Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.08.2021, Side 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.08.2021, Side 12
VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.8. 2021 „Við spyrjum innflytjendur hvort þeir taki þátt í og séu velkomnir í hópum innan sam- félagsins,“ segir Pamela. „Aðgangur að þjónustu er líka mik- ilvægur,“ segir Unnur. „Þekking á þeirri þjónustu sem er í boði. Hvernig þau frétta af því hvað sé í boði,“ segir hún en einnig skoði þær hvernig staðið sé að þessum mál- um meðal stofnana á svæðinu. „Við skoðum einnig hvaða atvinnutæki- færi séu fyrir fólk á svæðinu auk lífsgæða almennt, til dæmis hvernig sé fyrir fjöl- skyldur með börn að búa á svæðinu,“ segir Anna. Unnur segir að ekki sé um megindlega rannsókn að ræða þar sem niðurstöður verða settar fram í tölum heldur reyna þær að finna ákveðin þemu sem þær sjá í við- tölum og á meðan þær dveljast á þeim stöð- um sem rannsakaðir eru. „Við reynum einn- ig að skoða þetta í heildrænu samhengi.“ Kórónuveirufaraldurinn hamlaði þeim stöllum mikið í rannsókninni. „Faraldurinn truflaði okkur mikið og seinkaði öllum okk- ar áætlunum,“ segir Unnur. „Eins og við sögðum áðan þá reyndum við að taka þátt í viðburðum til að fá tilfinn- ingu fyrir því hvað væri að gerast en á ákveðnum tíma var bara ekkert að gerast,“ segir Anna. „Þó okkur hafi verið mjög vel tekið þá vorum við ekki alltaf velkomnar á ákveðna viðburði því við komum frá Reykjavík þar sem hæsta hlutfall smitaðra var og svo framvegis. En á hinn bóginn þá sáum við að faraldurinn hafði önnur áhrif á fólk á landsbyggðinni, til að mynda því fólki finnst það öruggara á þessum stöðum,“ seg- ir hún en þær hafa vegna faraldursins reitt sig í meira mæli á einstaklingsviðtöl en þær ætluðu, vegna fjölda- og fjarlægðartak- markana. Fólksflutningar að aukast Af hverju er mikilvægt að gera svona rann- sókn? „Mér finnst mikilvægt, bæði sem fræði- maður og persónulega, að raddir fólksins, sem fræðimenn skrifa um og stjórnmála- menn taka ákvarðanir um, heyrist,“ segir Pamela. „Við förum á staðina til að tala við þetta fólk og þeirra raddir fá pláss til að heyrast í þeim greinum sem við síðan birt- um í kjölfarið. Vegna áhrifa loftslagsbreyt- inga og þeirra átaka sem eiga sér stað um allan heim verður auk þess sífellt meira um fólksflutninga. Við viljum vita hvernig við gerum ferli flutninga betra fyrir fólk, svo það finni fyrir öryggi, finnist það velkomið og skilji þær áskoranir sem það stendur frammi fyrir. Ég held að það sé mjög mik- ilvægt.“ Unnur bætir við að það sé mikilvægt fyr- ir okkur öll að sjá samfélagið sem hreyfan- legt og breytanlegt en ekki eitthvað sem er stöðugt og ávallt eins. „Fólksflutningar eru stórt umræðuefni um allan heim í dag,“ segir Anna. „Við get- um skoðað flutninga fólks á strjálbýlum svæðum betur en í borgum og þess vegna getum við sagt hvernig aðfluttum líður og hvað öðrum finnst um aðflutta. Við viljum bæta við umræðuna,“ segir hún. „Það er svo mikið af alhæfingum sem not- aðar eru í umræðunni sem ekki eru byggð- ar á staðreyndum,“ bætir Unnur við. „Okk- ar hlutverk sem fræðimenn er að bæta þekkingu við þessa umræðu,“ segir hún en markmið hópsins er að gefa út nokkrar fræðigreinar byggðar á rannsóknunum, kynna niðurstöðurnar fyrir öðrum og veita ráðgjöf til sveitarfélaga og annara á svæð- unum ef þess verður óskað. Veglegur styrkur Styrkurinn sem rannsóknin hlaut frá Vís- indastofnun Bandaríkjanna var veglegur. Tæplega 900 þúsund bandaríkjadölum, jafngildi tæplega 112 milljóna króna, var veitt til verkefnisins. Styrknum er ætlað að dekka allan kostnað við rannsóknina fram að sumrinu 2023, þar á meðal allan ferðakostnað og laun Önnu sem nýdokt- ors. Þá hafa Unnur og Pamela þurft að minnka við sig í vinnu í sínum stöðum hja HÍ og Háskólanum í Wyoming þar sem þær sinna meðal annars kennslu. Að lokum segjast Unnur, Pamela og Anna ekki geta tjáð sig um niðurstöður rannsóknarinnar á þessari stundu þar sem það gæti haft áhrif á þá sem muni taka þátt í henni síðar meir. „Við höfum þó nú þegar farið að kynna fyrstu niður- stöður á rannsóknarráðstefnum,“ segir Unnur. Sauðárkrókur í Skagafirði. Skagafjörður er eitt þeirra sveitarfélaga þar sem fræðimennirnir þrír hafa dvalist og tekið viðtöl við íbúa. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Bæði Anna Wojtynska og Pamela Innes hafa búið á Íslandi um nokkurt skeið, tala báðar ágæta íslensku og líkar lífið hér á landi vel. Anna Wojtynska kom hingað fyrst fyrir um 25 árum, þá 21 árs gömul. „Þá fluttist mikið af Pólverjum hingað í minni þorp úti á landi til að vinna í fiskvinnslu. Það var ekki fyrr en nokkrum árum seinna, í góðærinu, sem fólk frá Póllandi fór að flytjast til höfuð- borgarsvæðisins í eins miklum mæli,“ segir Anna. „Þróunin er að einhverju leyti að snúast við núna, fólk flyst meira út á landi, að hluta til vegna aukins fjölda ferðamanna,“ segir hún. „Þegar ég kom fyrst hingað var það einungis yfir eitt sumar vegna rann- sókna fyrir meistararitgerð mína,“ segir Anna en hún kynnist manni sínum hér á landi það sumarið og ákvað að flytjast hingað alfarið stuttu seinna. „Það var kona sem ég tók viðtal við þetta sumarið og hún sagði, „þú munt koma aftur,“ sem ég svo gerði,“ segir Anna en hún stundaði seinna dokt- orsnám við Háskóla Íslands. „Ég þarf að hafa samband við þessa konu og segja henni að hún hafi verið sannspá,“ segir Anna sposk. Anna segir aðlögun hennar að ís- lensku samfélagi ekki hafa verið erfiða. „Í gegnum rannsóknir mínar þetta sum- arið kynntist ég bæði Pólverjum og Ís- lendingum. Því þegar ég kom aftur og fluttist hingað þekkti ég þegar nokkuð af fólki. Þetta var því nokkuð mjúk lending hjá mér,“ segir hún og bætir við að háskólaumhverfið sé þægilegt fyrir þá sem flytja hingað að utan. Hentar vel til rannsókna „Ég fékk nokkuð mjúka lendingu líka,“ segir Pamela. „Ég kom fyrst vegna fræðistarfa og Kristín Loftsdóttir [pró- fessor í mannfræði við HÍ] gerði mér kleift að halda nokkra fyrirlestra hér. Svo kynntist ég Unni og við unnum vel saman. Í framhaldi af því fékk ég styrk frá Fulbright-sjóðnum og var hér í um ár og kynntist mörgum.“ Pamela segist hafa fengið hlýjar mót- tökur hér á landi og við háskólann. „Og nú hafa liðið 10 ár síðan ég kom fyrst.“ Pamela er einn fjórði Íslendingur en faðir hennar er kominn af Vestur- Íslendingum. „Það var þó ekki aðal- ástæðan fyrir því að ég hafði áhuga á að gera rannsóknir hér. Ástæðan var sú að Íslendingar hafa gert vel í halda skrár yfir allar breytingar, trúarbrögð, tungumál og annað sem við skoðum, en tungumál eru meginviðfangsefni mitt. Svo höfðu orðið miklir fólksflutn- ingar hingað á skömmum tíma og því hentaði Ísland vel til að skoða hvaða aðferðir við tungumálakennslu og að- lögun fólks að samfélaginu virkuðu best.“ Þótt Pamela sé búsett hér á landi þá kennir hún við Háskólann í Wyoming. „Núna fer öll kennsla fram í gegnum netið vegna faraldursins svo ég get kennt héðan. Og vegna þess hve stór styrkurinn og verkefnið er þá hefur skólinn leyft mér að vinna héðan.“ Mjúk lending

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.