Fréttablaðið - 04.12.2021, Side 103
2.599 kr.
Akam, ég og Annika
Hrafnhildur neyðist til að flytja
til Þýskalands með fjölskyldu
sinni þegar stjúpfaðir hennar
fær þar vinnu. Nýi skólinn er
strangur og hún saknar pabba
síns og ömmu, en aðallega
bestu vinkonu sinnar. Þegar
hún kynnist hinum krökkunum
í skólanum renna á hana tvær
grímur.
3.999 kr.
Jólasvínið
Jack á sér uppáhaldsleikfang
– lítið tuskusvín. Svínið
hefur fylgt honum alla tíð, í
gegnum súrt og sætt. Þangað
til aðfangadagskvöld eitt að
hið hræðilega gerist: svínið
týnist. En jólanótt er tími
kraftaverkanna, nóttin þegar
allir hlutir geta lifnað við –
jafnvel leikföng.
2.799 kr.
5 mínútna Frozen sögur
Slástu í för með Önnu, Elsu,
Sveini, Kristjáni, Ólafi og
öllum skemmtilegu vinum
þeirra og taktu þátt í heillandi
ævintýrum í Arindell.
5.999 kr.
Veistu, ef þú vin átt
Haustið 1946 fluttist
Aðalheiður Hólm af landi
brott með hollenskum
eiginmanni sínum. Þá stóð
hún á þrítugu en hafði engu
að síður komið víða við
sögu. Átján ára stofnaði hún
Starfsstúlknafélagið Sókn
sem sameinaði konur í lægstu
stéttum þjóðfélagsins í baráttu
þeirra fyrir mannsæmandi lífi.
4.999 kr.
Skipskaðar á svörtum
söndum
Sandarnir miklu á
suðurströndinni hafa orðið
grafreitur margra skipa í
aldanna rás. Barátta sjómanna
í brjáluðu brimi fyrir lífi sínu
hefur oftar en ekki verið
tvísýn. Margir komust ekki
lifandi frá borði. Þeirra sem
náðu í land beið oft erfið
ganga í leit í að byggð.
4.499 kr.
Fótbolti – allt um hinn
fagra leik
Viltu fá að vita allt um
fótboltann? Hér er farið yfir allt
sem viðkemur fótboltanum,
frá uppruna leiksins til
upplýsinga um öll helstu mót
heims og um bestu liðin.
Nauðsynlegt upplýsingarit fyrir
alla sem hafa áhuga á þessari
vinsælustu íþrótt jarðar!
5.999 kr.
Milli vonar og ótta
Íslenskar ljósmæður þurftu
í aldanna rás að brjótast í
öllum veðrum, oft um erfiðar
leiðir, til að sinna fæðandi
konum sem biðu milli vonar
og ótta eftir aðstoð. Þær
tóku á móti börnum við alls
konar aðstæður á misjafnlega
búnum heimilum.
5.999 kr.
Laugavegur
Byggingar- og verslunarsaga
aðalgötu Reykjavíkur sögð í
máli og myndum og tilraun
gerð til að
útskýra hvers vegna hún
hefur þróast með þeim hætti
sem raun ber vitni. Líklega
endurspeglar
engin gata á landinu jafn
vel tíðarandann í borginni á
hverjum tíma og Laugavegur.
4.899 kr.
Fegurðin ein
Síðasta sýningin á
söngleiknum um Fríðu og
Dýrið. Anna dansari er í stuði
í lokapartíinu – þar til bæði
kærastinn og viðhaldið eru
mættir. Hún tekur því fagnandi
óvenjulegu verkefni fyrir
auglýsingastofu: að fara til
Tenerife og finna fallegt fólk.
2.999 kr.
Vala víkingur og epli
Iðunnar
Nú eru Vala víkingur og skipið
hennar Breki dreki komin
í hann krappan!
Gyðjan Iðunn lendir óvænt
um borð með gulleplin sín,
hundelt af þursinum Þjassa og
lævísa guðinum Loka. En af
hverju vilja þeir epli Iðunnar
og hvað getur Vala gert til að
stoppa þá?
Lægra verð – léttari innkaup
Bókaðu gleðileg jól
Í dag er „appsláttur“ af öllum bókum í
verslunum Samkaupa: Nettó, Iceland,
Kjörbúðinni og Krambúðinni.
Ef þú greiðir með Samkaupa-appinu færðu
30% af andvirði bókanna sem inneign.
30%