Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.08.2021, Page 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.08.2021, Page 14
Í einum af bröggum gömlu kartöflu- geymslunnar í Ártúnsbrekku má nú finna innsetningu Hrafnhildar Arnar- dóttur, sem gengur undir listamanns- nafninu Shoplifter. Sýningin Chromo Sapiens var framlag Íslands á Feneyjatvíær- ingnum árið 2019 og síðar sett upp í Listasafni Reykjavíkur árið 2020 en er nú komið á stað þar sem Hrafnhildur vill hafa það til fram- búðar. Innan skamms verður það opið almenn- ingi en Hrafnhildur er í óða önn að gera upp húsið ásamt góðu fólki. Blaðamaður dreif sig í heimsókn og hitti fyrir listakonuna litríku. Hrafnhildur tekur brosandi á móti blaða- manni, í skærlitum fötum eins og hennar er von og vísa. Hún er með blágrænar augabrúnir og ýmsa liti í hárinu sem eru í stíl við verkin hennar, sem unnin eru úr hári; annaðhvort al- vöru mannshári eða gervihári. Sýningin er klár en það er enn allt á rúi og stúi í móttöku- og fjölnotabragganum. Hrafnhildur hefur dvalið á Íslandi síðan far- aldurinn hófst og hefur ekki setið auðum hönd- um, en hún hafði lengi haft augastað á brögg- unum og hafði fyrirætlanir um að þar skyldi rísa lista- og menningarmiðstöð í þessari földu perlu í Ártúnsbrekkunni. Hún brennur í skinn- inu að opna braggana sína almenningi og leyfa fólki að njóta listar, náttúru og veitinga. Sveitasæla í Reykjavík „Við erum búin að vera að gera þetta allt sam- an upp, en þetta er meiriháttar hús. Við ætlum að opna hér kaffihús með þessum líka stóra útipalli sem snýr í suður. Ég hugsa að þetta verði besti staðurinn til að fara á trúnó á Ís- landi,“ segir Hrafnhildur og lýsir framtíðarsýn sinni, en braggana tvo keyptu hún og sam- starfskona hennar Lilja Baldursdóttir nýlega. „Hér er maður alveg við Elliðaárdalinn og ekkert sem byrgir manni sýn á náttúruna. Fólk þarf ekkert endilega að koma á sýn- inguna, heldur getur það komið á kaffihúsið. Þetta er sveitasæla inni í miðri Reykjavík og allt annað andrúmsloft en í miðbænum,“ segir Hrafnhildur og segist sjá fyrir sér að í hinum fimm bröggunum verði einnig lista- og menn- ingarstarfsemi af einhverju tagi. „Þessir braggar voru upphaflega sprengi- geymslur hersins í Hvalfirði en voru fluttir hingað til þess að nota sem kartöflugeymslur. Ég man eftir að hafa komið hingað sem barn að ná í spírur. Svo tók Kristinn Brynjólfsson við þessu og hefur unnið að því að opna hér lista- og menningarmiðstöð og komst vel áfram með að gera upp braggana, en ekki hef- ur nein langtímastarfsemi hafið sig til flugs fyrr en nú,“ segir Hrafnhildur og sýnir blaða- manni inn í hinn braggann þar sem verkinu Chromo Sapiens hefur verið komið upp. Bragginn sem mun hýsa kaffihúsið verður einnig salur með ýmsa möguleika fyrir við- burði eins og tónleika, móttökur og hvers kyns uppákomur svo eitthvað sé nefnt. Hrafnhildur segist einnig sjá fyrir sér að með tíð og tíma verði opnaður fínn veitingastaður þar líka, á millipöllum í rýminu. „Þetta er svo tryllt! Ég er svo ofboðslega spennt fyrir þessu!“ segir Hrafnhildur sem valdi það alíslenska nafn Höfuðstöðin fyrir menningarhof sitt. „Þetta eru ekki höfuðstöðvar, heldur Höf- uðstöðin. Hárið vex á höfðinu, við erum á Höfð- anum, á Rafstöðvarvegi. Svo er höfuðstöðin sjöunda orkustöðin samkvæmt jógafræðum. Þar býr víst sælan,“ segir Hrafnhildur og segir að þær vildu alls ekki hafa nafnið á ensku. „Við byrjuðum fyrir fjórum mánuðum og stefnum á að opna sýninguna og kaffihúsið hið fyrsta.“ Verkið á heima hér Hrafnhildur segir verkið þannig úr garði gert að það passi alls ekki inn í hvaða rými sem er, og auk þess sé dýrt að setja það upp. Það var geymt í gámi um hríð en listasöfn erlendis höfðu falast eftir að setja það upp hjá sér. „Mig dreymdi um að verkið fengi að eiga heima á Íslandi og standa hér. Það er ekki endilega öll myndlist til þess fallin að vera til sýnis um ókomna tíð, en mér finnst þetta verk standa undir því að laða til sín gesti til langs tíma. Þetta verk er mikið upplifunarverk og verkið nú þegar búið að sanna sig hvað varðar aðdráttarafl. Chromo Sapiens er svo mikið litabað; svo mikil heilun að dvelja inni í verkinu og njóta hljóðmyndar HAM sem er sérsamin fyrir verkið,“ segir Hrafnhildur. „Verkið fannst mér eiga heima hérna. Og svo allt í einu sé ég þessa bragga til sölu! Ég bjó í Ártúnsholtinu um tíma og fjölskyldan er hér enn þá þannig að ég elska þetta hverfi og dalinn og það er löngu tímabært að hér sé opn- að kaffihús og áningarstaður sem stuðlar að samveru fólks. Svo hef ég alltaf haft áhuga á óvenjulegum arkitektúr og verið sjúk í þetta braggaform síðan ég var lítil stelpa. Allt sem ég geri þarf að vera pínulítið skringilegt. Þetta small allt saman,“ segir hún. „Þetta á að vera Shoplifter-safn, alveg eins og safn Einars Jónssonar eða Ásmundar Sveinssonar. Þeir byggðu sér sjálfir hof en ég held að engin núlifandi íslensk kona hafi gert það upp á eigin spýtur. Ég er með þessa sýn fyrir þetta verk og Lilja er meðstofnandi og fjárfestir í verkefninu,“ segir Hrafnhildur og útskýrir að þær stöllur séu að kosta verkefnið sjálfar og hafi sett af stað söfnun á Kickstarter til þess að hjálpa til við að greiða fyrir fram- kvæmdirnar sem reyndust þó nokkrar. Hug- myndin er að safna tólf milljónum og nú þegar hefur rúmlega helmingur af því safnast. Sá hængur er á söfnuninni að ef ekki næst að safna tólf milljónum fyrir sunnudaginn 8. ágúst 2021, þá fæst fjármagnið ekki greitt. Á Kickstarter-síðunni er boðið upp á að kaupa ýmsan varning tengdan Höfuðstöðinni og er Hrafnhildur í samstarfi við Karlsson- wilker grafík- og vöruhönnuði. Á síðunni er svo líka hægt að eignast listaverk eftir Shoplifter, bóka fjölnota salinn og einfaldlega kaupa miða á sýninguna fyrirfram. „Ég er í raun hönnuður líka og það á vel við mig því ég hef fundið leið til að finna myndlist- inni sjálfstæðan farveg í hönnun á fatnaði og vörum, án þess að það trufli hvort annað. Ég er maximalískur popplistamaður; fjöldafram- leiðsla er ákveðið viðfangsefni í myndlistinni og hluti af efnisnotkun og það er sífellt algeng- ara að listamenn markaðssetji vörur sem tengjast myndlistinni. Ég nota efnivið sem er fjöldaframleiddur og bý til eitthvað annað úr honum. Ég endurvinn líka allt þetta gervihár, endurnýti og finn því annan og nýjan tilgang.“ New York hefur verið heimili Hrafnhildar Sælan býr í Höfuðstöðinni Listakonan Hrafnhildur Arnardóttir hefur nú fundið heimili fyrir verk sitt Chromo Sapiens í safni sínu Höfuðstöðinni. Hún hefur búið á Íslandi und- anfarið og notað tímann til að koma safninu á fót, en einnig opnaði hún sýn- inguna Boðflennu í Hrútey við Blönduós. Þar sýnir hún útilistaverk sem hún vann beint inn í náttúruna. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Morgunblaðið/Ásdís VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.8. 2021

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.