Fiskifréttir - 13.12.1996, Qupperneq 2
2
FISKIFRÉTTIR föstudagur 13. desember 1996
Fréttir
Klara
settá
söluskrá
— vegna fyrirhug-
aðrar kvótasetningar
á Flæmingjagrunni
Rækjutogarinn Klara Sveins-
dóttir SU 50 hefur verið sett á sölu-
skrá en í síðustu viku slitnaöi upp
úr viðræðum um sölu á rúmlega
helmings hlut í togaranum til kan-
adísks útgerðarfyrirtækis.
Klara Sveinsdóttir SU hefur
stundað rækjuveiðar á Flæmingja-
grunni undanfarin ár en með fyrir-
hugaðri kvótasetningu á veiðar ís-
lensku skipanna er grundvellinum
kippt undan útgerð skipsins á þeim
miðum að svo stöddu. Utgerðin
hefur því leitað leiða til þess að
finna skipinu frekari verkefni og
meðal þess, sem kom til greina,
var að selja meirihlutann í togar-
ann og gera hann út í samvinnu við
kanadíska aðila.
Að sögn Ingólfs Sveinssonar,
framkvæmdastjóra útgerðarinnar,
komu Kanadamennirnir hingað til
viðræðna í síðustu viku en ekki
náðist samkomulag um verð.
Klara Sveinsdóttir SU er 500
brúttórúmlestir að stærð og var
togarinn smíðaður í Noregi árið
1974.
íslenskir markaðir
Allir markaðir
Vikan 1.-7. des. 1996
Hám. Lágm. Meðal-
verð verð verð Magn
Tegund (kr/kg) (kr/kg) (kr/kg) (kg)
Annar afli 500.00 10,00 72,97 194.696
Grálúða 200,00 100,00 195,60 15.399
Karfi 109,00 5,00 75,82 74.676
Keila 500,00 9,00 65,96 47.853
Langa ' 120,00 30,00 84,09 24.447
Lúða ’ 615.00 50,00 427,74 5.064
Skarkoli 350,00 80,00 128,39 14.111
Steinb. 1600,00 30,00 95,35 18.411
Ufsi 74,00 30,00 64,10 143.753
Ýsa 1620,00 38,00 92,34 258.212
Þorskur 150,00 42,00 97,91 847.003
91,15 1643.625
— Aflinn hefur verið mjög léleg-
ur í dag en það er dagamunur á
því hvernig aflabrögðin eru. í
síðustu viku vorum við tvo daga á
sjó og fengum þá ágætan afla, 24
tonn í tveimur lögnum en það
samsvarar um 200 kílóum á bjóð
ef við göngum út frá því að 500
krókar séu í bjóðinu, sagði Björn
Lúðvík Jónsson, skipstjóri á
Melavík SF, er við ræddum við
hann nú í byrjun vikunnar. I
haust og í vetur hefur stór hluti
beitningarvélabátanna róið á
miðin við Suð-Austurland.
Þarna hefur oft fengist stór og
góður þorskur en Björn segir
greinilegt að minna sé af stór-
þorskinum nú en oftast áður.
— Þorskurinn er snöggtum
smærri nú en á sama tíma í fyrra.
Þá var algengt að 30-40% aflans í
hverri veiðiferð væri þorskur yfir
8 kílóum og sáralítið var um smá-
fisk. Núna fáum við meira af
smáfiski og þorski af millistærð
en það er ekki mikið um þann
stóra, segir Björn Lúðvík.
Það gengur allt út
á kvótaviðskipti
Melavíkin er yfirleitt fjóra til
fimm daga á veiðum í einu og
Björn Lúðvík segir reynt að
passa upp á að láta ekki veiði-
ferðirnar dragast þótt aflinn sé
e.t.v. ekki upp á það besta.
— Við verðum að stfla upp á
gæðin. Á þeim lifum við, segir
hann en aflinn af Melavíkinni
hefur í haust og í vetur farið til
fiskvinnslufyrirtækja vítt um
landið. Hluti aflans hefur farið á
markað og hluti beint til fyrir-
tækja utan Hafnar s.s. á Eyja-
fjarðarsvæðinu.
— Það gengur allt út á við-
skipti upp á tonn á móti tonni og
ég held að velflestir bátanna séu í
einhverjum kvótaviðskiptum
með einum eða öðrum hætti. Af-
nám línutvöföldunarinnar hefur
haft slæmar afleiðingar fyrir okk-
ur því fiskverðið hefur lækkað
töluvert. Á meðan línutvöföld-
unarinnar naut við þá fékk fyrir-
tækið, sem var í viðskiptum við
okkur, fjögur tonn af þorski til
vinnslu á móti hverju tonni af
kvóta sem það lagði fram. Nú fær
það ekki nema tvö tonn fyrir
tonnið og það þýðir verðlækkun
fyrir okkur. Þetta er meinsemdin
sem við þurfum að kljást við en
mér sýnist á öllu að staða okkar
sjómannanna sé ákaflega slæm í
þessu máli, segir Björn Lúðvík
en hann segirað lokun hringveg-
arins vegna Skeiðarárhlaupsins
hafi ekki bætt úr skák. Verðið á
Fiskmarkaði Hornafjarðar hafi
lækkað um leið og þjóðvegurinn
lokaðist enda hafi flutnings-
kostnaðurinn aukist til muna.
Verðlækkunin hafi því alfarið
bitnað á útgerðinni og sjómönn-
unum.
Menn tala um að
þorskurínn sé farínn
að éta undan sér
Krossfiskurinn hljóp
út á 100 faðma
Melavíkin hefur aðallega verið
að veiðum út af Hornafirði og
svæðinu þar fyrir austan. Björn
Lúðvík segist ekki vita
hvort Skeiðarárhlaup-
ið hafi haft áhrif á fisk-
gengd á svæðinu undan
Skeiðarársandi. Menn
hafi reyndar ákveðnar
áhyggjur af humarmið-
unum en það komi
ekki í ljós fyrr en á ver-
tíðinni hvort hlaupið
hafi spillt þeim.
— Það eina, sem ég
hef heyrt þarna að
vestan, er að krossfis-
kurinn hafi hlaupið úr
á 100 faðma dýpi und-
an hlaupinu. Eg sel
það ekki dýrara en ég
keypti það en hitt veit
ég að það var oft mikið
af krossfiski með
ströndinni en ég hef
ekki áður heyrt að
hans hafi orðið vart
niðri á 100 faðma dýpi.
í spjallinu við Björn kemur fram
að óvenju lítið sé um æti í þorskin-
um fyrir austan um þessar mundir.
— Ástandið er um margt
óvenjulegt. Sfldin er t.d. miklu
norðar en verið hefur á þessum
árstíma undanfarin ár. Það er lítið
um æti og menn tala um það að
þorskurinn sé farinn að éta undan
sér. Um daginn fengum við reynd-
ar þorsk sem tekið hafði smákeilu
sem var föst á einum króknum.
Það hef ég ekki séð áður. Við erum
reyndar með 30 þúsund króka í sjó
þannig að þetta segir svo sem ekki
mikið. Hins vegar hefur komið
fyrir að við höfum fengið tvo til
þrjá þorska á sama
krókinn. Krókurinn
hefur þá farið í gegnum
tálknin á fyrsta þorsk-
inum og jafnvel þeim,
sem næstur kemur,
áður en sá síðasti
gleypir beituna. Þá
hefur komið fyrir á
karfaveiðum að fyrst
komi einn lítill karfi á
krókinn, síðan komi
annar stærri og gleypi
hann og loks komi einn
mjög stór og gleypi allt
saman.
Björn Lúðvík
Jónsson
skipstjóri á
Melavík
SF34
Sannkölluð
maraþonlína
Björn Lúðvík segir
tíðarfarið lengst af hafa
verið þokkalegt í haust
og í vetur. Þó hafi verið
leiðinda kaldi á köflum
en veður hafi þó sjaldnast hamlað
veiðum.
— Nóg af þorski? Það held ég
varla. Það er ekki hægt að tala um
fiskgengd í þessu sambandi. Ef
maður er svo heppinn að hitta á
fisk þá verður maður að færa sig og
leggja línuna annars staðar ef mað-
ur ætlar að fá einhvern afla í næstu
lögn.
Óhætt er að segja að línubátarn-
ir, sem útbúnir eru með beitning-
arvélum, séu stórvirk veiðiskip.
Á línunni, sem lögð er í einu lagi,
eru 30 þúsund krókar og er heild-
arlengdin 38,143 metrar. Það
liggur því við að línulengdin slagi
upp í vegalengdina sem hlaupin
er í heilu maraþonhlaupi. Björn
Lúðvík segir að það borgi sig að
leggja línuna í einu lagi þótt það
komi þá fyrir að hluti línunnar
liggi á svæði þar sem lítils afla sé
von.
— Það er langdrýgst að hafa
þennan háttinn á. Það borgar sig
ekki að leggja línuna í mörgum
stubbum, segir skipstjórinn en
það fylgir línuveiðunum að
margir eru í áhöfn beitningar-
vélabátanna. í áhöfn Melavíkur
eru t.d. 14-15 manns og er línan
lögð og dregin til skiptis allan sól-
arhringinn. Björn Lúðvík segir
að yfirleitt sé reynt að leggja lín-
una frá því upp úr miðnætti og
fram undir morgun. Það gefi yfir-
leitt besta raun.
Tindabikkjan raðar
sér á krókana
Lítill aukaafli hefur verið með
þorskinum á línuveiðunum og
segir Björn Lúðvík að tegundir
eins og keila, langa, lúða og skata
séu orðnar næsta sjaldgæfar.
Hins vegar hafi meira veiðst af
ýsu en oft áður.
— Keilan virðist vera búið
spil. Færeyingarnir hafa verið
duglegir við að hjálpa okkur við
að þurrka hana upp. Það kemur
fyrir að við fáum eitt og eitt löng-
ukvikindi en það er ekkert sem
orð er á gerandi. Lúðan sést varla
og skötuveiðin er ekki svipur hjá
sjón miðað við það sem var fyrir
nokkrum árum. Hins vegar er
hægt að veiða mikið af tinda-
bikkju. Hún raðar sér á krókana,
sérstaklega ef við beitum
smokki, en það er verst að verðið
er svo lágt að það svarar ekki
kostnaði að hirða hana. Verðið
stendur varla undir kostnaði við
að flytja tindabikkjuna til verk-
enda á suðvesturhorninu, segir
Björn Lúðvík.
Eitt er það, sem nóg er af á
miðunum fyrir austan, en það er
lúsin sem leggst á beituna og fisk-
inn. Þetta er einhvers konar
marfló og segir Björn Lúðvík
hana ákaflega skæða um þessar
mundir.
— Stundum verðum við ekki
varir við lúsina en stundum gerir
hún okkur lífið leitt eins og núna.
Lúsin er leggst á beituna og fisk-
inn á línunni og það er stundum
ófögur sjón að sjá fiskinn eftir að
lúsin hefur farið í hann. Einu
sinni er við vorum á grálúðuveið-
um þá var lúsin búin að hreinsa
svo vel af einum króknum að það
var bara beinagrindin sem kom
upp, sagði Björn Lúðvík Jóns-
son.
Útgefandí: Fróðí hf.
Héðínshúsinu, Seljavegi 2,
101 Reykjavík
Pósthólf 8820,128 Reykjavik
Sími: 515 5500
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Guðjón Einarsson
Ritstjórnarf ul Itrúi:
Eiríkur St. Eiriksson
Ljósmyndarar:
Gunnar Gunnarsson
Hreinn Hreinsson
Krístján E. Einarsson
Auglýsingastjóri:
Hertha Árnadóttir
Ritstjórn:
Sími 515 5610
Telefax 515 5599
Auglýsingar:
Sími 515 5558
Tefefax 515 5599
Áskrift og innheimta:
Sími 515 5555
Telefax 515 5599
Stjórnarformaður:
Magnús Hreggviðsson
Aðalritstjórí:
Steinar J. Lúðvíksson
Framkvæmdastjóri:
Halldóra Viktorsdóttir
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Grafík hf.
Áskriftarverð: 3.984 kr. m.vsk. sept.~des. 1996
Hvert tölublað í éskrift 249 kr, m.vsk.
Peir sem greiða áskrift með greiðslu-
korti fá 10% afslátt, þannig að áskriftar-
verð verður 3.586 kr. fyrir ofangreint
tímabil og hvert tölublað þá 224 kr.
Lausasðluverð 349 kr. Alit verð m.vsk.
Handbókin SJÁVARFRÉTTIR fylgir
áskrift að Fiskifréttum, en hún kemur
út í byrjun september ár hvert.
ISSN 1017-3609