Fréttablaðið - 04.12.2021, Qupperneq 48
hagvangur.is
Um nýja stöðu er að ræða og í samræmi við kvikmyndastefnu til ársins 2030 þar sem er m.a. lögð áhersla á að efla kynningarstarf í takt við
hraðar breytingar í miðlun og dreifingu kvikmynda.
Laun taka mið af kjörum opinberra starfsmanna.
Upplýsingar um störfin veita: Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is og Stefanía Hildur Ásmundsdóttir, stefania@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 21. desember 2021
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Kvikmyndamiðstöð Íslands er opinber stofnun og ber m.a. að stuðla að framleiðslu, dreifingu og kynningu
á íslenskum kvikmyndum. Kvikmyndamiðstöð vinnur einnig að eflingu kvikmyndagreinarinnar á Íslandi
og því að treysta tengsl á máli íslenskra og erlendra kvikmyndaraðila. www.kvikmyndamiðstöð.is
Kvikmyndaráðgjafi
Kvikmyndasjóður starfar á vegum Kvikmyndamiðstöðvar Íslands. Hlutverk Kvikmyndasjóðs er að efla íslenska kvikmyndagerð
með fjárhagslegum stuðningi. Kvikmyndaráðgjafi leggur listrænt mat á umsóknir sem berast til Kvikmyndamiðstöðvar um styrki
úr Kvikmyndasjóði, jafnt fyrir leikið efni og heimildamyndir. Matið fer fram með hliðsjón af fjárhags- og framkvæmdaþáttum. Ráðgjafi
fylgist jafnframt með framvindu þeirra verkefna sem stuðning hljóta.
Kvikmyndaráðgjafi skal hafa staðgóða þekkingu og/eða reynslu á sviði kvikmynda og má ekki hafa hagsmuna að gæta varðandi
úthlutun eða gegna störfum utan Kvikmyndamiðstöðvar sem tengjast íslenskri kvikmyndagerð meðan á ráðningartíma stendur.
Umsækjandi þarf að hafa lokið námi frá viðurkenndum kvikmyndaskóla eða hafa a.m.k. 3ja ára starfsreynslu af einhverri af
lykilstöðum í kvikmyndagerð. Krafist er góðrar íslensku- og enskukunnáttu, auk þess er kunnátta í einu Norðurlandamáli kostur.
Mikilvægt er að kvikmyndaráðgjafar hafi góða samskiptahæfileika og eigi auðvelt með að tjá sig jafnt í ræðu og riti.
Kvikmyndamiðstöð leitar að a.m.k. einum ráðgjafa sem þarf að geta hafið störf sem fyrst. Til greina kemur að ráða í fullt starf eða
hlutastarf.
Um tímabundna ráðningu er að ræða og ráðningartími nemur allt að tveimur árum í senn.
Laun taka mið af launakjörum opinberra starfsmanna.
Kvikmyndamiðstöð Íslands óskar að ráða framúrskarandi kröftugan og metnaðarfullan einstakling í starf sérfræðings í miðlun
og stafrænni þróun. Hlutverk sérfræðings er að marka stefnu og áætlanir í markaðs- og kynningarmálum og annast stefnumótun,
þróun og verkefnastjórn stafrænna lausna.
Viðkomandi mun einnig bera ábyrgð á vefstjórn, gerð og miðlun frétta- og kynningarefnis eftir öflugustu miðlunarleiðum hverju sinni,
bæði hér á landi og alþjóðlega. Vinnur náið með forstöðumanni og öðru starfsfólki KMÍ auk hönnuða, rétthafa og annarra hagaðila.
Önnur helstu verkefni eru að treysta stafræna mörkun KMÍ. Tryggir að kynningar- og markaðsefni á vegum KMÍ styðjist við öflugustu
miðlunarleiðir og hafi skýra ásjónu. Koma auga á tækifæri til miðlunar og vinna að útfærslu með starfsfólki KMÍ.
Birting efnis á samfélagsmiðlum og öðrum miðlum eftir atvikum.
Umsækjandi þarf að hafa:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla af vefstjórn og samfélagsmiðlum
• Reynsla af kynningarstarfi og samskiptum við fjölmiðla
• Verkefnastjórn stafrænna verkefna
• Hugmyndaauðgi og færni í að finna þeim form til útfærslu
• Metnaður til að ná árangri og hæfni til að tileinka sér nýjungar og breytingar
• Kostnaðarvitund
• Góð samskiptahæfni og reynsla af teymisvinnu
• Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
• Menntun eða góð innsýn í evrópska kvikmyndagerð og dreifingu
• Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu en einkum rituðu máli
• Góð tölvukunnátta
Sérfræðingur – miðlun og stafræn þróun
4 ATVINNUBLAÐIÐ 4. desember 2021 LAUGARDAGUR