Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.08.2021, Page 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.08.2021, Page 17
2) Ef svo væri ekki var málinu lokið. Bæri honum að taka málið til efnislegrar meðferðar kæmi efnis- niðurstaða. Fimm dómarar töldu að taka bæri málið efnislega fyrir, en fjórir dómarar voru á móti því. Þá yrði því svarað hver úrslitin í Flórída urðu eftir talningu sem staðið hafði í margar vikur! Sjö dóm- arar af níu sögðu að George W. Bush hefði unnið Flórída, sem þýddi að hann var réttkjörinn forseti Bandaríkjanna. Það var mjög afgerandi niðurstaða og aulalegt að hanga á að Hæstiréttur hefði verið með eindæmum klofinn. Að sjálfsögðu hefði efnis- lega niðurstaðan verið jafngild þótt „aðeins“ hefðu fimm dómarar af níu staðið að dómsorðinu. Gefi menn sér að Hæstiréttur Bandaríkjanna sé svo skiptur eftir pólitík, sem er fjarri því að speglast í niðurstöðum hans, hvers vegna fékk Trump ekki einu sinni áheyrn hjá réttinum? Eins og sást á því hversu lengi Hæstiréttur lét skrípaleikinn í Flórída skaða orðspor Bandaríkj- anna, og kom sér undan afskiptum, þar til fullreynt var að þau voru orðin óhjákvæmileg, hlaut hann einnig að fara með löndum nú. En við það bættist að repúblikanar höfðu haft rýmileg tækifæri til að bregðast við og kalla eftir viðhorfi dómstólanna miklu fyrr. Getgátur voru uppi um að lykilmenn í flokksstarfinu hefðu talið að málaferli á þessu stigi yrðu flokknum skaðleg í atkvæðum talið. Mjög auð- velt hefði verið að gera flokk forsetans tortryggi- legan í þessum efnum. Repúblikanar hefðu hins vegar ekki haft ímyndunarafl til að sjá fyrir hversu langt demókratar hefðu verið tilbúnir til að ganga. Of stór biti Málatilbúnaður af hálfu repúblikana gagnvart dóm- stólum og þá að lokum Hæstarétti Bandaríkjanna, hefði, úr því sem komið var, verið krafa um að snúa við úrslitum sem þá virtust liggja fyrir í forseta- kosningum ríkisins! Það hefði verið nánast óbæri- legt fyrir réttinn og eininguna í Bandaríkjunum að koma nálægt slíku. Einhver kynni að skella í góm og segja að sú ein- ing hefði ekki verið upp á marga fiska síðustu árin, en það er önnur saga. Dómstólaslagur á fyrri stig- um hefði verið allt annað mál, þótt það sé ætíð tví- bent. Hver sem úrslitin hefðu verið um t.d. spurn- inguna hvort ríkisstjórar geti tekið sér vald, vegna atriða eins og veirufaraldurs, til að breyta tilhögun og umgjörð kosninga, sem ótvírætt er að stjórnar- skrá Bandaríkjanna leggur í vald ríkisþinganna, hefðu aldrei leitt til þeirrar óeiningar sem hitt, að Hæstiréttur Bandaríkjanna teldi sig nauðbeygðan til að „breyta úrslitum“ kosninga vegna stórgall- aðrar umgjörðar um þær, sem ekki hafði verið láta reyna á með nægjanlegum styrk, strax þegar þeir tilburðir lágu fyrir. En við spurningunni sem stund- um er til umræðu um að demókratar hafi með „trikkum“ stolið kosningunum af Trump má gefa tvenns konar svör. Yfirgnæfandi líkur standa til að frambjóðandi demókrata hefði aldrei náð að vinna þau kjördæmi þar sem umgengnin um atkvæðin var hvað svakalegust nema með þeim aðferðum sem þeir beittu. Forsetinn og flokkur hans sáu að nokkru leyti til hvers refirnir voru skornir. Marg- vísleg opinber ummæli þeirra sýna það. Þótt nokkr- ar óburðugar tilraunir og gjarnan síðbúnar hafi verið uppi um að koma málum til dómstóla þá var það í skötulíki og skorti allan þunga. Hæstiréttur Bandaríkjanna leyfði ekki áheyrn um meinta ágalla sem taldir voru vera á kosningunum, eða um valdþurrð við ákvörðun um þær. Þegar þannig var komið, þá er afstaða réttarins skiljanleg og sennilega eðlilegur kostur. Það fylgir því oft heilmikil sjálfsásökun að vakna upp „vitur eftir á“. Donald Trump hafði, sem forseti fyrstu tvö árin, meirihluta í báðum deildum þings- ins og hefði getað nýtt tíma sinn betur en hann gerði. Hann hefði til að mynda getað beitt sér fyrir því að breyta umgjörð bandarískra kosninga í átt við það sem best þekkist annars staðar. En þótt Trump hefði verið svo framsýnn er ekki óhugsandi að flokkur demókrata hefði samt sem áður getað náð að misnota aðstöðu sína í einstökum ríkjum með vísun til kórónuveirunnar. Þeir svifust einskis þegar Trump átti í hlut, eins og galdrafárið um samsæri Pútíns og Trumps sýnir, sem var frá upp- hafi til enda byggt á samsuðu sem kosningastjórn Demókrataflokksins hafði látið gera og kostaði. Eftiráspekin bendir einnig til þess að repúblik- anar hefðu sjálfir getað brotist inn í leikfléttu demókrata og tryggt með einföldum hætti að kjör- fundir stæðu í allmarga daga og væru opnir lengur og engin atkvæði yrðu talin fyrr en öll atkvæði væru komin í hús, eins og gert var á sínum tíma í lok heimsstyrjaldar, t.d. í Bretlandi til að tryggja að fjölmenn herlið þeirra, þá um víða veröld, næðu að kjósa. Sú brjálæðislega aðferð að sturta atkvæð- um heim eftir óskum einstaklinga, sem kjörstjórnir þekktu engin deili á, og treysta þeim fyrir kosn- ingum og láta svo safna þeim saman í útboði, er auðvitað einhver ósvífnasti pólitíski leikur sem hægt er að leggja í. En það er búið og gert. Og þar sem það var ekki fyrr en á lokaspretti að leitað var atbeina dómstóla um vafasama aðkomu, sem Hæstiréttur hafnaði, sitja menn sárir og svekktir uppi með niðurstöðu hans. Þar með verða menn að kyngja því að settur hefur verið punktur. Biden telst því samkvæmt lagabókstafnum réttkjörinn forseti. Hversu lengi sú niðurstaða dugar honum er önnur saga, eins og nýj- ustu dæmin um afrek hans sýna. Tekur þetta með trukki Fréttir voru um það sama daginn að Biden hefði sagt við blaðamenn „að forsetinn hefði falið sér sem varaforseta, það var Trump forseti, ó, nei, þetta var „freudian slip“, það var Obama forseti …“ Og við annan hóp sagði hann „að það kæmi sjálfsagt mörg- um á óvart að hann hefði sem bílstjóri keyrt 18 hjóla trukk“. Og Biden átti kollgátuna, þetta kom blaðamönn- um á óvart, ekki síst þar sem það þarf sérstök rétt- indi og uppfærð skírteini til að fara með slík ferlíki út á þjóðvegina, sem Biden virtist hafa gert. Blaðafulltrúi forsetans var ítrekað spurður út í þetta afrek en lengst af var lítið um svör. Þráspurð sagði blaðafulltrúinn loks að það væru vísbendingar um að Biden hefði einhvern tíma setið frammi í hjá bílstjóra á stórum trukk! Fyrir mörgum árum, þegar Joe Biden var miklu yngri, sagði hann blaðamönnum að hann hefði farið til Suður-Afríku og bjargað þar Nelson Mandela, síðar forseta, úr fangelsi! Þetta hafði enginn heyrt, ekki einu sinni Mandela. En kannski hefur hann gert heiðarlega tilraun til þessa. Farið á 18 hjóla trukknum með Arnold Schwarzenegger undir stýri (sem hefur örugglega full réttindi) og Nelson Mandela hefur svo setið á milli þeirra þjótandi á vit frelsisins. Í slíkum ógnar- leiðangi er hreint smáatriði, eða þá freudian slip, hvort það var Obama eða Trump sem sendi hann í þennan leiðangur. Eða Freud sjálfur. Morgunblaðið/Árni Sæberg ’ Hér á Íslandi hefur verið gasprað af tölu- verðu yfirlæti, og enn meira þekkingar- leysi, að engir evrópskir leiðtogar hafi tekið undir það að eitthvað hefði verið bogið við framkvæmd kosninga í Bandaríkjunum núna. Ekki eru þeir þó margir til á þeim slóð- um sem hafa reynt að halda því fram að fyrr- nefnd tilhögun kosninga hefði verið talin standast skoðun í nokkru ríki í Evrópu. 1.8. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.