1969
þegar liðið valdi Lew Alcindor, sem
síðar breytti nafni sínu í Kareem Ab-
dul-Jabbar, í nýliðavalinu og varð
meistari 1971. Liðið komst aftur í úr-
slit 1974 en tapaði gegn Boston Cel-
tics í oddaleik. Bucks átti góðu gengi
að fagna á níunda áratugnum en eftir
það var lítið að frétta (ef frá er talið
tímabilið 2000-01) þar til það vann 60
leiki tímabilið 2018-19 með Giannis
Antetokounmpo fremstan í flokki. Og
nú er liðið loks komið í lokaúrslit í
fyrsta sinn í 47 ár.
Breyttu til eftir afhroð
Lið Suns komst í úrslit 1976 en laut,
eins og mörg lið á þessum tíma, í
lægra haldi fyrir Celtics. Á næstu ár-
um var liðið nokkuð gott og komst
loks í úrslit 1993 með Charles Bark-
ley sem það árið var valinn besti leik-
maður NBA. Liðið mætti hins vegar
ofjörlum sínum í liði Chicago Bulls
þar sem Svarti Jesús, Michael Jor-
dan sjálfur, réð lögum og lofum. Liðið
átti síðan góðu gengi að fagna á
fyrsta áratug þessarar aldar með
Steve Nash í fararbroddi en náði
aldrei í lokaúrslitin.
Eins og áður sagði varð mikill
þurrkur hjá liðinu á næsta áratug. En
eftir tímabilið hræðilega 2019 varð
James Jones fastráðinn fram-
kvæmdastjóri Suns eftir að hafa
starfað sem slíkur til bráðabirgða í
nokkra mánuði. Jones er aðeins fer-
tugur en hann var liðtækur leik-
maður sjálfur, fór sjö sinnum í röð í
lokaúrslit NBA sem samherji Lebron
James í Miami Heat og Cavaliers áð-
ur en hann hætti árið 2017.
Jones stokkaði hressilega upp í lið-
inu sumarið 2019 og var gagnrýndur
af alls kyns sérfræðingum fyrir það.
Hann stólaði þó á ungu mennina
Devin Booker og Deandre Ayton og
réð til sín þjálfarann Monty Williams.
Það skilaði betri árangri en árið áður
og vakti mikla athygli þegar liðið
vann átta síðustu leiki tímabilsins í
bólunni svokölluðu í Orlando eftir að
deildin fór aftur af stað í fyrrahaust.
Þroskaðist sem leiðtogi
Síðasta púsl Jones var þó hinn 36 ára
gamli Chris Paul. Paul hefur verið
einn besti leikmaður deildarinnar í
mörg ár en aldrei komist í loka-
úrslitin áður. Hefur hann leikið með
góðum liðum á ferli sínum en meiðsli
eða önnur vandræði hafa ávallt komið
í veg fyrir að kappinn kæmist alla
leið. Eftir að sauð upp úr hjá honum
og Blake Griffin hjá Los Angeles
Clippers og síðar James Harden hjá
Houston Rockets fékk hann það orð á
sig að hann væri erfiður í samskipt-
um, mikill leiðtogi en ætlaðist til of
mikils af samherjum sínum.
Paul var skipt frá Houston yfir í
ungt lið Oklahoma City Thunder
2019 en náði betri árangri þar en
marga grunaði og leiddi liðið í úr-
slitakeppnina. Honum var svo skipt
yfir í Suns að eigin beiðni í fyrrasum-
ar og hitti þar fyrir Williams sem
þjálfaði hann síðasta tímabil hans
með New Orleans Hornets áður en
hann fór til Clippers 2011.
Svo virðist sem Paul hafi þroskast
sem leiðtogi síðustu tvö árin en ungir
leikmenn Suns tala vel um kappann
og þann anda sem hann hefur komið
með inn í liðið. Þar á meðal er Booker
sem hélt mikið upp á Paul sem ungur
drengur, gekk meðal annars í skóm
frá kappanum. Mikil liðsheild hefur
myndast innan liðsins.
Öll vötn renna til Phoenix
Paul hefur spilað sérstaklega vel með
Suns í vetur en svo virtist sem hann
væri farinn að dala er hann átti sitt
slakasta tímabil í langan tíma 2018-
19. Hann skipti þá yfir í plöntufæði
sem reynst hefur mörgum íþrótta-
mönnum vel síðustu ár og tókst að
finna sitt gamla form.
Eins og áður sagði er Suns komið í
2-0 í einvíginu gegn Bucks og því í
vænlegri stöðu enda aðeins fjögur lið
sem komið hafa til baka eftir að hafa
lent 2-0 undir í lokaúrslitunum.
Margir hafa líkt stöðu Pauls við
Barkley en þeir eru báðir á lista yfir
þá bestu í sögunni sem aldrei hafa
unnið NBA-titilinn. Þá var Barkley á
sínu fyrsta tímabili með Suns 1993
eins og Paul er nú. Ólíkt Suns nú töp-
uðu Barkley og félagar þá fyrsta
leiknum gegn Bulls í lokaúrslitunum.
Flestir veðja á að Suns fagni titlinum
stóra í fyrsta skipti á næstu dögum.
Er þrautaganga Sólanna á enda?
Tvö lið sem ekki hafa látið sjá sig í lokaúrslitum NBA-deildarinnar í áratugi berjast nú um titilinn. Suns er
komið 2-0 yfir og þykir sigurstranglegra, en liðið var eitt það versta í deildinni fyrir aðeins tveimur árum.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
AFP
Tveir bestu leikmenn
Suns, Devin Booker og
Chris Paul, gefa hvor
öðrum fimmu í fyrsta
leik Suns gegn Bucks í
lokaúrslitum NBA.