Heilsuvernd - 01.12.1946, Qupperneq 28

Heilsuvernd - 01.12.1946, Qupperneq 28
20 HEILSUVERND sem ætlar að þurrka upp votlendi með því að bera mold og möl í fen og uppsprettur. En jarðvatnið leitar bara upp annarstaðar, ef það kemst ekki aftur upp á sama stað. Og' eins brýzt eksemið oft út aftur á nýjan leik á sama stað og áður eða annarsstaðar á líkamanum, ef læknin- um á annað borð heppnast að eyða því, sem venjulega þýðir það, að eiturefnin bafa verið hrakin aftur inn í blóðið. Og þar fá þau að leika lausum hala, berast út um allan líkamann og vinna hverri einustu frumu hans tjón með því að veikla þær og brjóta smátt og smátt nið- ur viðnámsþrótt þeirra gegn bakteríum og öðrum sýk- ingaröflum. Danskur kvenlæknir kemur til íslands. Dr. K;rstine Nolfi er danskur kvenlæknir, sem hefir vakið á sér mikla athygli í heimalandi sínu og utan þess fyrir það, að hún læknaði sig af krabbameini i brjósti með „náttúrlegum“ aðferðum, mataræði, sólböðum o. s. frv. Jónas Kristjánsson lækn- ir og frk. Anna Guðmundsdóttir, ráðskona Matstofunnar, dvöldu á heilsuliæli hennar sl. sumar, og verður ýtarlega sagt frá henni í næsta hefti. Hún hefir boðið NLFÍ að koma til íslands og flytja fyrirlcstra á vegum þess. Hrásalöt úr hvítkáli. 1. 4 bollar smábrytjað hvítkál; V2 b. gróft saxaðar rúsínur; 1 b. súrmjólk; 4 matsk. eplamauk (ef til er). Súrmjólk og epla- ínauk er hrært saman og blandað vel saman við kálið og rúsín- urnar. 2. Hvítkál brytjað og hellt yfir það lítið sykraðri súrmjólk eða súrum áfum, eða sítrónusafa blöndaðum dálitlu af sykri og rjóma.

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.