Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.08.2021, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.8. 2021
ÓLYMPÍULEIKAR
Þ
egar Naomi Osaka
tendraði ólympíueldinn
á setningarhátíð Ól-
ympíuleikanna í Tókýó
á föstudag og markaði
þar með upphaf leikanna sem nú
fara fram, fetaði hún í fótspor Mu-
hammads Ali, Waynes Gretzky, Ste-
ves Nash og annarra merkra
íþróttamanna. Nú, og auðvitað í fót-
spor hins þýska Fritz Schilgen.
Fyrir þá sem ekki þekkja til,
fæddist Schilgen árið 1906 í Þýska-
landi. Hann æfði hlaup af kappi
samhliða námi í rafmagnsverkfræði
við Tækniháskólann í Darmstadt og
varð þriðji á þýska meistaramótinu í
1.500 metra hlaupi árin 1931 og
1933.
Árið 1936 voru Ólympíuleikarnir
haldnir í Berlín í Þýskalandi og var
Schilgen valinn af sérstakri „fag-
urfræðinefnd“ leikanna til að vera
sá fyrsti til að hlaupa með ólympíu-
eldinn síðasta spölinn og tendra
hann á opnunarhátíðinni. Schilgen
keppti ekki á leikunum en var valinn
vegna þess hve fallegan hlaupastíl
hann hafði en hlauparinn átti að
vera táknmynd þýskrar íþrótta-
æsku. Hlaup Schilgen með eldinn
gegndi síðar stóru hlutverki í heim-
ildamynd Leni Riefenstahl,
Olympia, um leikana.
Gríðarlegum
fjármunum eytt
Adolf Hitler og nasistaflokkur hans
komust til valda í Þýskalandi árið
1933. Ólympíuleikunum hafði verið
útdeilt til Berlínar tveimur árum áð-
ur og sá Hitler sér leik á borði að
nota leikana til að auglýsa og vekja
athygli á vafasömum gildum flokks-
ins eins og yfirburðum hvíta manns-
ins og þýsku þjóðarinnar. Þá var
þýskum gyðingum meinað að taka
þátt í leikunum með ýmsum leiðum
þó nokkrir sundmenn af gyðinga-
ættum hafi tekið þátt.
Þegar leikarnir fóru fram var
uggur í mönnum utan Þýskalands
vegna kynþáttahaturs þýskra
stjórnvalda og innrásar þeirra í Rín-
arlönd. Hitler vildi breyta ímynd
þriðja ríkisins út á við og var því
markmiðið að halda sem stórkost-
legasta leika sem myndu vekja
undrun hjá þeim sem fylgdust með.
Því var ráðist í miklar framkvæmdir
fyrir leikana og var ólympíu-
leikvangurinn í Berlín reistur fyrir
leikana og rúmaði þá rúmlega 100
þúsund manns í sæti auk þess sem
fleiri byggingar voru reistar. Gríð-
arlegum fjármunum var eytt til að
gera leikana sem glæsilegasta.
Nútímaleikarnir fæddir
Fyrstu beinu sjónvarpsútsending-
arnar af íþróttum voru sendar út frá
leikunum. Tæknin var ekki langt á
veg komin á þessum tíma og því er
ekki hægt að segja að nasistarnir
hafi verið brautryðjendur í sjón-
varpsútsendingum. Í útvarps-
útsendingum voru þeir það hins veg-
ar.
Mikið var lagt í að öll tækni til út-
varpsútsendinga væri eins og best
væri á kosið og kostnaður erlendra
útvarpslýsenda var niðurgreiddur af
þýskum stjórnvöldum. Heimsins
bestu hljóðnemar sem tóku upp
hljóð í mun betri gæðum en áður
þekktist voru hannaðir af þýskum
verkfræðingum. Því var hægt að
hlusta á beinar útsendingar frá leik-
unum alls staðar í heiminum á sama
tíma.
Á leikunum á undan, 1932 í Los
Angeles, var ekki sama áherslan
lögð á að heimurinn allur fengi að
fylgjast með því sem gerðist. Þar
óttuðust menn að ef útsendingar
væru of góðar kæmi það niður á
miðasölu á leikunum. Þjóðverjar
vildu hins vegar miklu frekar stunda
áróður og upplýsa heimsbyggðina
um ágæti sitt heldur en að selja
nokkra miða til viðbótar. Fór svo að
hlustendur voru um 300 milljónir hið
minnsta en á þeim tíma höfðu langt
því frá eins margir fylgst með við-
burði í beinni útsendingu áður. Ein
skoðun er sú að þarna hafi leikarnir
eins og við þekkjum þá í dag, sem
risastór viðburður á heimsvísu, orð-
ið til.
Bjuggu til hlaupið
Stór þáttur í áróðri nasista var áð-
urnefnd heimildamynd Leni Riefen-
stahl um leikana. Riefensthal er af
mörgum talin einn hæfileikaríkasti
og áhrifamesti leikstjóri 20. ald-
arinnar og hún nýtti sér ýmsar nýj-
ungar við gerð Olympia. Hún lét til
að mynda grafa skurð við hlið lang-
stökksgryfjunnar á ólympíu-
leikvanginum svo hægt væri að
fylgja keppendum er þeir svifu um
loftið. Þá notaði hún vatnsheldar
myndavélar svo hægt var að fylgja
dýfingarfólki niður í vatnið þegar
það lenti.
Einn dramatískasti viðburður
myndarinnar var hlaup Fritz Schil-
gen með kyndilinn sem hann notaði
til kveikja ólympíueldinn. Raunar
var sú hefð að kveikja eldinn í Ól-
ympíu í Grikklandi og hlaupa með
hann til gestgjafa leikanna í löngu
boðhlaupi sett á laggirnar af nasist-
unum. Ólympíueldurinn leit dagsins
ljós í fyrsta sinn á leikunum í Amst-
erdam 1928 og sást aftur í Los Ang-
eles 1932 en var ekki gert hátt undir
höfði og kveiktur á staðnum. Fyrir
leikana í Berlín fór fyrsti hlauparinn
af stað í júlí 1936 og var hlaupið í
gegnum Grikkland, Búlgaríu, Júgó-
slavíu, Ungverjaland, Austurríki og
Tékkóslóvakíu áður en endað var í
Berlín með hlaupi Schilgen. Hver
hlaupari hljóp einn kílómetra með
eldinn.
Hitler var mikill aðdáandi grískra
guða og gyðja og vildi að leikarnir í
Berlín stæðu fyrir yfirburði og full-
komnun þýsku þjóðarinnar. Voru
leikarnir því fullir af vísunum í
gríska sögu og þá sérstaklega upp-
runa leikanna í Grikklandi. Hlaup
með ólympíueldinn hafði ekkert með
upprunalegu leikana að gera. Þótt
stjórnvöld í Þýskalandi væru illa lið-
in um heim allan á þessum tíma og
ættu eftir að gera mikinn óskunda á
næstu árum með því að hefja síðari
heimsstyrjöldina, höfðu þau mik-
ilvæg áhrif á leikana sem móta þá
enn þann dag í dag.
Fritz Schilgen hleypur með Ólympíueldinn á leikunum í Berlín 1936 við mikla aðdáun viðstaddra.
Ljósmyndir/Wikipedia
Arfleið
Hitlers
Það hugsa líklega fáir um Adolf Hitler og Þýska-
land nasismans þegar horft er á kyndilberana
hlaupa með ólympíueldinn í aðdraganda
Ólympíuleikanna. Staðreyndin er þó sú að
Ólympíuleikarnir í Berlín 1936 höfðu mikil áhrif á
leikana sem á eftir komu og gera enn.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
Myndavélin sem notuð var til beinna sjónvarpsútsendinga á leikunum.
Það geta allir fundið eitthvað
girnilegt við sitt hæfi
Freistaðu
bragðlaukanna
... stærsti uppskriftarvefur landsins!