Heilsuvernd - 01.12.1946, Síða 34
26
HEILSUVERND
sónulega og viðhorfum lians til sjúkdómanna, breyttist
bölsýni mín smámsaman í bjartsýni, er byggðist á hin-
um mikla eldmóði og sannfæringarkrafti læknisins i
sambandi við þennan sjúkdóm og' aðra. Allt það, er
liann sagði mér um orsakir og eðli sjúkdómanna, var
mér áður óþekkt. Og' mér fannst það reyndar dálítið
spaugilegt fyrst í stað að bera saman viðhorf þeirra
lækna, er ég áður liafði leitað til, og Jónasar Kristjáns-
sonar, er liélt fram gjörólíkum skoðunum, í trássi við
skoðanir stéttarbræðra sinna. Hinir fyrri læknar mínir
liöfðu aldrei ráðlag't mér að fara í lieit böð eða gjör-
breyta mataræði mínu, en voru í þess stað sífellt að
gefa mér áburð og smyrsl í öllum regnbogans litum, auk
geislalækninganna, með þeim árangri, sem áður er lýst.
Ég ætla nú að reyna að lýsa því, livernig ég öðlaðist
fulla lækningu hjá Jónasi Kristjánssyni, er ég get vissu-
lega kallað velgjörðarmann minn.
Svitaböðin. Læknirinn byrjaði á því að athuga hjarta-
starfsemi mína og' úrskurðaði, að liún væri i lagi og
ekkert því til fyrirstöðu, að ég færi i böðin. Lagði liann
svo fyrir, að ég skyldi taka 25 böð í einni lotu, það er
að segja eitt bað á dag til að byrja með.
Böð þessi eru þannig, að fyrst leggst sjúklingurinn
í baðker, sem er liálffullt af 38—40 stiga heitu vatni.
Þar er legið, unz svitinn brýzt út, eða um það bil 20
mínútur. Að því loknu leggst sjúklingurinn á legubekk
og þar er liann vafinn og dúðaður i teppi mjög rækilega
og látinn liggja í eina klukkustund, og' allan þennan
tíma beldur bann áfram að svitna. Þá er farið með liann
undir volgt steypibað, og' er þá baðinu lokið.
Nokkuð er það mismunandi, hvernig fólk þolir þessi
böð, og leggur læknirinn ríka áherzlu á, að fólk ofbjóði
sér ekki með því að pína sig i baðinu, eins og það er
kallað, heldur bag'i seglum eftir vindi, bj^rji á vægum
böðum og auki svo liitann, eftir þvi sem ástæður leyfa.
Þannig fór ég' að, byrjaði með 40—41 stig og færði mig'