Heilsuvernd - 01.06.1967, Síða 5
lýlandi ör. Sannaðist með þessu,
að það eru aðallega hinir bláu
geislar, sem valda því, að menn
verða bólugrafnir.
Sólargeislar dcyða gerla
og sýkla
Aður en Finsen tók að rannsaka
áhrif sólarljóssins, var mönnum
kunnugt orðið, að sólargeislarnir
eru banvœnir allskonar gerlum og
sýklum. Vœri ekki svo, mundi
þessum smáverum fjölga svo ört,
að hér á jörðu yrði ekki líft hœrri
dýrategundum. Rykagnir, sem ber-
ast um í loftinu eins og loftskip,
geta verið hlaðnar sýklum, og hver
andardráttur mundi fœra mönnum
banvcenan skammt af þessum ó-
vinum mannkynsins, ef sólin vceri
ekki að verki með sterkum geislum
sínum og eyðilegði þessar smá-
jurtir á skömmum tíma. Svipað
má segja um vatnið. í ár og lœki,
sem renna gegnum borgir og bœi,
berst mergð af sýklum. Glatt og
sterkt sólskin hefir eyðandi og
deyðandi áhrif á þá.
Finsen gerði ýmscir merkilegar
lilraunir viðvíkjandi gerlaeyðandi
áhrifum sólarljóssins. Rannsóknir
hans bentu til þess, sem menn
hafði áður órað fyrir, en ekki
fengið sönnur á, að það eru hin-
ir bláu og útfjólubláu geislar, sem
sér í lagi eru banvœnir sýklum og
gerlum.
(LJÓSLÆKNINGAR. Stefnir 1930 -31.
Nýjar leiðir, 2. rit NLFÍ, 1942).
IT EILStJ VEKND
69