Fréttablaðið - 04.12.2021, Blaðsíða 95
Ekki lætur henni
einungis einkar vel að
opna sýn inn í myrkrið
heldur er hún líka
naskur samfélagsrýnir.
Bývaxkerti
Margar gerðir
Krem, sápur
og olíur
Úrval fallegra listmuna sem fegra og gleðja.
Tilvalið í jólapakkann fyrir starfsmenn, vini og ættingja.
Verið hjartanlega velkomin í vefverslun Sólheima
Þorgrímur (E.B)
28.900 kr
Hestur (G.L.A)
5.900 kr
Doppa (K.A.S)
10.900 kr
Ástríkur (E.B.S)
13.900 kr
Líð á haus (E.B.S)
12.900 kr
Bolli með undirskál (E.B)
6.990 kr
Útikerti
BÆKUR
Lok lok og læs
Yrsa Sigurðardóttir
Útgefandi: Veröld
Fjöldi síðna: 312
Björn Þorláksson
Lok, lok og læs, er
mikill doðrantur,
350 síður af saka
málum, spennu –
og hryllingi.
D u l a r f u l l u r
glæpur á afvikn
um stað í íslenskri
sveit opnar bók
ina. Lesandinn
fær ekki örlög sín
f lúið eftir það.
Hann kastar frá
sér öðrum verk
um og sogast inn
í atburðarásina,
tíminn hreinlega
hverfur. Það er þó
mun skárra hlut
sk ipti en örlög
sumra persónanna.
Frá upphafi er
lesandinn leiddur
áfram í tveimur tímalínum. Ann
ars vegar fylgjumst við með rann
sóknarlögreglumanninum Tý og
félögum hans reyna að upplýsa
voðaverk af grimmara tagi. Börn eru
meðal fórnarlamba. Týr berst við
skugga fortíðar og eigin ráðgátur á
sama tíma og hann og vel skrifaðar
aukapersónur í lögregluliðinu vinna
sitt verk. Á hinn bóginn fylgjumst
við með aðdraganda harmleiksins,
lífi Sóldísar, ungrar ráðskonu sem
ólíkt lesandanum veit ekki hvað
bíður hennar. Og eins og vera ber í
ráðgátukrimma kunna sögulok að
koma mörgum lesendum á óvart.
Yrsa er ekki einhöm í galdri
þessarar bókar. Ekki lætur henni
einungis einkar vel að opna sýn
inn í myrkrið
heldur er hún
l ík a na sk u r
s a m f é l a g s
rýnir. Þannig
fær glæný tt
f r é t t a m á l ,
stórfrétt sem
kom upp fyrir
n o k k r u m
dögum, löngu
eftir að Yrsa
skilaði bók
inni í próf
örk, mik il
vægt vægi í
sögunni. Sú
s t a ð r e y n d
seg i r sí na
s ö g u u m
f r a m s ý n i
höfundar og
nef fyrir því
sem betur
mætti fara.
Margt er á sveimi í Lok lok og
læs. Bitcoin, dýrahald, ást, afbrýði,
sjálfselska, hatur, vanhugsaðar
ákvarðanir. Grimmur ritstjóri gæti
sagt að hliðarsögum bókarinnar
hefði mátt fækka eða fara örlítið
meira á dýptina til að skýra hvað
liggur undir illskunni. En skortur
af einhverju tagi, eða ótti við skort,
vegur í huga höfundarins þungt í
þeim efnum.
Yrsa höfðar til breiðs hóps les
enda. Hún kýs oft skýrleika umfram
tvíræðni án þess þó að trana eigin
skoðunum fram. Við fyrirgefum
henni ónotin sem hún sáldrar í
okkar huga. Við reynum jafnvel að
læra af grimmdinni og vægðarleys
inu, því hlýtt hjarta og sterk réttlæt
iskennd keyrir án efa skáldkonuna
áfram þótt hún láti prestana um að
predika.
Þá er forvitnilegt að bæði Yrsa og
einn helsti krimmasagnakollegi
hennar, Ragnar Jónasson, eiga það
sameiginlegt fyrir þessi jól að skapa
hrylling sem á sér stað í afkimum
úti á landi. Maður freistast til að
spyrja hvort Covid, sóttkvíar tím
arnir, nýjar spurningar um einsemd
og öryggisleysi mannskepnunnar
kunni að varða þá braut? ■
NIÐURSTAÐA: Bók sem grípur
lesandann heljartökum. Ansi
grimm á köflum en glæsilega flétt-
uð svo tíminn hreinlega hverfur í
höndum lesandans.
Göldrótt og grimm Yrsa
LAUGARDAGUR 4. desember 2021 Menning 59FRÉTTABLAÐIÐ
Brautirnar
eru
fáanlegar
með
mjúklokun
Mikið úrval
rennihurðabrauta frá
Þýsk gæðavara.
Skútuvogi 1h - Sími 585 8900
www.jarngler.is