Heilsuvernd - 01.06.1967, Side 6
BJORN L. JONSSON LÆKNIR
Frá Húnzalandi
Norður af Indlandsskaga, í mesta fjallalandi heims, búa margir þjóð-
flokkar, næsta ólíkir að uppruna. Sumir þeirra eru kunnir fyrir frábær-
lega góða heilsu og sjúkdómaleysi, sem nú þekkist varla meðal ann-
arra þjóða og stingur sérstaklega í stúf við bágborið heilsufar vest-
rænna þjóða.
Meðal þessara þjóðflokka eru Húnzabúar, sem búa í um 4 þúsund
metra hæð yfir sjó og draga nafn sitt af Húnzaá, en hún fellur í fljót-
ið Indus.
Kunnir læknar og ferðalangar hafa ritað um þennan þjóðflokk, og
hefir þeim orðið tiðrætt um heilsufar hans og líkamlegt atgervi. Þeirra
á meðal er enskur læknir og vísindamaður, Sir Robert McCarrison,
sem starfaði árum saman sem læknir í N-Indlandi. Hann gat sér þess til,
að þjóðir þessar ættu sjúkdómaleysi sitt viðurværi og öðrum heilnæm-
um lifnaðarháttum að þakka og færði sönnur á þá tilgátu með fóðrun-
artilraunum á dýrum, og voru þær kostaðar af Rockefellerstofnuninni
heimskunnu. Frá þessu hefir áður verið skýrt hér í ritinu og ennfremur
í bókinni Matarœði og heilsufar, sem NLFl gaf út árið 1950, en bókin
er eftir McCarrison og þýdd með leyfi hans.
Heyrzt hefir, að sögurnar af heilsufari Húnzamanna hafi löngum
verið nokkuð ýktar, og á síðari árum á að vera farið að kveða nokkuð
að venjulegum menningarsjúkdómum meðal þeirra. Hefir það verið
sett í samband við erlend áhrif og breytta lifnaðarhætti, eins og ótal
dæmi eru um hjá öðrum frumstæðum þjóðum.
Fyrir stuttu barst mér í hendur bók eftir kunnan ferðalang og rit-
höfund kanadiskan, John H. Tobe að nafni. Segir hann þar frá för
sinni til Húnzalands árið 1959, dvöl sinni þar og kynnum af landi og
þjóð.
Húnzar heyrðu áður undir Indland, en frá árinu 1947 tilheyra þeir
Pakistan, og liggur land þeirra nyrst í Pakistan, skammt frá landamær-
umKína (Tíbets).
70
HEILSUVERND