Heilsuvernd - 01.12.1946, Side 13
HEILSUVERND
5
segir frá baráttu ungrar konu við ótal „ólæknandi“
sjúkdóma, sem hálærðir læknar og prófessorar fengu
ekki við ráðið, en liurfu smátt og smátt af sjálfu sér, er
hún breytti lifnaðarháttum sínum. Hin mikla frásagnar-
list Waerlands kemur vel fram í þessari litlu, lærdóms-
í'íku sögu, sem getur kennt ungum stúlkum og konum
meira en heilar bækur sérfræðinga um orsakir sjúk-
dóma og aðferðir til að öðlast sanna og varanlega lík-
amsfegurð. Þessar bækur Waerlands hafa ýtt við mörg-
um hér, er mér óhætt að segja, og haft mikil og heilla-
rík áhrif á fjölda manna. En á hinn bóginn munu þær
hafa komið óþægilega við suma lækna, sem hafa gert
sitt ýtrasta til að niðra liöfundi þeirra.
Móttökur Waerlands. Áður en ég lagði af stað að
heiman, hafði ég beðið Waerland með símskeyti að út-
vega mér lierbergi í Stokkhólmi. Fékk ég svar um liæl,
að herbergið væri til reiðu í Edenhóteli.
Ég var aðeins nýkominn inn í herbergi mitt, er þar
var bankað á dyr, og inn vatt sér Waerland, sem ég
þekkli þegar af myndum. Þetta var hraustlegur, mið-
aldra maður í útliti, vel útitekinn og hinn djarflegasti
og drengilegasti í viðmóti. Ég vissi, að hann var nýorð-
inn sjötugur, en útlitið benti ekki á það. Fagnaði hann
mér með þeim lilýleilc, sem ég hefi aðeins mætt einu
sinni áður af hendi gerókunnugs manns, en það var öld-
ungurinn Kellogg læknir, hinn heimsfrægi forstjóri
stærsta heilsuhælis í heimi í Battle Creek.
Eftir stutt viðtal um ferðina og erindi mitt, bauð
Waerland mér með sér út í matstofu þá, sem kennd er
við Frisksport og er rekin i samræmi við kenningar
hans. Ég var orðinn matlystugur og hlakkaði til að
borða þarna.
Á flugferðinni höfðu farþegum tvisvar verið bornir
prýðissnotrir matarpakkar. Ég opnaði minn pakka með
nokkurri forvitni. Jú, þar var ýmiskonar góðgæti; marg-
ar sneiðar af brauði úr hvítum liveitisalla með þykkum