Heilsuvernd - 01.12.1946, Side 14
HEILSUVERND
6
sneiðum af svínapylsum á milli, nokkrar sætar kökur,
sælgæti og cin appelsína. Dr. Gunnlaugur Claessen, sem
var einn farþega, kom til mín brosandi og gat þess til,
að ég mundi ekki stórhrifinn af veitingunum. Atti liann
þar kollgátuna.
Ég hafði þarna fyrir augum sýnisliorn hinnar vest-
rænu matarmenningar og jafnframt sýnishorn vest-
rænnar sjúkdómaræktunar. Þetta er sýnishorn þess,
sem Waerland kallar eiturhrunna, en úr þeim eys allur
almenningur af fákunnáttu sinni sér til heilsuspillis og
ævarandi vesaldóms.
Gegn þessari matarmenningu hefir Waerland hafið
heilag't útrýmingarstríð með þeim krafti og þeirri djörf-
ung, sem einkennir mestu umbótamenn mannkynsins,
eins og Lúther og' postulann Pál.
í matstofunni. Það lyftist heldur en ekki á mér brún-
in, þegar ég' kom með Waerland inn í matstofuna og
sá allt það grænmeti og annað góðgæti, sem þar var á
boðstólum. Þarna var ekki ausið úr eiturbrunnum, held-
ur úr heilsubrunnum. Hingað hafði margur sótt betri
heilsu og' aukinn lífsþrótt eftir ráðum Waerlands. Var
auðsætt, að margir skoðuðu liann sem hjargvætt heilsu
sinnar. Hann hafði tæplega matfrið fyrir mönnum, sem
þurftu við liann að tala, færa honum þakkir eða sækja
til hans leiðbeiningar og ráð. Hann var þarna vinur og
ráðgjafi allra. Waerland tilkynnti mér, að þarna gæti
ég borðað, sem gestur hans, þegar ég vildi, mér að kostn-
aðarlausu.
Þá var ég' daglegur gestur á heimili Waerlands, ým-
ist einn eða með fleiri gestum. Frú Ebba Waerland er
hin prýðilegasta húsmóðir, hámenntuð og gáfuð kona,
og minnti mjög á enska aristókratiska lady. Hún er skáld-
mælt í bezta lagi, rithöfundur, trúrækin mjög og manni
sínum samhent í hugsun og starfi.
Við Waerland vorum mikið saman þessa daga. Við
liittumst oft i matstofunni, og á hverjum morgni lágu