Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.08.2021, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.8. 2021
LÍFSSTÍLL
Á
síðasta degi Íslandsferðar
parsins Hönnuh og Nikos
fór blaðamaður til fundar
við þau á kaffihúsi í miðborginni.
Þau höfðu þá klárað að hjóla hring-
inn um landið, með ýmsum útúr-
dúrum upp á hálendið, á tveimur
mánuðum. Hin þýska Hannah hefur
aðallega orð fyrir þeim, en Niko,
sem er frá Georgíu, er ekki nógu
sleipur í ensku og blaðamaður ansi
ryðgaður í þýskunni. Parið býr í
Berlín en þar hafa þau búið síðustu
fimm ár. Niko er í sálfræðinámi og
Hannah hefur nýlokið námi í heim-
speki og er auk þess myndlist-
armaður, en þau skötuhjú eru að
flytja til Portúgals þar sem hún
mun stunda list sína og fara í fram-
haldsnám. En áður en þau hefja
nýtt líf í Portúgal skelltu þau sér yf-
ir hafið með tjald og hjól í fartesk-
inu.
Virðing fyrir náttúrunni
Eftir sóttkví lögðu þau af stað hjól-
andi hringinn og fóru norðurleiðina.
Ferðin byrjaði með skelli, svo að
segja, en þau lögðu af stað einn
vindasamasta dag sumarsins. Þann
dag fuku margir húsbílar og vagnar
á hliðina og líklega fleiri en sagt var
frá í fréttum!
„Það var eins og Ísland væri
strax í upphafi að reyna að kenna
okkur að bera virðingu fyrir landinu
og náttúrunni. Við vorum varla
komin út fyrir höfuðborgina þegar
við lentum í svo miklum vindhviðum
að við þurftum að leggja hjólunum í
brekku og leita skjóls. Við fundum
stað þar sem húsbílar voru greini-
lega til sölu, en þeir stóðu þarna á
bílaplani. Við leituðum skjóls á milli
þeirra og þegar við ætluðum síðan
að athuga með hjólin okkar kom
vindhviða og feykti einum hús-
bílnum yfir á hinn enda plansins.
Við vorum heppin að verða ekki fyr-
ir, en við hlupum í burtu. Þegar við
komum aftur sáum við að tveir aðrir
húsbílar höfðu fokið niður brekkuna
og við héldum fyrst að þeir hefðu
lent á hjólunum okkar. Við fundum
ekki hjólin, en þá hafði fólk þarna
borið hjólin okkar upp og hringt í
lögguna, af ótta við að við lægjum
slösuð undir húsbílunum. Þetta var
fyrsti dagurinn okkar!“ segir hún.
„Þetta kennir manni að við erum
ekki stærri en náttúran. Eins og
með öll flóðin í Þýskalandi; það hef-
ur kennt manni að við stjórnum ekki
náttúrunni.“
Brosin eru frá hjartanu
Veðrið skánaði sem betur fer og
parið gat haldið áfram ferð sinni. Á
leiðinni hittu þau margt fólk, bæði
Íslendinga og útlendinga.
„Mikilvægast fannst okkur að
hitta Íslendinga. Við fundum fyrir
gestrisni og örlæti sem fór fram úr
okkar björtustu vonum. Um daginn
vorum við á tjaldstæði og þurftum
að taka rútu, en rútan keyrði
framhjá og öll okkar plön fóru út
um þúfur. Við vorum mjög leið, en
þarna var íslensk kona sem var svo
góð við okkur. Hún hjálpaði okkur
og við þurftum ekki að borga nótt-
ina. Við vorum ekki með mat því
þarna var engin búð, en hún kom
með mat handa okkur. Daginn eftir
kom hún til okkar með kampavín og
súkkulaði. Fólk var ekki bara gott
við okkur; það var meira en gott!
Þetta er bara nýjasta dæmið en við
lentum í mörgu svipuðu á leiðinni,“
segir Hannah og segir áberandi
hversu einlægir Íslendingar eru.
„Ég er alin upp að hluta í Banda-
ríkjunum og þar eru allir brosandi
alltaf en hér eru engin gervibros. Ef
einhver brosir hér er það frá hjart-
anu. Þessi skapgerð ykkar passar
vel við Niko, hann er alvarlegri en
Morgunblaðið/Ásdís
Erum ekki stærri en náttúran
Hannah Scharmer og Niko Samkharadze hjóluðu hringinn og segja ferðina hafa breytt sér. Þau dásama
land og þjóð og segja Íslendinga bæði örláta og gestrisna.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Vík í Mýrdal var einn af stöðunum sem Hannah og Niko dásömuðu. Niko gengur í lúpínubreiðu, en parið gekk mikið úti í náttúrunni.
Niko frá Georgíu og Hannah frá
Þýskalandi hjóluðu hringinn um Ís-
land á tveimur mánuðum. Þau voru
ekkert að flýta sér og sögðu ferðina
hafa breytt sér til hins betra.