Heilsuvernd - 01.12.1946, Síða 37

Heilsuvernd - 01.12.1946, Síða 37
HEILSUVERND 29 liafi gert það, sem þeir vissu bezt og' réttast. En liins- vegar finnst mér óneitanlega, að sumar sérfræðigrein- ar læknavísindanna fari að verða nokkuð vafasöm fyr- irtæki, þegar þær ganga á snið við einföld og' almenn ráð, sem þekkt eru og betur duga en hinar viðurkenndu aðferðir sérfræðinganna. Hinar nýju læknisaðferðir eru, eins og saga mín sýn- ir, ekki fólgnar í meðalainntökum né smyrslum, beld- ur i þeim sannindum, að með náttúrlegum lifnaðar- háttum og réttu mataræði, þ. e. a. s. með því að neyta lifandi fæðn í stað dauðrar fæðu, vinnist það fyrst og fremst, sem er mergurinn málsins, að skapa líkaman- um það mótstöðuafl, er geri honum kleift að vinna á móti hverskonar sjúkdómum, í stað þess að vera sífellt að skjóta skjólsbúsi yfir þær orsakir, er leiða fyrr eða síðar til vanlíðanar og vanheilsu. Nóv. 1946. Tannskemmdir og styrjaldir. Oft hefir verið á það bent, að á styrjaldartímum dregur úr ýmsum sjúkdómum, svo sem meltingarsjúkdómum, sykursýki, krabbameini og tannskemmdum. Telja margir þetta stafa af því, að þá er ekki eins mikið i matinn borið, viðurværi manna ó- brotnara og minna um ýmsar munaðarvörur, tóbak, kaffi, sykur og sælgæti. í blaðaviðtab sl. sumar skýrir dr. Skúli Guðjónsson svo frá, að i Danmörku hafi tannskemmdir minnkað stórlega á stríðsárunum, og bafi þar m. a. verið mikill skortur á sykri og hvitu hveiti. í Noregi kveður hann tannskemmdir í skólabörnum hafa minnkað um 50%, en Norðmenn skorti fleiri matvæli en Dani og lifðu þeir aðallega á mjólk, fiski og grænmeti. -— Svip- aðar fréttir berast frá Finnlandi, nema þar munu tannskemmdir hafa minnkað einna mest. — Dr. Slcúli lætur þess getið, að bæði Danir og Norðmenn hafi haft nóg að borða, þótt margar fæðutegundir hafi skort. Þótt þessar fréttir, ef réttar eru, gefi máske ekki vís- indalega lausn á ráðgátunni um orsakir tannskemmda, þá ætti að mega af þeim ráða, hverjar breytingar á viðurværi manna rnuni vera vænlegar til útrýmingar þessum vágesti, tannátunni. Og vonandi láta heilsufræðingar og almenningur hina dýr- keyptu reynslu sér að kenningu verða.

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.