Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.08.2021, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 1. ÁGÚST 2021
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík
Sími 554 6969
lur@lur.is • lur.is
LÁTTU ÞÉR
LÍÐA VEL
MADE IN
DENMARK
Lama rúmin eru vönduð, falleg og þekkt
fyrir að veita heilbrigðan og góðan svefn.
Þau hafa verið framleidd í Danmörku síðan 1939.
Hægt er að fá þau með eða án stillanlegum botni. Í
boði eru þrír litir á áklæði og margar tegundir fóta
og rúmgafla.
Lama Premium rúmin eru með sérstakan mjóbaks-
stuðning og meiri dýpt fyrir axlir. Ef þú vilt að öxlin
detti meira ofan í dýnuna er Premium línan fyrir þig.
Austur Ultra-hlaupið fer fram í
fyrsta sinn um næstu helgi, laug-
ardaginn 7. ágúst. Boðið er upp á
þrjár mismunandi hlaupaleiðir sem
allar liggja um fallegt landslag á
Lónsöræfum. Lengsta leiðin er 50
kílómetrar og verður lagt af stað
frá Marköldu og hlaupið niður að
Stafafelli. Á þessari leið hlaupa
keppendur úr 867 metra hæð yfir
sjávarmáli niður að sjávarmáli en
þurfa þó að hækka sig um 1.682
metra á leiðinni. Hlaupið er um
Austurstræti sem er mest farna
leið Stafafells í Lóni. Hinar tvær
leiðirnar eru 20 og 10 kílómetrar
að lengd þar sem lagt verður af
stað frá Eskifelli og Raftagili.
Drykkjarstöðvar eru á tíu kíló-
metra fresti á leiðunum.
Á heimasíðu hlaupsins, austur-
ultra.is, segir að hlaupið sé „um
eitt stórkostlegasta og fjölbreyti-
legasta þversnið af íslenskri nátt-
úru. Frá hálendismelum um grös-
ugan dal óbyggðanna. Eftir
litskrúðugum skriðum, hrikalegu
jökulsárgljúfri, gróskumiklum
birkiskógi, út heimafjallið og með-
fram votlendi að lokamarkinu á
sléttunni mitt á milli Eystra og
Vestra Horns.“
Skráning fer fram á tix.is en síð-
asti séns til að skrá sig í hlaupið er
í dag, sunnudag. Boðið verður upp
á rútuferðir að rásmarki fyrir 50
og 20 kílómetra hlaupaleiðir að
morgni hlaupsins, en allir bílar
komast að Raftagili, rásmarki 10
kílómetra hlaupsins.
Hlaupið verður um fallegt landsvæði í
Lónsöræfum um næstu helgi. Þau
hörðustu hlaupa 50 kílómetra.
Morgunblaðið/RAX
Þversnið íslenskrar náttúru
Hraustir hlaupagarpar munu reima á sig betri skóna um næstu helgi þegar
Austur Ultra-náttúruhlaupið fer fram. Hlaupið er um Austurstræti,
meginleið Stafafells í Lóni, og enn er hægt að skrá sig.
Saltvíkurhátíðin var til umræðu
í Morgunblaðinu laugardaginn
17. júlí 1971. Hátíðin, sem hald-
in var hvítasunnuhelgina, hafði
vakið miklar umræður og deilur
og var áfengisneysla unga fólks-
ins mörgum þyrnir í augum.
Björgvin Halldórsson söngvari
sagði í samtali við blaðið að sér
hefði fundist eyðileggja svolítið
hvað litlu krakkarnir voru fullir,
en bætti við: „En það er öllu
verra hvað fullorðið fólk drekk-
ur mikið hérna. Það liggur dautt
út um allt og það er mjög slæmt
að hafa þetta fyrir unga fólk-
inu.“
Ásgerður Flosadóttir, sem var
meðal hátíðargesta, var ánægð
með hátíðina og fannst krakk-
arnir hafa verið frjálsir: „Mér
fundust unglingarnir ekkert
drekka mikið, en hins vegar
fannst mér eldra fólk, það sem
náð hefur lögaldri, drekka allt of
mikið.“
Guðmundur Haukur Jónsson,
söngvari Roof Tops, hafði þetta
að segja: „Mér fannst drykkjan
hérna ofsalega íslensk.“
Þorvaldur Jónsson hátíðar-
gestur sagði að hátíðin væri
skemmtilegt uppátæki: „Mér líst
betur á hátíðina en fólkið …“
GAMLA FRÉTTIN
„Drykkjan
hérna ofsa-
lega íslensk“
Um 10.000 manns sóttu hvítasunnuhátíðina í Saltvík ’71 og upplifðu þrjá
daga „rigningar, roks og ölvunar“ eins og það var orðað í Morgunblaðinu.
Morgunblaðið/Kr.Ben.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Árni Friðleifsson
lögreglumaður
Felix Bergsson
leikari
Bruce Willis
leikari