Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.07.2021, Side 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.07.2021, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.7. 2021 LESBÓK EDRÚMENNSKA Íslandsvinurinn Slash, sem þó hefur komið sjaldnar til Íslands en hann heldur sjálfur, fagn- aði þeim áfanga á dögunum að hafa verið edrú í hálfan annan áratug. Kærasta hans til langs tíma, Meegan Hodges, gladdist með sínum manni og sagði meðal ann- ars á samfélagsmiðlum: „Ástin mín, til hamingju með fimmtán ára edrúafmælið! „Fíkli sem nær bata eru allir vegir færir.“ (Gáfuleg orð sem einu sinni voru látin falla). Ég er svo ofboðslega stolt af þér á hverjum ein- asta degi og sérstaklega í dag. Elska þig til tunglsins og til baka.“ Slash, sem frægastur er fyrir veru sína í Guns N’ Roses, viðurkenndi einu sinni í viðtali við BBC Radio 6 að áður en hann fór á snúruna árið 2006 hefði hann aldrei komið fram allsgáður. Edrú í fimmtán ár Slash kann lagið á gítarnum. AFP BÆKUR Ævisaga þýsku söngkonunnar, leik- konunnar og fyrirsætunnar Nico kemur út í næstu viku en hún lést aðeins 49 ára gömul árið 1988. Bókin nefnist You Are Beautiful and You Are Alone: The Biography of Nico og er eftir Jennifer Otter Bickerdike. Nico naut hylli á yngri árum, meðal annars fyrir leik sinn í La Dolce Vita eftir Federico Fellini og Chelsea Girls eftir Andy Warhol. Hún söng um tíma með The Velvet Underground áður en hún hóf sólóferil. Í breska blaðinu In- dependent kemur fram að bókin sé lipurlega skrifuð og upplýsandi og lýsi Nico sem „gall- aðri en ofboðslega heillandi manneskju“. Gölluð en ofboðslega heillandi Kápa nýju bókarinnar um söngkonuna Nico. Love Island: Vinsæll en umdeildur. Gagnrýnandi biður um hjálp EYMD Það er ekki á hverjum degi að maður rekst á umsögn um sjón- varpsþátt í dagblaði og hann fær ekki eina einustu stjörnu af fimm mögulegum. Flestir gagnrýnendur búa að þeirri kurteisi að splæsa a.m.k. einni stjörnu enda þótt þeim sé gróflega misboðið vegna eymdar efnisins. Svona eins og þegar börn fengu 1 á prófi í gamla daga fyrir að skrifa nafnið sitt rétt en ekki 0. Það er sumsé hinn geysivinsæli „raunveruleikaþáttur“ Love Island á bresku sjónvarpsstöðinni ITV, sjöunda sería, sem fær einfaldlega 0 í The Guardian. Þrátt fyrir hryll- inginn er gagnrýnandinn, Lucy Mangan, föst og bágt er úr að víkja. „Ég hata sjálfa mig en ég get ekki hætt að horfa. Hjálp, einhver, vin- samlega hjálp!“ F áir menn hafa haft meira að gera og farið víðar eftir að þeir settust í helgan stein en franski rannsóknarlögreglumað- urinn Julien Baptiste. Sérstaklega í ljósi þess að maðurinn glímir við al- varleg veikindi; er greindur með heilaæxli sem skert hefur hreyfigetu hans. Við kynntumst honum upp- haflega í bresku spennuþáttunum The Missing árið 2014; fyrst leitaði hann að ungum dreng sem hvarf í Frakklandi og síðan að ungri stúlku sem hvarf í Þýskalandi. Eftir- minnilegur og sympatískur karakt- erinn féll sjónvarpsáhorfendum í álf- unni vel í geð og næst þegar Baptiste birtist okkur var búið að nefna þættina í höfuðið á honum. Þá var okkar maður kominn til Amst- erdam, þar sem finna þurfti týnda vændiskonu, og átti meðal annars í höggi við rúmensku mafíuna og spillta hollenska lögreglumenn. Enn er Baptiste kominn á stjá í nýjum þáttum sem frumsýndir verða í breska ríkissjónvarpinu, BBC 18. júlí. Að sögn Skarphéðins Guðmundssonar, dagskrárstjóra RÚV, verða þættirnir hér á dagskrá snemmvetrar. Eftir persónulegan harmleik hefur Baptiste ýtt Celiu, hinni bresku eiginkonu sinni, frá sér og bráðvantar nýtt verkefni til að dreifa huganum. Birtist þá ekki Emma Chambers, sendiherra Breta Niðursokkinn lífeyrisþegi Hin ástsæli rannsóknarlögreglumaður Julien Baptiste snýr aftur í nýjum þáttum í mánuðinum. Hann á sem fyrr við ofurefli að etja, nú í Ung- verjalandi, en enginn skyldi þó vanmeta Baptiste. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Fiona Shaw kemur ný til skjalanna að þessu sinni; leikur sendiherra Breta í Búdapest sem verður fyrir þeim ósköpum að bóndi hennar og synir hverfa. AFP Julien Baptiste er ekki eina úrræðagóða sjónvarpspersónan sem snýr aftur í mánuðinum en önnur serían af Ted Lasso er í þann mund að hefja göngu sína á AppleTV+, fyrir þá sem hafa aðgang að þeirri ágætu veitu. Um er að ræða gam- anþætti um bandarískan ruðningsþjálfara sem óvænt er ráðinn knattspyrnustjóri liðs í ensku úrvalsdeild- inni. Þekking hans á knattspyrnu er sama og engin en Lasso bætir upp fyrir það með jákvæðu hugarfari og óhefðbundinni maður á mann-þjálfun. Að ekki sé talað um allar heimabökuðu súkkulaðibitakök- urnar. Þá reynist búningastjóri AFC Richmond betri en enginn. Ólíkt því sem margir bjuggust við var enginn Hollywood-endir á fyrstu serí- unni þegar Richmond hreinlega féll í B- deildina. Þá mun víst vera komið að reiða hlið- arsjálfinu að taka af skarið, Led Tasso, ef marka má stikluna. Jason Sudeikis leikur sem fyrr Ted Lasso og Hannah Waddingham, Juno Temple, Brett Goldstein og Nick Mohammed eru á sínum stað. Ted Lasso verður Led Tasso Ted Lasso lætur fátt koma sér á óvart. Ljósmyndakeppni mbl.is Vilt þú vinna farsíma frá Samsung eða glæsilegan ferðavinning frá Icelandair? Allar myndir sem sendar eru inn birtast á mbl.is og þemað er flug. Það er líka hægt að taka þátt á Instagrammeð myllumerkinu #mblflug 1.-2. Sæti Samsung Galaxy s21+ 3. Sæti 100.000 kr. gjafakort frá Icelandair

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.