Fréttablaðið - 04.12.2021, Blaðsíða 40
Gerðarsafn var opnað árið 1994
og frá þeim tíma hefur verið lögð
áhersla á metnaðarfulla sýningar-
dagskrá á safninu, bæði í samtíma-
list og myndlist fyrri tíma. Brynja
Sveinsdóttir, safnstjóri Gerðar-
safns, segir að á safninu sé mikið
unnið út frá þeirri sérstöðu í allri
listrænni starfsemi að safnið sé
eina listasafn landsins tileinkað
listakonu.
„Gerður Helgadóttir vann
mikið frumkvöðlastarf innan
höggmyndalistarinnar og verk
hennar voru mörg hver tilrauna-
kennd. Gerður og hennar arfleifð
hafa verið leiðarljós í starfsemi
safnsins,“ segir Brynja.
Skapandi samvera
Auk fjölbreyttra myndlistar-
sýninga hefur verið haldinn fjöldi
viðburða á vegum Gerðarsafns og
safnið heldur uppi fræðslustarfi
fyrir almenning.
„Við leggjum áherslu á að hugsa
heildstætt um safnið sem skapandi
áfangastað, þar sem er spennandi
að koma og doka við. Þar sem
sýningarnar og safneignin eru
grunnurinn í allri starfseminni og
unnið með þær út frá þessari heild-
rænu sýn,“ útskýrir Brynja.
„Við erum með fræðslurými á
neðri hæðinni sem heitir Stúdíó
Gerðar. Þar gefst börnum, fjöl-
skyldum og öðrum gestum færi á
að njóta samverustunda, fræðast
og skapa saman. Núna erum við
að setja upp smiðjukassa þar svo
fólk getur komið og fengið þrjú
mismunandi verkefni til að vinna
sjálft að. Það er til dæmis einn
kassi þar sem er áhersla á klippi-
myndir og pappírsskúlptúr, svo
er einn teiknikassi og svo erum
við með þrívíddarpenna í einum
kassanum. Þetta er leið til að fólk
hafi alltaf aðgang að því að skapa
eitthvað skemmtilegt saman. Það
er alltaf hægt að koma og eiga
notalega samverustund á safninu.“
Reykjavík Roasters opnaði
nýlega á neðri hæð Gerðarsafns og
þar er hægt að slaka á yfir kaffi-
bolla og góðu meðlæti eftir heim-
sókn á safnið. Einnig er safnbúð í
anddyrinu sem er opin alla daga
vikunnar á opnunartíma safnsins.
„Við höfum verið að þróa safn-
búðina undanfarin tvö ár. Við
leggjum áherslu á að tengja hana
við yfirstandandi sýningar og
sérstöðuna að vera eina listasafn
landsins tileinkað listakonu. Við
erum að vinna með eftirprentanir
af verkum, sérstaklega Gerðar
Helgadóttur, Valgerðar Briem og
Barböru Árnason, sem eru þrír
kjarnar í safneigninni okkar. Við
gerum þessum listakonum góð
skil, bæði í gegnum sýningar og í
safnbúðinni,“ segir Brynja.
„Við höfum líka verið að gera
afsteypur af lágmyndum eftir
Gerði Helgadóttur, en samhliða
þessari eigin framleiðslu seljum
við líka umhverfisvænar vörur
og íslenskar hönnunarvörur eins
og skartgripi, slæður og alls kyns
heimilisbúnað. Allt sem fæst í
safnbúðinni styður við anda og
starfsemi safnsins.
Spennandi sýningardagskrá
Á Gerðarsafni eru tveir sýningar-
salir á efri hæð þar sem haldnar
eru um það bil sex sýningar á ári.
Á safninu er einnig föst sýning á
verkum Gerðar á neðri hæðinni.
Verið er að vinna í að koma upp
nýrri grunnsýningu á verkum
hennar þar sem öll járnverk hennar
í safneigninni verða til sýnis.
„Við erum að þróa hvernig
við getum rakastýrt verkunum
og verið með varðveislurými
inni í sýningunni. Þetta er þess
vegna svolítið á mörkum þess
að vera sýning og innlit í lista-
verkageymslu. En það er alltaf
spennandi að fá að kíkja á bak við
tjöldin,“ segir Brynja.
Á efri hæðinni er alltaf rúll-
andi sýningadagskrá, bæði með
sýningum samtímalistamanna og
sýningum á list fyrri tíma. Núna
og fram til 9. janúar stendur yfir
yfirlitssýning á verkum Bryn-
dísar Snæbjörnsdóttur og Mark
Wilson. Næstu sýningar opna 14.
janúar og eru hluti af Ljósmynda-
hátíð Íslands. Það er annars vegar
sýning Elínar Hansdóttur og Úlfs
Hanssonar og hins vegar sýning
Santiago Mostyn.
„Af því að þessar sýningar eru
hluti af Ljósmyndahátíð þá er ljós-
myndin byrjunarpunktur í þeim.
En þetta eru samt verk í ólíkum
miðlum eins og vídeó, innsetn-
ingar og tónlist. Þetta er spennandi
samsuða,“ útskýrir Brynja.
Sýna breidd myndlistar
Brynja er nýtekin við sem safn-
stjóri Gerðarsafns og vinnur að
sýningum og starfsemi safnsins út
frá listrænni sýn sinni. Spurð að
því hvernig sýningarnar eru valdar
segir hún að áðurnefnd sérstaða
safnsins, að vera tileinkað lista-
konu og myndhöggvara, sé mjög
sterk í grunninn.
„Við hugsum út frá frumkrafti
Gerðar en við erum líka að reyna
að sýna breidd samtímalistar. Á
næsta ári verða sýningar sem sýna
snertifleti milli myndlistar og ann-
arra listgreina eins og myndlistar
og dans, myndlistar og hönnunar
eða eins og með sýningunni hjá
Elínu og Úlfi, myndlistar og tón-
listar. Við erum að skoða ólíkar
birtingarmyndir myndlistar,“ segir
Brynja.
„Svo leggjum við áherslu á lista-
safnið sem dvalarstað, með því
að bjóða upp á fræðslurýmið og
kaffihúsið auk safnbúðarinnar og
hefðbundinna sýninga. Svo er úti-
svæði hér fyrir utan sem er farið að
vera stór hluti af áfangastað fólks
hérna í kringum safnið.“ ■
Gerðarsafn er opið alla daga frá
klukkan 10-17. Nánari upplýsingar
um safnið og sýningarnar eru á
gerdarsafn.kopavogur.is.
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Listin nýtur sín í björtum sölum safnsins þar sem ýmist eru sýningar á
verkum nútímalistamanna eða á myndlist fyrri tíma.
Undanfarin tvö ár hefur safnbúðin verið í þróun. Áhersla er á að tengja hana
við yfirstandandi sýningar en þar fást einnig ýmis konar hönnunarvörur.
Í safnbúðinni má finna eftirprentanir af verkum Gerðar og fleiri listamanna. FRéttABLAðið/EyÞóR
Við leggjum
áherslu á að hugsa
heildstætt um safnið
sem skapandi áfanga-
stað, þar sem er spenn-
andi að koma og doka
við.
Brynja Sveinsdóttir
2 kynningarblað A L LT 4. desember 2021 LAUGARDAGUR