Heilsuvernd - 01.06.1966, Blaðsíða 10
ALAN P. MAJOR
Áhrif lila á hcilsuna
Litir hafa næsta mikil áhrif á líkama okkar og sál. í sjúkrahúsum er
þetta notað í lækningaskyni, sérstaklega í geðveikrahælum. I verk-
smiðjum og öðrum vinnustöðum hefir einnig verið lagt kapp á að
rannsaka og hagnýta áhrif lita á starfsfólk.
Sjúkrastofur og biðstofur lækna voru áður í daufum litum, dökkum,
gráum eða hvítum, og lítil tilhreyting í litavali. Nú er lögð áherzla á
hressandi og margbreytilega liti í þessum húsakynnum.
I sjö höfuðlitum litrófsins eru talin um milljón mismunandi lit-
brigði, og af þeim er augað talið geta greint 378. En höfuðlitirnir sjö
eru: Rautt, rauðgult, gult, grænt, blátt, indígóblátt og fjólublátt.
Rauíl og rauðgult örvandi
Þetta eru heitir, fjörgandi litir, sem henta m. a. vel í heimahúsum.
En gæta verður hófs í notkun þeirra, eins og eftirfarandi saga sýnir.
Eg þekkti konu, sem alltaf hafði verið heilsugóð. En nokkrum vikum
eftir að hún hafði flutt í nýja íbúð fór að bera á miklum höfuðverk
og meltingartruflunum. Eg kom heim til hennar, og varð mér þegar
ljóst, hvar hundurinn lá grafinn. Ibúðin var mestöll í sterkum, rauðum
og rauðgulum litum og húsgögn sömuleiðis. Hver maður hlaut að fá
verk í augu og höfuð af að dveljast þar inni. Ibúðin var nú öll máluð
upp, herbergin með róandi, bláum og gráleitum litum, eldhúsið Ijós-
rautt, og áklæði á húsgögnum var einnig breytt. Eftir stuttan tíma var
heilsa konunnar komin í samt lag.
Grœnl og blát.t róandi
Utvarpsfyrirtæki í Bandaríkjunum gerði ýmsar tilraunir með litaval
í útsendingarherbergjum sínum. Niðurstaðan varð sú, að þau voru
máluð með tveimur bláum litum, sem virtust öðrum litum fremur
verka róandi á þá, sem flytja skyldu útvarpsefni, bæði meðan þeir biðu
og meðan á flutningi stóð, og drógu úr taugaóstyrk.
74
HEILSUVERND