Fiskifréttir - 13.12.1996, Blaðsíða 8
8
FISKIFRÉTTIR föstudagur 13. desember 1996
Fiskveiðar og kvótaviðskipti
Hólmgeiri Jónssyni framkvæmda-
stjóra Sjómannasambandsins svarað:
Fyrír hverja
erforysta
SSÍ að berjast?
— spyr Guðmundur Guðmundsson
skipstjóri á Hafsúlunni
— Ég mótmæli harðlega fullyrðingum Hólmgeirs um að það
sé verið að neyða okkur til þess að taka þátt í kvótabraski og að
við séum með þessu að taka vinnuna frá einhverjum öðrum.
Staðreynd málsins er sú að við erum mjög sáttir við þessi
viðskipti og þau koma allri áhöfninni til góða, segir Guðmund-
ur Guðmundsson, skipstjóri á Hafsúlunni HF 77, en hann
hafði samband við Fiskifréttir vegna greinar sem Hólmgeir
Jónsson, framkvæmdastjóri Sjómannasamhands Islands, rit-
aði í blaðið í síðustu viku.
Forsaga þessa máls er sú að í
viðtali við Guðmund í Fiskifrétt-
um 22. nóv. sl. kom fram að Sæunn
Axels hf., sem kaupir aflann af
Norðmenn:
Fákarfakvóta
við Grænland
Norðmenn hafa samið um
gagnkvæmar veiðiheimildir við
Evópusambandið fyrir árið
1997. Þeir fá nú í fyrsta sinn
karfakvóta við Grænland og
mega veiða 2.000 tonn. Þá fá
þeir 2.650 tonna kvóta af grá-
lúðu og er þar um aukningu að
ræða.
I Norðursjó fá Norðmenn
127 þús. tonn af 420 þús. tonna
heildarkvóta fyrir makríl; og 46
þús. tonn af 159 þús. tonna
heildarkvóta fyrir sfld til mann-
eldis. Kolmunnakvóti Norð-
manna er 255 þús. tonn á næsta
ári.
bátnum, legði honum til þrjú tonn
af þorskkvóta á móti hverju tonni
sem veitt væri af kvóta bátsins.
Guðmundur vildi ekki greina frá
verðinu, sem greitt er fyrir aflann,
og í grein sinni segir Hólmgeir að
ástæðan sé sennilega sú að verðið
sé svo lágt að skipstjórinn skamm-
ist sín fyrir að nefna það. Hólmgeir
gagnrýnir áhöfnina á Hafsúlunni
fyrir að brjóta kjarasamninga sjó-
manna með því að taka þátt í að
fjármagna kvótakaup útgerðarinn-
ar og hann hafnar því alfarið að
viðskipti Hafsúlunnar HF séu at-
vinnuskapandi fyrir sjómenn.
Vegna þessa vill Guðmundur
koma eftirfarandi á framfæri:
— Það er rétt hjá Hólmgeiri að
verðið fyrir þorskinn í þessum við-
skiptum er 70 kr/kg. Við erum
mjög sáttir við það verð. Frá 12.
september sl. og fram til 10. des-
ember er afli bátsins um 480 tonn.
Þar af eru um 70 tonn af ufsa en
afgangurinn er þorskur. Kvóti
bátsins miðað við slægðan þorsk er
260 tonn en það jafngildir 325
tonnum af óslægðu. Við værum
Olía á hafi úti
Olíuskip á vegum High Sea Services verða reglulega á
eftirfarandi svæðum með:
• Svartolíu - IFO 30
• Gasolíu
• Vatn
• Smurolíu
• Reykjaneshryggur
• Barentshaf
• Flæmski hatturinn
• Hjaltlandseyjar
• Önnur svæði eftir samkomulagi
Gára ehf. - skipamiðlun
Skútuvogi 1-B, 104 Reykjavík
Sími: 581-1688. Fax: 581-1685
Heimasímar: Kári Valvesson - 555-2479
Sigvaldi Hrafn Jósafatsson - 567-0384
„Gróflega reiknað stóðum við frammi fyrir því að velja á milli hásetahluts upp á annars vegar eina milljón króna
og hins vegar tvær miltjónir króna. Eg vil biðja Hólmgeir að reikna þetta dæmi til enda og segja mér hvor leiðin
sé hagstæðari fyrir áhöfnina,“ segir Guðmundur Guðmundsson skipstjóri á Hafsúlunni.
sem sagt búnir með þorskkvótann
fyrir nokkru ef við hefðum aðeins
veitt af eigin kvóta en vegna við-
skiptanna við Sæunni Axels hf.
getum við alls veitt 1300 tonn af
þorski á fiskveiðiárinu. Við hefð-
um í mesta lagi náð 120 kr/kg með-
alverði út úr okkar eigin kvóta og
aflaverðmætið fyrir þorskinn hefði
þá verið að hámarki 39 milljónir
króna. 1300 tonna afli á 70 kr/kg
þýðir hins vegar aflaverðmæti upp
á 91 milljón króna. Gróflega reikn-
að stóðum við frammi fyrir því að
velja á milli hásetahluts upp á ann-
ars vegar eina milljón kr og hins
vegar tvær milljónir kr. Ég vil biðja
Hólmgeir um að reikna þetta dæmi
til enda og segja mér hvor leiðin sé
hagstæðari fyrir áhöfnina, segir
Guðmundur en í máli hans kemur
fram að viðskipti svipuð þessum
tíðkist á velflestum netabátum um
þessar mundir.
— Ég þekki vel hug sjómanna á
netabátum hér á suðvesturhorninu
í þessum málum. Flestir bátanna
eru með litla þorskkvóta og þá er
búið að skera miskunnarlaust nið-
ur á undanförnum árum. Maður
spyr sig þeirrar spurningar fyrir
hverja forysta sjómanna sé eigin-
lega að berjast. Hún er greinilega
ekki að berjast fyrir sjómenn á
netabátunum. Hvar var forystan
þegar kvótinn var settur á og bátar
með humarkvóta voru skertir um
18 tonn í þorski fyrir hvert tonn af
humarskottum, sem þeir fengu í
sinn hlut, og þegar síldarbátarnir
voru skertir um 90 tonn af þorski
vegna sfldarkvótanna? Þessi
þorskur var að stærstum hluta
fluttur yfir á togarana. Hvað sagði
forystan vegna þessarar skerðing-
ar og annarrar skerðingar sem
bátaflotinn hefur orðið fyrir? Svo
vilja þessir menn banna frjálst
framsal aflaheimilda. Bátaflotinn
hefur lifað á frjálsa framsalinu. Ef
það væri afnumið þá myndi það
rústa helming bátaflotans um leið
og fleiri færu fljótlega sömu leið.
Þetta kæmi harkalegast niður hér á
aðal vertíðarsvæðinu og ég veit
ekki hvað margar fjölskyldur á
þessu svæði færu á vonarvöl fyrir
vikið. Mér er til efs að forysta SSI
sé búin að reikna þetta dæmi til
enda, segir Guðmundur en um til-
færslu á 100 tonna þorskkvóta frá
togaranum Örvari HU til Hafsúl-
unnar hefur hann þetta að segja:
— Hvað ætli Skagstrendingur
hf. sé búinn að kaupa marga báta
og flytja kvóta þeirra yfir á togara
fyrirtækisins á undanförnum ár-
um? Hefur það verið atvinnuskap-
andi? Það væri gaman að heyra
skoðun forystu SSÍ á því máli, seg-
ir Guðmundur Guðmundsson.
Gleymdi flotinn er týndur á ný
— segir Viðar Sæmundsson á Ársæli Sigurðssyni HF
— Sjómenn á netabátunum eru
orðnir verulega áhyggjufullir
vegna þeirrar stefnu sem umræðan
um viðskipti upp á tonn á móti
tonni virðist vera að taka. Sann-
leikurinn er sá að við lifum á þess-
um viðskiptum og ef þau væru
bönnuð þá myndi það slátra báta-
flotanum. Það er kannski það sem
forysta sjómannasamtakanna vill,
segir Viðar Sæmundsson, skip-
stjóri og útgerðarmaður Ársæls
Sigurðssonar HF.
Að sögn Viðars er kvóti flestra
vertíðarbátanna við hungurmörk-
in. Sjálfur segist hann vera betur
staddan en margir aðrir. Miðað við
niðurskurð undanfarinna ára sé
hann með þokkalegan kvóta, 170
tonn af þorski miðað við óslægðan
afla en það sem af er fiskveiðiárinu
sé hann búinn að veiða vel á þriðja
hundrað tonn.
— Það er ekki nema ár síðan að
það geisaði mikil vorkunnsemi hjá
þingmönnum vegna stöðu báta-
flotans. Það var talað um gleymda
eða týnda flotann og það þyrfti að
bæta stöðu hans. Það er engu lík-
ara en að þingmennirnir hafi
gleymt þessum flota strax aftur. Ég
er ekkert viss um að fólkið í land-
inu sé sammála forystu sjómanna-
samtakanna um að banna framsal
kvóta og viðskipti með veiðiheim-
ildir, segir Viðar Sæmundsson.
Utgerðarmenn - Skipstjórar síldveiðiskipa
Óskum eftir að kaupa síld til vinnslu.
Upplýsingar í síma 481 1100
ísfélag Vestmannaeyja hf.