Heilsuvernd - 01.12.1946, Qupperneq 16
8
HEILSUVERND
eins og það er, að læknisfræðin liefir verið sein til þess
að taka ýmsum nýjungum og umbótum, jafnvel þótt
þær liafi komið frá próflærðum læknum. Af þessu er
hún orðin á eftir tímans kröfum, „orthodox“ (rétttrú-
uð), steingerð, i stað þess að vera sveigjanleg og sivak-
andi fyrir öllum nýjungum, hvaðan sem þær koma.
Waerland er hreinræktaður náttúrulækningafröm-
uður. Hann kynnir sér það lögmál, sem ræður allri fram-
þróun lífsins og heilbrigði og' trúir og treystir á mátt
þess. Og hinn glæsilegi árangur, sem hann og margir
náttúrulæknar ná í lækninga- og heilsubótastarfi sínu,
er því að þakka, að þeir lilíta þessu lögmáli og varast
að sýna því mótþróa eða aðhafast nokkuð það, sem
vinnur gegn því.
Á fyrirlestri hjá Waerland. Áður en ég lagði af stað
að heiman, tilkynnti Waerland mér i símskeyti, að ég
væri boðinn sem heiðursgestur á fyrirlestur hjá honum.
Hann var haldinn í stærsta samkomusal Stokkhólms,
Konsertsalnum, sem tekur rúmlega 2000 manns í sæti.
Var hvert sæti skipað eins og ætíð, þegar Waerland tal-
ar þar, og eru öll sæti alltaf uppseld löngu fyrirfram.
Dr. Gunnlaugur Claessen ætlaði á fyrirlesturinn, en
varð of seinn að ná i aðgöngumiða.
í þessum fyrirlestri, sem stóð í rúma 2 tíma, sagði
Waerland frá ferð sinni til Sviss þá um vorið. Hann
lýsti dvöl sinni í heilsuhæli, sem kennt er við dr. med.
Bircher-Benner í Ziirich, en hann var einn af höfuð-
postulum náttúrulækningastefnunnar hér í Evrópu, á-
gætur læknir og skörungur mikill. Hæli þessu stjórna
nú synir hins fallna meistara, sem tókst að bæta heilsu
fjölda manna, sem taldir voru ólæknandi. Hann sagði
merkilega sögu af heilsuræktarviðleitni nokkurra
manna, sem hugðust að nærast einvörðungu á aldinum,
og lýsti því, hvernig tilraunin fór algerlega út um þúf-
ur, vegna þess að þeir, sem hana gerðu, bundu sig við
einstrengingslegar fyrirframskoðanir eða fræðilegar