Heilsuvernd - 01.12.1946, Qupperneq 11
HEILSUVERND
3
land orðinn svo vel að sér í læknisfræði, lífeðlis- og líf-
fræði, að þar stendur hann flestum próflærðum læknum
og prófessorum framar. Waerland telur sig ekki lækni.
En ég hika ekki við að fullyrða, að ef læknisfræðin færði
sér í nyt rannsóknir og uppgötvanir hans og færi að hans
ráðum, mundi það nægja til að útrýma meginþorra allra
sjúkdóma.
Ég er Waerland samþykkur um það, að á heilsufari
manna verður ekki varanleg bót ráðin, fyrr en alþýða
manna lærir sjálf undirstöðuatriði heilsuverndar og hættir
að trúa í blindni á lyfjakreddur og aðrar „kúnstugar“
læknisaðgerðir. Það er of seint að lækna, þegar heilsan
er farin. „Betra er heilt en vel gróið“. Og auk þess fæst
sjaldan full græðsla fyrir lyfin ein eða aðrar aðgerðir á
sjúkdómseinkennum, meðan orsakir eru óþekktar eða
ekki um þær skeytt.
Það eitt kemur að fullu gagni að leysa gátu sjúkdóm-
anna, finna orsakir þess, að menn missa heilsu sína, oft
á unga aldri, eins og nú á sér stað um fjölda manna. Hve
margir ungir menn fá ekki magasár og njóta sín aldrei
síðan ævilangt og eiga styttri og ömurlegri ævi en
vera mundi, ef þeir vissu betur. Læknisfræðinni hefir því
miður ekki tekizt að koma í veg fyrir hrörnunarsjúkdóm-
ana, og því ætti hún að taka með þökkum góðum bend-
ingum, sem miða að útrýmingu þeirra. Og Waerland hefir
einmitt tekizt að leysa þessa þraut. Hann hefir ráðið
rúnir sjúkdómanna og orsaka þeirra, og hann hefir sann-
að það og sýnt svart á hvítu, þótt læknastéttin hafi ekki
viðurkennt það enn sem komið er. Með þessu afreki tel
ég Waerland hafa unnið til Nóbelsverðlauna frekar en
nokkurn annan mann, er þau hefir hlotið.
Ég þekki engan lækni, sem gæti ekki að mínu áliti lært
stórmikið af Waerland í sannri læknisfræði og fram-
kvæmd starfs síns. Og sjálfur hsfi ég auðgað læknisþekk-
ingu mína stórlega við lestur bóka hans og af viðkýnn-
ingunni við hann. Jónas Kristjánsson.