Heilsuvernd - 01.12.1946, Page 11

Heilsuvernd - 01.12.1946, Page 11
HEILSUVERND 3 land orðinn svo vel að sér í læknisfræði, lífeðlis- og líf- fræði, að þar stendur hann flestum próflærðum læknum og prófessorum framar. Waerland telur sig ekki lækni. En ég hika ekki við að fullyrða, að ef læknisfræðin færði sér í nyt rannsóknir og uppgötvanir hans og færi að hans ráðum, mundi það nægja til að útrýma meginþorra allra sjúkdóma. Ég er Waerland samþykkur um það, að á heilsufari manna verður ekki varanleg bót ráðin, fyrr en alþýða manna lærir sjálf undirstöðuatriði heilsuverndar og hættir að trúa í blindni á lyfjakreddur og aðrar „kúnstugar“ læknisaðgerðir. Það er of seint að lækna, þegar heilsan er farin. „Betra er heilt en vel gróið“. Og auk þess fæst sjaldan full græðsla fyrir lyfin ein eða aðrar aðgerðir á sjúkdómseinkennum, meðan orsakir eru óþekktar eða ekki um þær skeytt. Það eitt kemur að fullu gagni að leysa gátu sjúkdóm- anna, finna orsakir þess, að menn missa heilsu sína, oft á unga aldri, eins og nú á sér stað um fjölda manna. Hve margir ungir menn fá ekki magasár og njóta sín aldrei síðan ævilangt og eiga styttri og ömurlegri ævi en vera mundi, ef þeir vissu betur. Læknisfræðinni hefir því miður ekki tekizt að koma í veg fyrir hrörnunarsjúkdóm- ana, og því ætti hún að taka með þökkum góðum bend- ingum, sem miða að útrýmingu þeirra. Og Waerland hefir einmitt tekizt að leysa þessa þraut. Hann hefir ráðið rúnir sjúkdómanna og orsaka þeirra, og hann hefir sann- að það og sýnt svart á hvítu, þótt læknastéttin hafi ekki viðurkennt það enn sem komið er. Með þessu afreki tel ég Waerland hafa unnið til Nóbelsverðlauna frekar en nokkurn annan mann, er þau hefir hlotið. Ég þekki engan lækni, sem gæti ekki að mínu áliti lært stórmikið af Waerland í sannri læknisfræði og fram- kvæmd starfs síns. Og sjálfur hsfi ég auðgað læknisþekk- ingu mína stórlega við lestur bóka hans og af viðkýnn- ingunni við hann. Jónas Kristjánsson.

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.