Heilsuvernd - 01.12.1946, Page 17

Heilsuvernd - 01.12.1946, Page 17
HEILSUVERND 9 Are Waerland talar. bollaleggingar, en vildu ekki hlíta úrskurði reynslunnar og' móður náttúru. Hann lýsti hinni hrifandi fegurð Svisslands, einkum suðurhluta landsins, sunnan Alp- anna, á landamærum Sviss og' Italíu. Annars kom liann víða við og minntist á ýms menningarmál, svo sem sam- skóla fyrir karla og konur. Taldi hann þá hafa óheppi- leg og spillandi áhrif á bæði kynin og draga úr aðdáun karla á kvenþjóðinni. Stúlkurnar reyndu að verða gróf- ari í umgengni, en piltarnir gengju yfir í gagnstæðar öfgar. Það fer eklci ofsögum af mælsku Waerlands og ræðu- mannshæfileikum. Hann er tvímælalaust með mestu ræðuskörungum, sem ég liefi á hlýtt, og kryddar fyrir- lestra sína með linittiyrðum og sögum, sem liann á nóg af í fórum sínum. Enda var svo gott liljóð í salnum, þessa liðuga tvo tíma, að heyra hefði mátt flugu anda.

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.