Fréttablaðið - 04.12.2021, Blaðsíða 4
Omíkron er sennilega
smitnæmara en Delta
sem var tvöfalt smit-
næmara en Alfa.
Við værum í ger-
breyttri aðstöðu ef
mótefnalyfin væru
ekki svona dýr.
Björn Rúnar
Lúðvíksson, yfir-
læknir á smit-
sjúkdómadeild
Landspítalans
TRYGGÐU ÞÉR RAM Í FORSÖLU
TIL AFHENDINGAR EFTIR ÁRAMÓT
ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
R A M
Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra
Katrín Jakobs-
dóttir, formaður
Vinstri grænna,
hef ur í annað
s i n n my nd að
ríkisstjórn með
S j á l f s t æ ð i s -
f lokki og Fram-
s ó k n a r f l o k k i .
U p p s t o k k u n
í Stjórnarráðinu með nýjum og
breyttum ráðuneytum olli tölu-
verðum ruglingi í vikunni, ekki
aðeins hjá almenningi heldur einn-
ig hjá starfsfólki ráðuneytanna
sjálfra.
Birgir Ármannsson
forseti Alþingis
Birgir Ármanns-
son, þingmaður
S j á l f s t æ ð i s -
f lok k sins, var
kjörinn forseti
Alþingis á þriðju-
daginn. Hann var
vart sestur á for-
setastól þegar allt
fór í hnút. Hann
stýrði kosningu í fastanefndir sem
reyndist fara í bága við nýtt jafn-
réttisákvæði þingskapa og svo þurfi
að gera hlé á fundi eftir að úthlutun
sæta klúðraðist.
Ragnar Þór Pétursson
formaður Kennarasambands Íslands
Ragnar Þór greip
til varna fyrir
f y r r v e r a n d i
skólastjóra Foss-
vogsskóla, sem
gleymdi að bóka
skólabúðir fyrir
nemendur sjö-
unda bek k jar.
Hann gagnrýndi
foreldra barnanna fyrir að einblína
á sorgir barnanna vegna þessa og
vísaði til þess að skólastjórinn hefði
sagt upp störfum vegna gríðarlegs
álags sem fylgt hefði starfinu. n
n Tölur vikunnar
n Þrjú í fréttum
169
milljarða halli verður á rekstri
ríkissjóðs á næsta ári samkvæmt
nýbirtu fjárlagafrumvarpi.
12
ráðherrar sitja í nýrri ríkisstjórn
Katrínar Jakobsdóttur og fjölgar
um einn frá síðasta kjörtímabili.
144
fatlaðir einstaklingar, sem eru
undir 67 ára, búa á dvalarheim-
ilum fyrir aldraða.
3
hafa greinst með nýtt afbrigði
kórónaveirunnar, Omíkron. Grunur
er um fjögur smit til viðbótar.
kr.
Yfirlæknir á smitsjúkdóma-
deild Landspítalans telur
líklegt að eitt til tvö afbrigði
þurfi til viðbótar til þess að
breyta Covid-19 í árstíða-
bundna pest með vægum ein-
kennum. Nokkuð góð mynd
sé að komast á byggingu
Omíkron-afbrigðisins.
kristinnhaukur@frettabladid.is
COVID-19 Ýmsir hafa velt upp þeirri
hugmynd að Omíkron muni á end-
anum breyta Covid-19 úr drepsótt
yfir í árstíðabundna pest. Afbrigðið
sé það bráðsmitandi og veikindin
það væg að það muni yfirgnæfa
önnur afbrigði með lítt alvarlegum
afleiðingum. Björn Rúnar Lúðvíks-
son, yfirlæknir á smitsjúkdóma-
deild Landspítalans, telur líklegt
að of snemmt sé að hrósa happi.
Eitt eða tvö afbrigði þurfi líklega til
viðbótar.
„Það er sumt sem bendir til þess
að það smiti meira en það vantar
enn þá meiri upplýsingar. Mín til-
finning er að það smiti meira en
Delta-afbrigðið en sennilega kemur
þetta í ljós um miðja næstu viku,“
segir Björn. „Fyrstu niðurstöður
benda til að þessi stofn sé mjög svip-
aður og Delta þegar kemur að alvar-
leika og einkennin mjög svipuð.“
Líklega sé ekki ástæða til þess að
óttast að einkennin séu alvarlegri.
Tvennt skiptir máli þegar kemur
að hversu vel veirur geta smitast.
Annars vegar hversu f ljót veiran
er að komast inn fyrir varnir slím-
húðarinnar og inn í blóðið. Hins
vegar hæfileiki hennar til þess að
fjölga sér þegar hún hefur komist
inn fyrir frumuvegginn.
Delta-af brigðið smitar tvisvar
sinnum meira en upprunalega
Covid-19 veiran, Alfa, og 40 til 60
prósentum meira en fyrsta afbrigð-
ið af henni. Er það vegna þess að
Delta er öflugri að fjölga sér en fyrri
afbrigði. Verið er að rannsaka bygg-
ingu Omíkron um þessar mundir.
„Það er að verða komin nokkuð
góð mynd af byggingu Omíkron og
verið að reyna að nota þau mótefni
sem eru til, mótefni úr blóði bólu-
setts fólks, til að hindra það,“ segir
Björn. „Þetta mun gefa góða mynd
af því hvernig bóluefnin reynast.
Af því sem ég hef þegar séð tel ég
að þau muni virka að sambærilegu
marki og gegn Delta-afbrigðinu.“
Reyndist svo ekki vera væri það
slæmt að mati Björns. Hann á þó
von á því að einhvern tímann muni
koma fram afbrigði sem bóluefnin
virki hreinlega ekki á. Þá gæti smit-
tíðnin hins vegar orðið minni og
einkennin sömuleiðis.
Björn segir að þó að enn eitt
af brigði Covid-19 sé komið fram
sé ekki tími til að örvænta. Gríðar-
lega mörg lyf séu í þróun og lofi
mjög góðu hvað virkni varðar.
Bæði veirulyf sem drepi veirur inni
í frumunum og mótefnalyf, sem séu
því miður kostnaðarsöm.
„Við værum í gerbreyttri aðstöðu
ef mótefnalyfin væru ekki svona
dýr,“ segir hann. Þá hafi heimurinn
komið sér upp mjög öflugum bólu-
efnamaskínum, sem vinni bæði
hratt og örugglega.
SJÁ EINNIG SÍÐU 12
Omíkron líklega ekki afbrigðið sem
breytir Covid í árstíðabundna pest
Reynt er að nota mótefni úr blóði bólusetts fólks til að finna leiðir til að stöðva Omíkron. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
13
skip Landsbjargar verða smíðuð
næstu ár. Hvert skip kostar
285 milljónir króna.
4 Fréttir 4. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ