Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.08.2021, Page 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.08.2021, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.8. 2021 ÓLYMPÍULEIKAR Þ egar Naomi Osaka tendraði ólympíueldinn á setningarhátíð Ól- ympíuleikanna í Tókýó á föstudag og markaði þar með upphaf leikanna sem nú fara fram, fetaði hún í fótspor Mu- hammads Ali, Waynes Gretzky, Ste- ves Nash og annarra merkra íþróttamanna. Nú, og auðvitað í fót- spor hins þýska Fritz Schilgen. Fyrir þá sem ekki þekkja til, fæddist Schilgen árið 1906 í Þýska- landi. Hann æfði hlaup af kappi samhliða námi í rafmagnsverkfræði við Tækniháskólann í Darmstadt og varð þriðji á þýska meistaramótinu í 1.500 metra hlaupi árin 1931 og 1933. Árið 1936 voru Ólympíuleikarnir haldnir í Berlín í Þýskalandi og var Schilgen valinn af sérstakri „fag- urfræðinefnd“ leikanna til að vera sá fyrsti til að hlaupa með ólympíu- eldinn síðasta spölinn og tendra hann á opnunarhátíðinni. Schilgen keppti ekki á leikunum en var valinn vegna þess hve fallegan hlaupastíl hann hafði en hlauparinn átti að vera táknmynd þýskrar íþrótta- æsku. Hlaup Schilgen með eldinn gegndi síðar stóru hlutverki í heim- ildamynd Leni Riefenstahl, Olympia, um leikana. Gríðarlegum fjármunum eytt Adolf Hitler og nasistaflokkur hans komust til valda í Þýskalandi árið 1933. Ólympíuleikunum hafði verið útdeilt til Berlínar tveimur árum áð- ur og sá Hitler sér leik á borði að nota leikana til að auglýsa og vekja athygli á vafasömum gildum flokks- ins eins og yfirburðum hvíta manns- ins og þýsku þjóðarinnar. Þá var þýskum gyðingum meinað að taka þátt í leikunum með ýmsum leiðum þó nokkrir sundmenn af gyðinga- ættum hafi tekið þátt. Þegar leikarnir fóru fram var uggur í mönnum utan Þýskalands vegna kynþáttahaturs þýskra stjórnvalda og innrásar þeirra í Rín- arlönd. Hitler vildi breyta ímynd þriðja ríkisins út á við og var því markmiðið að halda sem stórkost- legasta leika sem myndu vekja undrun hjá þeim sem fylgdust með. Því var ráðist í miklar framkvæmdir fyrir leikana og var ólympíu- leikvangurinn í Berlín reistur fyrir leikana og rúmaði þá rúmlega 100 þúsund manns í sæti auk þess sem fleiri byggingar voru reistar. Gríð- arlegum fjármunum var eytt til að gera leikana sem glæsilegasta. Nútímaleikarnir fæddir Fyrstu beinu sjónvarpsútsending- arnar af íþróttum voru sendar út frá leikunum. Tæknin var ekki langt á veg komin á þessum tíma og því er ekki hægt að segja að nasistarnir hafi verið brautryðjendur í sjón- varpsútsendingum. Í útvarps- útsendingum voru þeir það hins veg- ar. Mikið var lagt í að öll tækni til út- varpsútsendinga væri eins og best væri á kosið og kostnaður erlendra útvarpslýsenda var niðurgreiddur af þýskum stjórnvöldum. Heimsins bestu hljóðnemar sem tóku upp hljóð í mun betri gæðum en áður þekktist voru hannaðir af þýskum verkfræðingum. Því var hægt að hlusta á beinar útsendingar frá leik- unum alls staðar í heiminum á sama tíma. Á leikunum á undan, 1932 í Los Angeles, var ekki sama áherslan lögð á að heimurinn allur fengi að fylgjast með því sem gerðist. Þar óttuðust menn að ef útsendingar væru of góðar kæmi það niður á miðasölu á leikunum. Þjóðverjar vildu hins vegar miklu frekar stunda áróður og upplýsa heimsbyggðina um ágæti sitt heldur en að selja nokkra miða til viðbótar. Fór svo að hlustendur voru um 300 milljónir hið minnsta en á þeim tíma höfðu langt því frá eins margir fylgst með við- burði í beinni útsendingu áður. Ein skoðun er sú að þarna hafi leikarnir eins og við þekkjum þá í dag, sem risastór viðburður á heimsvísu, orð- ið til. Bjuggu til hlaupið Stór þáttur í áróðri nasista var áð- urnefnd heimildamynd Leni Riefen- stahl um leikana. Riefensthal er af mörgum talin einn hæfileikaríkasti og áhrifamesti leikstjóri 20. ald- arinnar og hún nýtti sér ýmsar nýj- ungar við gerð Olympia. Hún lét til að mynda grafa skurð við hlið lang- stökksgryfjunnar á ólympíu- leikvanginum svo hægt væri að fylgja keppendum er þeir svifu um loftið. Þá notaði hún vatnsheldar myndavélar svo hægt var að fylgja dýfingarfólki niður í vatnið þegar það lenti. Einn dramatískasti viðburður myndarinnar var hlaup Fritz Schil- gen með kyndilinn sem hann notaði til kveikja ólympíueldinn. Raunar var sú hefð að kveikja eldinn í Ól- ympíu í Grikklandi og hlaupa með hann til gestgjafa leikanna í löngu boðhlaupi sett á laggirnar af nasist- unum. Ólympíueldurinn leit dagsins ljós í fyrsta sinn á leikunum í Amst- erdam 1928 og sást aftur í Los Ang- eles 1932 en var ekki gert hátt undir höfði og kveiktur á staðnum. Fyrir leikana í Berlín fór fyrsti hlauparinn af stað í júlí 1936 og var hlaupið í gegnum Grikkland, Búlgaríu, Júgó- slavíu, Ungverjaland, Austurríki og Tékkóslóvakíu áður en endað var í Berlín með hlaupi Schilgen. Hver hlaupari hljóp einn kílómetra með eldinn. Hitler var mikill aðdáandi grískra guða og gyðja og vildi að leikarnir í Berlín stæðu fyrir yfirburði og full- komnun þýsku þjóðarinnar. Voru leikarnir því fullir af vísunum í gríska sögu og þá sérstaklega upp- runa leikanna í Grikklandi. Hlaup með ólympíueldinn hafði ekkert með upprunalegu leikana að gera. Þótt stjórnvöld í Þýskalandi væru illa lið- in um heim allan á þessum tíma og ættu eftir að gera mikinn óskunda á næstu árum með því að hefja síðari heimsstyrjöldina, höfðu þau mik- ilvæg áhrif á leikana sem móta þá enn þann dag í dag. Fritz Schilgen hleypur með Ólympíueldinn á leikunum í Berlín 1936 við mikla aðdáun viðstaddra. Ljósmyndir/Wikipedia Arfleið Hitlers Það hugsa líklega fáir um Adolf Hitler og Þýska- land nasismans þegar horft er á kyndilberana hlaupa með ólympíueldinn í aðdraganda Ólympíuleikanna. Staðreyndin er þó sú að Ólympíuleikarnir í Berlín 1936 höfðu mikil áhrif á leikana sem á eftir komu og gera enn. Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is Myndavélin sem notuð var til beinna sjónvarpsútsendinga á leikunum. Það geta allir fundið eitthvað girnilegt við sitt hæfi Freistaðu bragðlaukanna ... stærsti uppskriftarvefur landsins!

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.