Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.08.2021, Qupperneq 2
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.8. 2021
Verið velkomin
í sjónmælingu
Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200
Opið virka daga 9.30–18
BORGARFERÐ TIL LISSABON
07. - 11. OKTÓBER
WWW.UU.IS | HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓP. | 585 40000 | INFO@UU.IS
Iðandi mannlíf, þröngar götur, fornar byggingar, saga og
rómantík einkenna borgina Lissabon í Portúgal. Lissabon
hefur yfir sér ákveðinn þokka þar semminningar
glæstrar fortíðar Portúgala kallast á við iðandi nútímann.
Við mælummeð því að eyða góðum tíma í að skoða
portúgalska muni, njóta andrúmsloftsins og setjast niður í
drykk og fylgjast með mannlífinu í þessari spennandi borg.
VERÐ FRÁ:122.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
FARARSTJÓRI
JÓN SIGURÐUR EYJÓFSSON
INN
IFAL
IÐ:
FLUG
, GIST
ING,
INNR
ITAÐU
R FARA
NGUR
OG HAND
FARA
NGUR
Það eru tvær hliðar á flestum málum; það lærir maður í lífinu og oft
borgar sig að hlusta á þær báðar áður en ályktun er dregin. Það getur
oft verið bæði fyndið og forvitnilegt að hlusta á fólk tala í síma, og
heyra bara það sem annar segir. Það er nefnilega ekki alltaf allt sem sýnist!
Eða heyrist.
Um daginn sat ég hér í vinnunni að hamra á tölvuna þegar besta vinkona
mín hringdi í mig og sagði farir sínar ekki sléttar. Sturtan var biluð og hún
nennti ekki í sund. Ég gaf henni að sjálfsögðu góðfúslegt leyfi til að fara inn í
húsið mitt og baða sig.
Stuttu síðar hringir maðurinn hennar. Þannig er mál með vexti að í garð-
inum mínum var dautt tré, og hafði verið það lengi. Ekki spyrja mig af
hverju, en hann klæjaði í puttana að
saga það niður. Ég sé ekki í anda að
margar konur myndu fyllast þessari
löngun, en ég tók þessu boði fegins
hendi.
Á þessum tímapunkti var komið
að því að framkvæma verkið og hann
hringdi því í mig og spurði:
„Áttu keðjusög?“
Svarið mitt átti eftir að koma
vinnufélögum mínum á óvart, enda
vissu þeir bara hálfa söguna. Hann
þurfti líka að komast inn í hús til að
opna bílskúrinn til að ná í stiga,
þannig að svarið mitt hljómaði
svona:
„Nei, ég á ekki keðjusög. Farðu bara inn. Kona þín er heima hjá mér í
sturtu núna.“
Það tók mig eina mínútu að átta mig á því hvernig þetta hljómaði. Ég hefði
bara átt að bæta við, svona til að lífga upp á andrúmsloftið hér:
„Það er samt nóg af beittum hnífum í eldhúsinu!“
„Áttu keðjusög?“
Pistill
Ásdís Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
’
Ég hefði bara átt að
bæta við, svona til að
lífga upp á andrúmsloftið
hér:
„Það er samt nóg af beitt-
um hnífum í eldhúsinu!“
Aðalheiður Kara Sævarsdóttir
Fara upp í sveit til ömmu og afa og
leika.
SPURNING
DAGSINS
Hvað ætl-
arðu að gera
um versl-
unarmanna-
helgina?
Jón Arnar Guðbrandsson
Skreppa á Skagaströnd eina nótt og
svo bara vinna.
Elín Hjálmsdóttir
Ég sé fyrir mér grill á pallinum með
fjölskyldu og góðum vinum.
Víkingur Hauksson
Bara slaka á heima.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Morgunblaðið/Ásdís
STARRI HOLM
SITUR FYRIR SVÖRUM
Dystópískur
hljómur
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Starri Holm er á öðru ári í tónsmíðum við LHÍ. Hann gaf út plötuna Drunur
í fyrra. Nýjasta platan hans, Ofríki, er nú á Spotify og til sölu á BandCamp.
Um hvað fjallar platan Ofríki?
Þetta er dystópísk saga um einhvers konar nýtt afl sem kemur og iðn-
væðir allt; en ekki í þeim tilgangi að framleiða heldur útrýma. Ég vildi
hafa flæðandi þema í gegnum plötuna, en á bak við hvert lag er lítil saga.
Þetta er heimsendaplata. Á vissan hátt hefur sú stemning sem er í ís-
lenskum draugasögum eflaust líka haft áhrif á af hverju ég er svona hrif-
inn af þessum hljóðheimi.
Af hverju valdirðu svona myrkt efni?
Mér fannst það eiga svo vel við tónlistina sem ég er að gera. Ég spila á
hljóðfæri sem ég hef búið til úr brotajárni og sá hljóðheimur kallar á
þessi þemu. Ég spila líka á gítar og rafmagnspíanó en aðaláslátt-
arhljóðfærin eru þessar málmtrommur sem ég hef búið til.
Hvaða hópur hlustar á þig?
Það er til mikil menning fyrir „industrial“ tónlist og tilraunatónlist yfir
höfuð. Ég hef fengið mjög góðar viðtökur þannig að þetta virðist hitta
vel á rétta fólkið. Platan hefur fengið ágæta hlustun.
Hvert stefnir þú í tónlist?
Það sem vekur helst áhuga minn er að gera tónlist fyrir kvikmyndir, og
ég hef verið að gera það með vinum mínum í kvikmyndaskólanum.
Áttu þér fyrirmyndir í tónlist?
Já, þýsku hljómsveitina Einstürzende Neubauten en hún kveikti áhug-
ann á að gera svona tónlist og breyta hlutum í hljóðfæri. Annars eru
áhrifavaldarnir aðallega kvikmyndatónskáld.
Hvaðan hefurðu þessa hæfileika eða áhuga?
Það kemur að miklu leyti frá uppeldinu og að vera í kringum tónlist-
armenn. Svo kemur þetta með æfingunni.