Heilsuvernd - 01.12.1946, Síða 18

Heilsuvernd - 01.12.1946, Síða 18
10 HEILSUVERND Þarna stóð íslenzki fáninn meðal annarra fána Norðnr- landa. Það var eftirtektarvert, að mikill meiri hluti áheyr- enda var ungt fólk. Sannfærðist ég um það, sem ég' raun- ar vissi áður, að kenningar Waerlands eiga miklum vin- sældum að fagna meðal hins sænska æskulýðs. Tel ég þetta talandi tákn þess, að menningarþjóðirnar eru að byrja að sjá að sér og gera sér það ljóst, að hin einliliða efnishyggja er að leiða þær út fyrir öll öryggistakmörk velfarnaðar. Waerland flytur fyrirlestra í Englandi. Ég kvaddi Waerland og frú lians með hlýjum og þakklátum hug, með aðdáun á þreki hans og viljastyrk og afrekum til mannheilla. Er ég skildi við þau, var svo ráð fyrir gert, að liann kæmi til íslands þá um sumarið. Úr þessu gat því miður ekki orðið, vegna þess að hann var ráðinn til fyrirlestrahalds í Englandi í vetur, en áður þurfti hann að Ijúka margvíslegum störfum heima fyrir. Fyrirlestrana í Englandi flytur hann á vegum félags, sem vinnur að útrýmingu sjúkdóma og heitir „Heallh Freedom Society“, og' var gert ráð fyrir, að hann byrj- aði í Leicester. í því héraði er lögð einna mest áherzla á neyzln grænmetis og ávaxta, og félagið hefir vakið eft- irtekt á sér með því að afneita með öllu bólusetningu, þrátt fyrir harðan áróður lækna. Waerland dvelst í Englandi í allan vetur á vegurn þessa félags. Næsta sumar hefir hann lofað að koma til íslands og flytja liér fyrirlestra, bæði i Reykjavik og úti um land. 1 næsta hefti mun ég segja frá dvöl minni í Dan- mörku, þar sem er tekið að bóla á vakningaöldu meðal æskulýðsins líkt og í Svíþjóð. Mun ég skýi-a sérstaklega frá kynnum mínum af hinum þekkta og umdeilda kven- lækni, dr. Kirstine Nolfi, frá krabbameinslækningu hennar og dvöl rninni á lieilsuhæli hennar.

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.