Fréttablaðið - 04.12.2021, Blaðsíða 57
Umsjónarkennari á miðstigi óskast
Fullt starf Kennari
Grunnskólinn á Ísafirði leitar eftir metnaðarfullum og drífandi
kennara sem sýnir frumkvæði í starfi.
Umsóknarfrestur er til og með 17. desember.
Sjá nánar á Job
Myndmenntakennari óskast
Fullt starf Kennari
Leitað er að áhugasömum og drífandi kennara sem býr yfir lipurð
og færni í samskiptum og sýnir frumkvæði í starfi.
Umsóknarfrestur er til og með 15. desember nk.
Sjá nánar á Job
Aðstoð á tannlæknastofu í Reykjavík
Tannlæknastofa óskar eftir aðstoðarmanneskju í 70% starf.
Starfið felur í sér að aðstoða tannlækna við stól, sótthreinsun
og þrif, símsvörun og tímabókanir, vörupantanir og annað sem
viðkemur almennum rekstri tannlæknastofu. Viðkomandi þarf
almenna tölvukunnáttu og vera með gott viðmót.
Upplýsingabeiðnir og umsóknir
má senda á netfangið jaxlar@simnet.is
Framkvæmdastjóri óskast
Fullt starf Stjórnendur
Mývatnsstofa leitar að öflugum einstaklingi til að leiða markaðs-,
kynningar og þróunarstarf stofnunarinnar.
Umsóknarfrestur til 06.12.2021.
Sjá nánar á Job
Störf í Þjónustuíbúðakjarna
FSS í Ólafsvík!
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir að nýju
laus störf til umsóknar í nýjum þjónustuíbúðakjarna
fatlaðra í Ólafsvík.
Meginverkefni er stuðningur- og hæfing íbúanna til
sjálfstæðrar búsetu og aukinnar virkni í daglegu lífi,
menningu og félagslífi
Virða ber sjálfræði íbúa og hafa velferð þeirra að
leiðarljósi í allri þjónustu
Um er að ræða vaktavinnustörf.
Hæfniskröfur
• Leitað er einstaklinga sem lokið hafa faglegu námi
er nýtist í störfum, s.s. félagsliða- eða
stuðningsfulltrúamenntun, eða sambærilegu námi
• Reynsla og þekking af starfi með fötluðum er kostur
• Stundvísi, samvinnu- og samskiptahæfileikar og
áhugi fyrir starfi með fólki með skerta starfsgetu eru
mikilvægir eiginleikar í starfinu
• Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
• Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Skriflegar umsóknir um starfið er tilgreini menntun,
starfsferil og umsagnaraðila ásamt prófskírteini og
sakavottorði berist undirrituðum sem jafnframt veitir
frekari upplýsingar.
Þjónustukjarninn er reyklaus vinnustaður!
Upplýsingar veitir: Jón Haukur Hilmarsson, forstöðumaður
og fagstjóri FSS, Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbær;
jonhaukur@fssf.is s. 430 7800
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu
FSS, www.fssf.is
Umsóknarfrestur er til 15. desember 2021
Byggðasamlag um rekstur
Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga
Starf hjúkrunarfræðings er laust til umsóknar
Auglýst er eftir hjúkrunarfræðingi (study nurse/study coordinator) í 100% starf við vísindarannsóknina
Blóðskimun til bjargar, skimunarrannsókn og lyfjarannsókn við Læknadeild Háskóla Íslands. Rannsóknin
er einstök á heimsvísu. Markmið hennar er að rannsaka árangur skimunar fyrir góðkynja einstofna
mótefnahækkun (MGUS) sem er forstig mergæxlis. Verkefnið er unnið í samstarfi við Háskóla Íslands,
Landspítala, Krabbameinsfélag Íslands, Binding Site í Bretlandi og International Myeloma Foundation.
Starfið gefur einstaka innsýn og reynslu af rannsóknarvinnu og klínísku starfi.
Háskóli Íslands, Sæmundargötu 2, 102 Reykjavík
+354 525 4000, hi@hi.is, www.hi.is
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
Blóðskimun
til bjargar
Starfssvið
Hjúkrunarfræðingurinn mun tilheyra rannsóknar-
teymi verkefnisins og koma að bæði uppvinnslu
og eftirfylgd í skimunarrannsókn og uppvinnslu
og meðferð í lyfjarannsókn. Skimunarrannsóknin
fer að mestu fram í móttökusetri Blóðskimunar,
Skógarhlíð 8 en einnig eru reglubundið settar
upp skammtímamóttökustöðvar á landsbyggðinni.
Lyfjarannsóknin fer að mestu fram á LSH. Starfs-
maðurinn mun hafa tækifæri til að hafa áhrif á
mótun starfsins. Um er að ræða rannsóknaverkefni
sem byggir á fjármögnun með rannsóknastyrkjum
og er starfið bundið við slíka fjármögnun.
Önnur helstu verkefni eru:
· Innköllun og móttaka þátttakenda
· Viðtöl og sýnatökur skv. nákvæmum verkferlum
· Meðferð, flokkun og skráning sýna
· Gagnaskráning
· Þátttaka í þróun verkferla
· Krabbameinslyfjagjöf og eftirfylgd
Menntunar- og hæfniskröfur
· Íslenskt hjúkrunarleyfi
· Reynsla af vinnu við vísindaverkefni er kostur
· Þekking á good clinical practice (GCP) er kostur
· Reynsla af hjúkrun krabbameinsveikra og
krabbameinslyfjagjöf er kostur
· Reynsla af því að vinna í teymi
· Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð
· Framúrskarandi samskiptahæfni, nákvæmni,
útsjónarsemi
· Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu
og riti
· Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að
tileinka sér nýjungar á því sviði
Umsóknarfrestur er til og með 17. desember 2021.
Sótt er um á vef Háskóla Íslands eða á starfatorg.is.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Ásta Sigurðardóttir,
deildarstjóri móttökuseturs á gas@hi.is.
Viðkomandi verður að geta hafið störf sem fyrst.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum
tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur
verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum
umsóknarfrests. Laun eru samkvæmt kjarasamningi
fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags.Við
ráðningar í störf við Háskóla Íslands er tekið mið af
jafnréttisáætlun Háskólans.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókninni: ferilskrá,
staðfest afrit af prófskírteinum, meðmælabréf og
greinargerð þar sem áhuga fyrir verkefninu er lýst og
fjallað um hvað umsækjandi getur lagt af mörkum til
þess.
ATVINNUBLAÐIÐ 13LAUGARDAGUR 4. desember 2021