Heilsuvernd - 01.12.1946, Blaðsíða 29

Heilsuvernd - 01.12.1946, Blaðsíða 29
Ingólfur Sveinsson, lögregluþjónn: Hvernig ég læknaðist af eksemi. ótilkvaddur og án nokkurra tilmæla finn ég mig knúðan til að gera lieyrum kunnugt um lækningu, er ég liefi lilotið hjá Jónasi Kristjánssyni lækni, i sam- bandi við húðsjúkdóm (eksem), er ég hafði þjáðst af um marga ára skeið. Verður að telja lækningu þessa allmerkilega og eflirtektarverða, ekki hvað sízt vegna þess, að allur meginþorri lækna virðist standa á önd- verðum meið við Jónas Kristjánsson í aðferðum til að útrýma þessum hvimleiða og þráláta sjúkdómi og mörgum öðrum. Eksemið byrjar. Það er upphaf þessa máls, að fyrir 6 árum (árið 1940, ég var þá 26 ára gamall) fékk ég smábólu innantil á hægra læri. Hún smáágerðist og' stækkaði, unz úr varð allstór skella. Brátt fór að íla og vessa úr skellunni, og fylg'di þessu mikill sviði og' kláði. Ennfremur fór ég litlu síðar að verða var við skinnflagning á olnhoga hægri handleggs með sams- konar óþægindum og að ofan er lýst. Ég fór nú til Hannesar Guðmundssonar, sérfræðings

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.