Fréttablaðið - 30.11.2021, Síða 15
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
ÞRIÐJUDAGUR 30. nóvember 2021
thordisg@frettabladid.is
Þeir sem unna klassískum ballett
geta gert sér glaðan dag í dag þegar
sá glæsti og undurfagri jólaballett,
Hnotubrjóturinn, verður sýndur
á Stóra sviði Borgarleikhússins.
Hnotubrjóturinn kemur öllum í
jólaskap og er einstaklega aðgengi-
legt verk til að kynna fyrir börnum
og dansunnendum.
Dansverkið er unnið eftir sögu
E.T.A. Hoffmann en upprunalegir
danshöfundar voru Marius Petipa
og Lev Ivanov. Töfrandi tónlistin
er eftir rússneska tónskáldið Pjotr
Iljitsj Tsjaíkovskíj.
Atvinnudansarar framtíðar
Hnotubrjóturinn er ævintýri fullt
af töfrum og gleði. Sagan hefst í
jólaboði þar sem Drosselmeyer
frændi, göldróttur úra- og leik-
fangasmiður, gefur guðdóttur
sinni, Klöru, hnotubrjót í álögum
en sem lifnar við eftir að Klara sigr-
ar músakóng í bardaga. Klara og
prinsinn fara svo í töfraheim þar
sem hvert ævintýrið rekur annað.
Það er Klassíski listdansskólinn
og Óskandi sem taka höndum
saman og setja nú upp Hnotubrjót-
inn. Dansararnir eru á mismun-
andi aldri og með aðalhlutverk
fara nemendur á framhaldsbraut í
listdansi sem eiga framtíðina fyrir
sér sem atvinnumenn í faginu.
Blandað er saman nútímalistdansi
og klassískum ballett.
Tvær sýningar verða á Hnotu-
brjótinum í Borgarleikhúsinu í
dag; klukkan 16.30 og 19.30. Miða-
sala fer fram á tix.is. ■
Hnotubrjóturinn
lifnar við í dag
Hér svífa þau Klara og hnotubrjótur-
inn. MYND/GUNNLÖÐ RÚNARSDÓTTIR
Undraverður árangur til bættrar
heilsu og aukinna lífsgæða
Heilsa og útlit, Hlíðasmára 17, er fjölbreytt heilsulind þar sem vellíðan skiptir mestu máli.
Heilsulindin sérhæfir sig meðal annars í sogæðameðferðum með Weyergans heilsutækjum. 2
Heilsa og útlit fékk nýlega infrarauðan hitaklefa sem veitir ekki aðeins góða afslöppun heldur eykur hugarró og vellíðan. Hér er Sandra í klefanum en í honum
er hægt að stunda líkamsrækt, jóga eða aðrar æfingar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR