Heilsuvernd - 01.12.1946, Blaðsíða 26

Heilsuvernd - 01.12.1946, Blaðsíða 26
18 HEILSUVERND þá áfram, líkt og' þegar úttaugaður hestur er keyrður sporum. Þetta hlýtur að teljast í hæsta máta óvísinda- leg aðferð. Hún læknar ekki sjúkdóminn, hún gerir liann ólæknandi. Náttúrulæknirinn skrifar enga lyfseðla á latínu. Hann seg'ir við sjúklinginn, eftir að hafa gengið úr skugga um, að hann gangi ekki með sár, bólgur eða aðrar mein- semdir í meltingarfærunum eða aðra sjúkdóma, sem geri það að verkum, að hann þoli ekki allan algengan mat: Þú átt að borða grænmeti, helzt ósoðið, ávexti, gróft brauð, heilhveiti í stað hins hvita hveitis, hveiti- hýði (klíð), krúska auk annarra algengra fæðutegunda. Þá færðu nóg af fjörefnum, málmsöltum og grófefnmn, og þarmarnir taka sjálfkrafa til starfa á nýjan leik. Ef til vill þarf að nota stólpípur um hrið til þess að tæma ristilinn, þangað til meltingin kemst í fullkomið lag. Þessi aðferð er rökrétt og því hávísindaleg, hversu óbrotin sem hún kann að virðast. Og' vitað er, að sum- ir íslenzkir læknar eru farnir að beita lienni að ein- liverju leyti. 2. Blóðleysi er annar algengur sjúkdómur. Hann er talinn stafa oftast af skorti á járni, og hin venjnlega lækningaaðferð er að gefa sjúldingnum meðul, sem innihalda járn. Þessi meðul lækna sjúkdóminn sjaldn- ast eða aldrei að fullu, og það m. a. af þeirri einföldu ástæðu, að hann stafar af skorti fleiri efna en járns. Yið- urværi manna er aldrei svo liáttað, að í það vanti að- eins eitt næringarefni, aðeins eitt fjörefni, eitt steinefni o. s. frv. Þegar járn vantar í fæðið, má ganga út frá því sem gefnu, að í það vanti einnig önnur efni, svo sem C-fjörefni og fleiri fjörefni, og einnig fleiri málm- sölt en járnið eitt. Skortur þessara efna á sinn þátt i blóðleysinu, og' auk þess stafar það stundum af skorti á hreyfingu og útivist, svo og rotnun í kyrstæðum þörrn- um. Járnmeðul taka því aðeins tillit til eins þáttarins í

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.